Dagrenning - 01.02.1951, Page 40

Dagrenning - 01.02.1951, Page 40
C. O. STADSKLEV: Er stríð víð Rássland ómmflýjanilegt? Grein þessi er útvarpserindi sera C. O. Stadsklev, ritstjóri tímaritsins „Truth and Liberty" í Minneapoiis í Bandarikjunum, flutti 22. janúar 1950. Hún er þýdd úr mánaðarblaðinu Kingdom Voice, maiheftinu 1950. J. G. í Rómverjabréfinu (15. 4.) segir Páll post- uli: „Því að allt það, sem áður er ritað, er ritað oss til uppfræðingar", og í Korinthu- bréfinu (10.—11.): En allt þetta kom yfir þá, (þ. e. ísraelsmenn) sem fyrirboði og það er ritað til viðvörunar oss, sem endir aldanna er kominn til. Þegar talað er um það, sem áður er ritað, er átt við Gamla testamentið, þar sem vér sjá- um skráða atburði, sem fyrir Israelsmenn komu, atburði, san Guð ætlaðist til að yrði okkur, sem endir aldanna er kominn til, að fordæmi, eða til viðvörunar. Vér skulum nú liafa þessa tilvitnuðu Ritn- ingarstaði í huga og athuga sumt af því, sem áður var ritað, og suma af þeim atburðum, sem fyrir þá komu oss til eftirdæmis. Postulinn Júdas segir þetta: „Ég vil þess vegna minna yður á, þó að þér einu sinni vissuð það, hvemig Drottinn bjargaði þjóðinni út úr Egyptalandi, en tortímdi á eft- ir þeim, sem ekki trúðu, (5. v.) Ef vér lesum Gamla testamenntið þá sjá- um vér, að þetta var einmitt það, sem fyrir kom. Og þó að margt sé liægt að segja um vantrúna nú á dögum og eyðileggjandi áhrif hennar, sem hlýtur að verða undanfari ríkis Krists, þá munum vér snúa oss að því að sýna, samkvæmt því, sem áður er ritað, hvers vegna stríð við Rússland er óumflýj- anlegt. Þegar vér lesum Gamla testamenntið sjá- um vér, að hvenær sem ísraelsmenn glevmdu eða brugðust Drottni, þá brást ekki, að Guð vakti upp einhvem óvin eða óvini, sem kvöldu, undirokuðu eða þrælkuðu ísraels- menn þangað til þeir fvlltust iðrun og áköll- uðu Drottinn um lausn. Þessu til sönnunar skuluð þér lesa Dómarabókina. Eg skal tilfæra hér fyrstu sex versin úr 6. kap. Dómarabókarinnar: „Og ísraelsmenn gjörðu það, sem illt var í augum Jahve; þá gaf Jahve þá í hendur Midi- ans í sjö ár. Og Midian varð ísrael vfirsterk- ari. Gjörðu ísrelsmenn sér þá fylgsni á fjöll- um uppi, hella og vígi fyrir Midian. Og þegar ísrael sáði, komu Midianitar, Amalekitar og Austurbyggjar og fóru í móti honum. Og þeir settu herbúðir sínar gegn þeim og eyddu gróðri landsins alla leið til Gaza og skildu enga lifsbjörg eftir í ísrael ekki heldur sauði, naut eða asna. Því að þeir fóru norður þang- að með kvikfénað sinn og tjöld sín, kom slíkur aragrúi af þeim sem engisprettur væri, varð engri tölu komið á þá né úlfalda þeirra og brutust þeir inn í landið til að eyða það. 34 DAGRENNING

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.