Skinfaxi - 01.08.2015, Blaðsíða 24
24 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
F
immta Landsmót UMFÍ 50+ var haldið
á Blönduósi í sumar og í umsjón Ung-
mennasambands Austur-Húnvetninga
(USAH). Undirbúningsvinna fór fyrir
alvöru af stað seinni hluta árs 2014 en þá var
landsmótsnefnd skipuð. Nefndin samanstóð
af fulltrúum frá USAH, Blönduósi, UMFÍ og
eldri ungmennafélögum.
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMFÍ,
stýrði undirbúningi og framkvæmd mótsins
í fyrsta skipti og hafði sér við hlið Flemming
Jessen sem ráðinn var verkefnastjóri og einnig
Halldór Lárusson sem var í starfsnámi í við-
burðastjórnun. Ingólfur Sigfússon sá um
skráningarkerfið og utanumhald úrslita á
mótinu. Fjármögnun mótsins gekk frekar
seint en að lokum náðust að nokkru leyti
þau markmið sem sett voru í upphafi.
Mótið var sett föstudaginn 26. júní og því
lauk sunnudaginn 28. júní. Veðurguðirnir
léku við mótsgesti alla mótsdagana. Keppnis-
greinar á mótinu voru eftirfarandi: Boccia,
bridds, dráttarvélaakstur, frjálsíþróttir, golf,
hestaíþróttir, lomber, pútt, ringó, skák, starfs-
hlaup, stígvélakast og sund. Alls mættu 370
Alls mættu 370 keppendur til leiks
keppendur til leiks, 251 karl og 119 konur.
Fjölmennasta keppnisgreinin var boccia en
107 einstaklingar tóku þátt í þeirri keppni.
Mótssetning var á föstudagskvöldi og
fylltu mótsgestir Félagsheimilið á Blönduósi.
Skemmtileg stemning myndaðist á setning-
unni og þar var bæði sungið og dansað.
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningar-
málaráðherra, Helga Guðrún Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ, Einar Kristján Jónsson, for-
maður landsmótsnefndar, og Haukur Ingi-
bergsson, formaður Landssambands eldri
borgara, fluttu ávörp á setningarathöfninni
sem tókst með ágætum.
Á mótinu var í samstarfi við Heilbrigðis-
stofnunina á Blönduósi boðið upp á heilsu-
farsmælingar sem mæltist vel fyrir. Á laugar-
dagskvöldið safnaðist fjöldi fólks við Blöndu
og söng saman við undirleik heimamanna í
veðurblíðu.
Allt keppnishaldið gekk mjög vel og
ánægja skein úr hverju andliti. Umgjörð
mótsins var mjög góð og öll dagskráin gekk
samkvæmt áætlun.
5. Landsmót UMFÍ 50+ á Blönduósi: