Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.05.2015, Page 35

Skinfaxi - 01.05.2015, Page 35
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 35 Sími 470 8100 / Fax 4708101 / sth@sth.is / www.sth.is Lið Selfoss varð Íslandsmeistari í blönduðum flokki á Íslandsmót-inu í hópfimleikum sem fram fór í Garðabæ 18.–19. apríl sl. Var þetta jafnframt fyrsti Íslandsmeistaratitill félagsins í fullorðinsflokki. Liðið sigraði einnig í keppni á dýnu og á trampólíni. Með sigrinum varð liðið jafnframt deildarmeistari. Þar með bættist þriðji titill vetr- arins í safnið, þ.e. Íslandsmeistarar, deildarmeistarar og bikarmeist- arar. Selfoss átti einnig lið í kvennaflokki og hafnaði það í fimmta sæti. Þessi árangur sýnir þann mikla uppgang sem er í fimleikum á Selfossi um þessar mundir. Við heimkomuna var vel tekið á móti Íslandsmeisturunum en sveitarfélagið Árborg stóð fyrir móttöku við Tryggvatorg. Kvennalið Stjörnunnar varð Íslandsmeistari í kvennaflokki og batt enda á níu ára sigurgöngu Gerplu. B-lið Stjörnunnar hafnaði í þriðja sæti. Íslandsmót FÁÍA – Félags áhugafólks um íþróttir aldraðra – í boccia fyrir 60 ára og eldri fór fram 18. apríl sl. í Íþróttamiðstöðinni á Álftanesi. Mótið var samvinnuverkefni Félags eldri borgara í Garðabæ og FÁÍA. Til keppni voru að þessu sinni skráð 32 lið. Keppendur voru 102 og var leikið í átta riðlum, þrír leikir á lið. Sigurvegarar riðlanna kepptu síðan í milli- riðlum og sigurvegarar úr þeim til undan- úrslita og loks til úrslita. Að þessu sinni kepptu liðin sem urðu í 2.–4. sæti sín á milli. Með því fyrirkomulagi fengu öll lið 5–7 leiki, en keppnistími á svona Fyrsti Íslandsmeistaratitill Selfoss Spennandi keppni á Íslandsmóti FÁÍA í boccia móti verður aldrei lengri en 5 klukkustundir. Svo fór að lokum að Garðabær 2 stóð uppi sem sigurvegari en liðið var skipað þeim Gunnlaugi Stefánssyni, Jóni Sverri Dagbjarts- syni og Sveini Jóhannssyni. Gjábakki 1 varð í öðru sæti og Reykjanesbær 1 í þriðja sæti. Mótið tókst vel, aðstaða var öll til fyrir- myndar og ekki var annað að finna og sjá en að keppendur væru allir mjög sáttir að keppni lokinni. Á myndinni er sigurliðið, Garðabær 2.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.