Skinfaxi - 01.08.2015, Qupperneq 34
34 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Á
forvarnadaginn ræddu nemendur
í skólunum um hugmyndir sínar
og tillögur varðandi nýjungar og
breytingar á æskulýðs- og íþrótta-
starfi, fjölskyldulífi og öðrum þeim
þáttum sem eflt geta forvarnir.
Hugmyndir og tillögur nemenda voru svo
teknar saman og settar í skýrslu sem birt er
á vefsíðu dagsins, www.forvarnadagur.is. Þá
gafst nemendum kostur á að taka þátt í rat-
leik á vefsíðum íþrótta- og ungmenna-
samtaka og voru þar verðlaun í boði. Upp-
lýsingar um daginn eru einnig aðgengilegar
á Fésbók undir Forvarnadagur.
Forvarnadagurinn er haldinn að frumkvæði
forseta Íslands. Aðstandendur forvarnadags-
ins auk forsetaembættisins eru Samband
íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg,
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ung-
mennafélag Íslands, Bandalag íslenskra skáta,
Félag íslenskra framhaldsskóla og Rannsókn-
ir og greining. Forvarnadagurinn er skipu-
lagður með stuðningi lyfjafyrirtækisins Actavis.
Meginmarkmið forvarnadagsins er að
vekja athygli á því hvaða ráð hafi reynst best
til að koma í veg fyrir að ungmenni verði
áfengi og fíkniefnum að bráð. Þar ber hæst
þátttöku í formlegu íþrótta- og tómstunda-
starfi og samverustundir með fjölskyldunni.
Á Íslandi hefur náðst afar góður árangur
í baráttu gegn notkun áfengis og tóbaks á
grunnskólastigi. Það þakka menn ýmsum
þáttum. Margvíslegt tómstundastarf hefur
mikið gildi í þeim efnum, svo sem starf skáta,
ungmennafélaga og íþróttahreyfingarinnar.
Jafnframt skiptir afar miklu máli að foreldrar
ræði við börn sín og unglinga um valkostina
í frístundastarfi og þá staðreynd að líkurnar
á að áfengisnotkun verði síðar vandamál
minnka stórlega með hverju ári sem ungling-
ar draga það að bragða áfengi.
Nýlegar, athyglisverðar rannsóknir á íþrótta-
starfi ungmenna benda til að þær hafi þá
aðeins forvarnagildi ef þær eru stundaðar
með formlegum og skipulegum hætti. Þetta
ætti að vera unglingum og öðrum sem hlut
eiga að máli umhugsunarefni og gefur þeim
aukna ástæðu til að stunda íþróttir innan
ramma íþrótta- og frístundafélaga.
Rannsóknir á undanförnum árum hafa
líka leitt eftirfarandi í ljós:
• Jákvæð þróun með minnkandi notkun
áfengis og tóbaks heldur í megindráttum
áfram í íslenskum grunnskólum.
• Íslenskir grunnskólanemar standa mjög vel
í alþjóðlegum samanburði í þessum efnum.
• Veruleg aukning verður í notkun á áfengi
á fyrsta ári í framhaldsskóla og telja margir
nemar að foreldrar láti það óátalið að þau
noti áfengi eftir að þau eru komin í fram-
haldsskóla.
• Notkun á áfengi og tóbaki hefur engu að
síður farið heldur minnkandi í íslenskum
framhaldsskólum á undanförnum árum.
En þó að mikið hafi dregið úr notkun
áfengis og tóbaks meðal íslenskra unglinga
á síðustu árum eru nokkur teikn á lofti sem
staldra þarf við.
Ný vímuefni og nýjar aðferðir til að neyta
eldri tegunda vímuefna hafa nú komið fram.
Sum þessara efna eru framleidd úr efnivið
sem er leyfður samkvæmt lögum, svo sem
tóbaki og koffíni. Efnin eru bragðbætt, bætt í
þau ilmefnum eða þau markaðssett sem sæl-
gæti. Nýleg dæmi um þetta eru tóbakslíki,
rafsígarettur, og svonefndir orkudrykkir sem
sumir hverjir hafa að geyma mikið magn
koffíns. Markaðssetning þessara efna hefur
fyrst og fremst miðast við unglinga og neysl-
an hefur aukist hratt á undanförnum árum.
Þannig sýna nýjustu mælingar Rannsókna
og greiningar frá því fyrr á þessu ári að 17%
unglinga í 10. bekk grunnskóla hafa reykt
rafrettur einu sinni eða oftar um ævina og
9% hafa notað tóbakslíki. Einnig sýna mæl-
ingar að allt að 20% unglinga neyta daglega
orkudrykkja sem innihalda koffín.
Þó að telja megi koffín skaðlítið efni hafa
bæði innlendar og erlendar rannsóknir sýnt
að neysla allra þessara efna eykur líkur á
neyslu annarra og sterkari vímuefna einnig.
Forvarnadagurinn
Forvarnadagurinn var haldinn í tíunda sinn í
grunnskólum landsins og í fimmta sinn í framhaldsskólunum þann 2. október síðastliðinn.