Skinfaxi - 01.08.2015, Side 13
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 13
í hjólreiðum hér á landi
Allra meina bót
– Hvað var það sem ýtti þér út í þetta sport?
„Ég var búinn að taka þátt í nokkrum grein-
um íþrótta, hljóp töluvert en var alltaf að fá
einhver álagsmeiðsli. Hjólreiðarnar fara bara
miklu betur með líkamann. Vandamálið er
að við þurfum meira ungt fólk inn í þessa
grein en stærsti hópurinn eru karlmenn á
aldrinum 30–50 ára. Á síðustu tveimur árum
hefur verið ótrúleg fjölgun kvenna innan
hjólreiðanna sem er mjög ánægjulegt. Hjól-
reiðarnar eru allra meina bót og frábær úti-
vist. Við stefnum að því að vera með fleiri
hópa innan félagsins þannig að allir finni
sinn hraða og takt við sitt hæfi,“ sagði Árni.
Mikil aukning í hjólreiðum
hefur orðið á Akureyri
Vilberg Helgason, formaður Hjólreiðafélags
Akureyrar, segir gríðarlega vakningu fyrir
hjólreiðum. Norðanmenn hefðu verið aðeins
seinni að taka við sér en sunnanmenn en á
síðustu tveimur árum hefur orðið mikil aukn-
ing í hjólreiðum á Akureyri.
Ný samgöngustefna
„Viðhorf til hjólreiða hefur breyst mikið en
bæjaryfirvöld eru hreinlega að gera nýja sam-
göngustefnu með hjólreiðar í huga. Almenn-
ingshjólreiðamönnum hefur fjölgað mikið á
götum Akureyrar og verslanir merkja mikla
aukningu í sölu á reiðhjólafatnaði og varn-
ingi honum tengdum. Fólk er farið að kaupa
hjól sem samgöngutæki en ekki sem leik-
tæki eins og áður. Hjólreiðamen eru alltaf að
sjást betur, hjól eru með almennileg ljós og
reiðhjólamenn klæðast endurskinsfatnaði
sem er gott upp á öryggið. Menn líta orðið á
hjólreiðar sem lífsstíl nú til dags frekar en
einhvern sérvitringshátt. Hjólreiðar eru líka
að aukast sem íþrótt á Akureyri. Fjöldi manns
stundar reglulega æfingar svo að þróunin í
þessu er virkilega ánægjuleg,“ sagði Vilberg
Helgason.
Vilberg Helgason, formaður Hjólreiðafélags
Akureyrar.