Dagrenning - 01.02.1951, Page 12

Dagrenning - 01.02.1951, Page 12
niark sé á takandi, enda röng í þýðingarmikl- um atriðum. Ef þú telur sagnfræðirit Biblí- unnar meira og minna óábyggileg og leggur meira upp úr einhverjum öðrurn riturn, sem ekki hafa síður vafasaman uppruna. Ef þú hafnar spádómsritunum yfirleitt og telur þau óskiljanleg, eða síðari tíma tilbúning og þá markleysu eina. Ef þú segir Sálmana og Orðs- kviðina samtíning helgiljóða og spakmæla frá ýmsurn löndum og ýmsum tímum. Og ef þú loks hafnar öllu því í Nýja Testa- mentinu, sem nútíma texta rannsóknir ekki telja upprunalegt og nútíma sögurann- sóknir geta ekki sannað eftir öðrum heimild- um og telur þær kraftaverkasögur þar, sem ekki samrýmast niðurstöðum nútíma vísinda, tilbúning einan! — Segðu mér: Hvað verða þá mörg blöð eftir í Biblíunni þinni? — En því miður er nú svo komið víða, að fólk hafnar að verulegu leyti Biblíunni og það hlýtur raunar svo að verða meðan fræði- rnenn og kennendur vilja ekki reyna að skilja spádóma hennar, sem eru beinlínis undiistaðan undii allii annani kenningu Biblí unnar. Afleiðingin hefur líka orðið sú, að heiðin- dómurinn flæðir nú yfir löndin í ýmsum myndurn, og þegar sjálfur grundvöllurinn: Guðs orð, er brotinn, þá hrynur hver sú bvgg- ing, sem á þeim grundvelli var reist. Ég hefi lieyrt ýmsa segja. Það skiptir engu þótt vér höfnum spádómunr Gamla Testa- mentisins og raunar Garnla Testamentinu öllu, ef við höldum fast við Jesúm Krist, sem meistara vorn og Drottinn, því hann er grundvöllur kristindómsins. Þetta geta rnenn að vísu sagt, en þegar til raunveruleikans kemur fær þetta ekki staðist af þeirri einföldu ástæðu, að niðunifstaif- semin hættii ekki þar, sem Gamla Testa- mentið endai. Henni er haldið áfrarn og ekki verður sagt að lilutur Nýja Testamentisins sé að neinu leyti betri en Gamla Testament- isins hvað niðurrifsstarfsemina snertir, nerna síður sé. Og ávextir þessarar starfsemi láta ekki standa á sér. Ég skal nefna tvö dæmi, sem bæði eru ný. Á árinu 1949 var gefin úr kennslubók í sögu, sem notuð er við alla skóla í Austur- Þýzkalandi og vafalaust víðar um austanverða Evrópu. Þessari bók var m. a. dreift út meðal unglinga í Berlín og ætluð til náms þar. í henni stendur: „Það er vísindalega sannað, að Kristur hef- ur aldrei verið til. Það finnst ekki eitt orð í sagnfræðiritum samtíðar hans um það, að hann hafi nokkru sinni verið til.“ Og í nýkomnu sænsku tímariti stendur þessi frétt frá Budapest í Ungverjalandi: „Nú um jólin (þ. e. 1950) eru fjórar höfuð- kirkjur borgarinnar lokaðar og á kirkjuhurð- irnar er fest eftirfarandi tilkynning: ..Lokað, vegna þess að enginn Guð ei til.“ Mér kemur ekki til hugar að furða mig á þessum fregnum. Þessi endalok eru eðileg og ahæg í samræmi við þá stefnu, sem h'lgt hef- ur verið og fylgt er enn , og sem hófst með því, að kirkjan og guðfræðirannsóknirnar höfnuðu spádómsritunum. # Ég hef að framan sýnt fram á, að þeir tírnar, sem nú ganga yfir, eru í ýmsum veiga- miklurn atriðum hliðstæðir þeim, sem gengu r'fir ísrael þegar sú þjóð livarf frá hinni los- aralegu lýðræðisskipan dómaratímabilsins \'f- ir til sWrkari skipanar konungsstjómar, og ættu því að vera lokatímar ákveðins tírna- bils eins og þá reyndist. \7ér viturn að h rsti konungur ísraels — Sál konungur — gafst ísrael ekki vel, en hinn næsti, Davíð, gafst því betur, og Guð ávarpaði hann jafnan: „Þjónn minn Davíð.“ Davíð konungur hefur síðan verið talinn urn flest fyrirmynd annarra konunga. Yfir honum hvíldi andi Guðs og náð Guðs var yfir honum og hann var bæði 6 DAGRENNING

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.