Morgunblaðið - 23.01.2015, Qupperneq 25
FRÉTTIR 25Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 2015
HDS 5/11 U/UX
110 bör
450 ltr/klst
1x230 volt
Gufudælur
Aflmiklir vinnuþjarkar
HDS 10/20-4 M/MX
30-200 bör
500-1000 ltr/klst
HDS 8/18-4C
30-180 bör
300-800 ltr/klst
Með og án slönguhjóls
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
V E R T U Á Ö R U G G U M S T A Ð
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Strigar, ótal stærðir
frá kr.295 Olíu/Acrýl/Vatnslitasett
12/18/24x12ml
frá kr.895
Acryllitir 75ml
555
Þekjulitir/
Föndurlitir
frá kr.845
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
frá kr.
Allt til listmálunar
Strigar, penslar, olíulitir,
acryllitir, trönur,
pallettur, spaðar,
svampar, lím,
íblöndunarefni,
varnish, þekjulitir,
teikniblokkir,
pappír og arkir
Trönur á gólf
frá kr.7.995
Límbyssur
frá kr.595
Frábært úrval af
Kolibri hágæða-
penslum
Heftibyssur
frá kr.595
Ný
sending af
listavörum
Mikið úrval
af listavörum
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Þær breytingar sem gerðar voru á
framkvæmdahópi um afnám gjald-
eyrishafta og tilkynnt var um í
fyrradag, benda til þess að vægi í
mönnun nefndarinnar hafi verið
jafnað á milli fjármálaráðherra, for-
sætisráðherra og Seðlabankans. Nú
hafa tekið sæti í hópnum tveir
fulltrúar Seðlabankans, þau Ingi-
björg Guðbjartsdóttir og Jón Þ.
Sigurgeirsson, sem jafnframt eru
starfsmenn bankans, en Freyr Her-
mannsson sem einnig starfar hjá
Seðlabankanum og sat í hópnum án
tilnefningar frá yfirstjórn hans, hef-
ur vikið sæti. Bankinn hefur með
þessu í fyrsta sinn formlega að-
komu að skipun í hópinn. Jafnframt
bætist í hópinn einn af helstu ráð-
gjöfum forsætisráðherra, eins og
áður hefur komið fram í Morgun-
blaðinu.
Fram kemur í tilkynningu á vef
fjármálaráðuneytisins að fram-
kvæmdahópurinn hafi nú það hlut-
verk að rýna fyrirliggjandi tillögur
um „breytingar á áætlun um losun
hafta“ og „koma þeirri stefnu sem
mótuð verður í framkvæmd“.
Glen Kim mun eftir sem áður
leiða framkvæmdahópinn en athygli
vekur að eftir hrókeringarnar eru
varaformenn tveir, annars vegar
Benedikt Gíslason og hins vegar
Sigurður Hannesson, en fram kem-
ur í tilkynningunni að sá síðar-
nefndi er skipaður tímabundið í
verkefnið. Sigurður er sem kunnugt
er náinn vinur og ráðgjafi forsætis-
ráðherra, auk þess sem Eiríkur
Svavarsson, sem áfram situr í hópn-
um, hefur tengsl við forsætisráð-
herra í gegnum InDefence hópinn.
Benedikt kom hins vegar til
starfa í Stjórnarráðið sem aðstoð-
armaður fjármálaráðherra, auk
þess sem ráðning Glen Kim var að
frumkvæði fjármálaráðherra, sam-
kvæmt heimildum blaðsins.
Langt ferli
Allt frá því að fjármagnshöft voru
sett á í árslok 2008 hefur það verið
yfirlýst markmið stjórnvalda að
nema þau sem fyrst úr gildi að nýju.
Árið 2013 var starfandi vinnuhópur
íslenska ríkisins, Seðlabanka Evr-
ópu og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
sem vann að því markmiði. Þeirri
vinnu lauk samhliða því hléi sem
gert var á aðildarviðræðum Íslands
og ESB. Í kjölfarið var ráðgjafar-
hópur um afnám hafta skipaður sem
leiddur var af Sigurbirni Þorkels-
syni, fyrrum framkvæmdastjóra
hjá Barclays Capital. Sá hópur lagði
fram tillögur um ýmsar leiðir við af-
nám fjármagnshafta sem núverandi
framkvæmdahópur tók við og hefur
nú unnið tillögur úr, eins og vísað er
til í tilkynningu fjármálaráðuneyt-
isins. Í kjölfar mannabreytinganna
nú mun því vera komið að því að
rýna þær tillögur og hrinda þeim í
framkvæmd. Fjármálaráðherra
vildi ekkert tjá sig um breytingarn-
ar í framkvæmdahópnum þegar eft-
ir því var leitað.
Komið á jafnvægi í
hópi um afnám hafta
Seðlabankinn kemur með tvo nýja fulltrúa í hópinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Haftahópur Seðlabankinn hefur fyrst nú formlega aðkomu að hópnum.
Leynileg áætlun
» Framkvæmdahópnum er
ætlað að fara yfir breytinga-
tillögur við áætlun um afnám
hafta.
» Í hópnum sitja Glen Kim,
formaður, varaformennirnir
Benedikt Gíslason og Sigurður
Hannesson og meðstjórnend-
urnir Eiríkur S. Svavarsson,
Ingibjörg Guðbjartsdóttir og
Jón Þ. Sigurgeirsson.
Evrópski seðlabankinn tilkynnti í
gær að hann hygðist frá og með mars
kaupa skuldabréf á markaði fyrir 60
milljarða evra, jafngildi liðlega 9.200
milljarða króna, í hverjum einasta
mánuði fram til september á næsta
ári, eða þar til bankinn telur að verð-
bólga á evrusvæðinu sé komin á eðli-
lega braut. Tilkynningin leiddi til
þess að hlutabréfaverð tók kipp á
evrópskum mörkuðum og gengi evr-
unnar féll gagnvart dollar.
Beðið hefur verið eftir aðgerðum
Evrópska seðlabankans um nokkurra
mánaða skeið og reyndust þær tölu-
vert stærri í sniðum en gert hafði ver-
ið ráð fyrir. Aðgerðum sem þessum,
sem kallaðar eru magnbundin íhlutun
eða magnaðgerðir (e. quantitative
easing), er ætlað að auka fjármagn í
umferð og örva þannig framleiðslu og
neyslu í hagkerfinu. Seðlabankar, þar
á meðal sá bandaríski, hafa gripið til
slíkra aðgera með árangursríkum
hætti þegar hefðbundin stýritæki,
eins og vaxtalækkun, eru talin hafa
lítil áhrif. Evrópski seðlabankinn til-
kynnti einnig í gær að stýrivextir
bankans yrðu óbreyttir, en þeir eru
nú 0,05%
AFP
Magnbundin íhlutun Mario Draghi seðlabankastjóri greinir frá magn-
aðgerðum Evrópska seðlabankans á blaðamannafundi í Frankfurt í gær.
Risakaup Evrópska
seðlabankans