Dagrenning - 01.02.1951, Síða 44

Dagrenning - 01.02.1951, Síða 44
JÓNAS GUÐMUNDSSON: ARIÐ 1951. Við áramótin 1950/1951 var ntlitið á vett- vangi heimsstjórnmálanna allt annað en glæsilegt. Kinverjar liöfðu, skömmu fyrir jól- in, ráðist gegn hersveitum Sameinuðu þjóð- anna í Kóreu, og stökkt þeim á flótta niður Kóreuskagann. Manntjón Sameinuðu þjóð- anna varð þó mun minna en áhorfðist um skeið og nú í febrúarbyrjun er flóttinn stöðv- aður og sókn hafin á ný þó hún sé bæði erfið og tvísýn. á að gera Ameríku örugga.“ Hún birtist í Chicago Daily News 12. febr. 1949. Kreml er það vissulega ljóst, að takist að brjóta Bandaríkin á bak aftur hefur mestu hindrun- inni verið rutt úr vegi þeirra til einveldis yfir öllum lieimi. \7ér skulum enn lesa tvö vers úr 38 kap. Esekiels, 16. og 17. „Og þú skalt fara í móti lýð mínum ísrael eins og óveðursský til þess að hylja landið? Á hinum síðustu dögum mun ég leiða þig gegn landi mínu, til þess að þjóðirnar læri að þekkja mig, þegar ég aug- lýsi heilagleik minn á þér, Góg, fyrir augum þeirra. Svo segir Drottinn Jahve: Ert þú sá, er ég talaði um í fyrri daga fyrir munn þjóna minna, spámanna ísraels, er spáðu í þá daga, árum saman, að ég mundi leiða þig móti þeim?“ í báðmn þessum versum s/aum vér þessa merkiJegu staðreynd, svart á Jivítu, að Guð mun Jeiða Rússa gegn oss. Já, stríð við Rússland er óumflýjanlegt! (G. M. þýddi). Bardagarnir í Kóreu og hernaðaraðstæður þar eru þá langt frá því að vera þýðingar- mestu átökin í lieimsstjórnmálunum .Það skiptir ekki verulegu máli þótt styrjaldarátök haldi áfram þar. Kínverjum er áreiðanlega al- veg um megn að lirekja her Bandaríkjanna í sjóinn í Kóreu og Bandaríkjunum mun veita jafn örðugt að hrekja Kínverja aftur úr Kóreu. Mikilvægustu átökin nú er tiíraun Rússa tiJ að sundra Breska heimsveldinu, og meðan Rússar vinna að því munu þeir ekki hyggja á heimsstyrjöld. Það hefir verið sýnt fram á það hvað eftir annað í þessu riti, að Indland lilyti að verða næsti áfanginn i liinni skipulögðu sókn al- heimskommúnismans til heimsyfirráða. Ind- land er stærsta og fólksflesta landið í Breska samveldinu en það er jafnframt langveikasti hlekkur þeirrar ríkjasamsteypu. Indlandi er nauðsynlegt að sæmilega fari á með því og Kína ekki síst nú, eftir að Kína er orðið sterkasta herveldi Aslíu og þarf hvorki að óttast árás frá Rússum né Japön- um. Kína getur því nú beitt öllum áróðri sínum og skipulagðri skemmdarstarfsemi gegn Indlandi og grannríkjum þess, eins og það nú gerir. Aðstaðan innan Sameinuðu þjóðanna til Kína er því næsta alvarleg. Annars vegar eru Bandaríkin, sem nú er ógnað af útþenslu- stefnu kínverskra kommúnista, og nokkrar þjóðir með þeim, sem neitað hafa að viður- kenna Pekingstjórnina, en hins vegar er Ind- land og með því Stóra-Bretland og allmörg samveldislandanna, sem liafa viðurkennt 35 DAGRENNING

x

Dagrenning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.