Morgunblaðið - 23.01.2015, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 2015
Davíð Berndsen er þessa stundina að vinna að sinni þriðjuplötu undir nafninu Berndsen og stefnt er á að hún komi út íhaust. Svo er Davíð á leið til Dúbaí og einnig Þýskalands í
mars til halda tónleika. „Þetta verður spennandi, ég hef aldrei spil-
að í Dúbaí áður en ástæðan fyrir því að við erum að fara að spila þar
er að menn þaðan sáu okkur spila á Airwaves og buðu okkur að
halda tónleika í Dubaí. Svo er ég með útvarpsþætti á Alvarpinu, sem
er hlaðvarpsstöð á netinu. Þeir heita Júpíter og í þáttunum spjalla
ég við tónlistarfólk og er að vinna að mínum þriðja þætti. Akkúrat
núna er ég síðan að undirbúa stóra afmælisveislu sem verður haldin
heima í kvöld.“
Davíð lauk prófum frá hljóðtækniskóla í Hollandi og er núna í
leiðsögunámi í Endurmenntun HÍ en hann byrjaði í því í haust.
„Áhugamálin núna eru því menning og saga Íslands og ferðalög.
Svo hef ég líka mjög gaman af að elda. Við mamma ætlum að elda
eitthvað saman fyrir veisluna í kvöld.“ Foreldrar Davíðs eru Eydís
Mikaelsdóttir og Ellert Friðrik Berndsen, sambýliskona Davíðs er
Guðrún Harðardóttir arkitekt en dóttir þeirra er Högna Davíðs-
dóttir, sem er rúmlega eins og hálfs árs.
Davíð Berndsen er þrítugur í dag
Morgunblaðið/Ernir
Berndsen Davíð er að vinna að sinni þriðju plötu.
Á leið í tónleika-
ferðalag í Dúbaí
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Í dag, 23. janúar,
er Petrína Gísla-
dóttir níræð. Hún
tekur á móti gest-
um laugardaginn
24. janúar í Boð-
anum í Boðaþingi
á milli kl. 15 og 17.
Árnað heilla
90 ára
Reykjavík Sóley Rós Sigurðardóttir
fæddist 8. október 2013. Foreldrar
hennar eru Hólmfríður Guðmunds-
dóttir og Sigurður Aðalgeirsson.
Nýir borgarar
G
uðmunda fæddist í Bol-
ungarvík 23.1. 1920 og
ólst þar upp á Grundum
fyrstu sex árin en faðir
hennar drukknaði, er
hún var á fjórða árinu. Hún flutti með
móður sinni að Látrum í Aðalvík 1926,
fór ásamt móður sinni til systur sinnar
á Ísafirði ári síðar þar sem þær mæðg-
ur bjuggu til 1932 en þá fluttu þær til
Reykjavíkur og bjuggu fyrstu árin við
Smiðjustíg.
Guðmunda fór ung til Kaupmanna-
hafnar og hóf þar söngnám við Kons-
ervatoríið 1939. Aðalkennari hennar
þar var Dóra Sigurðsson prófessor. Þá
stundaði hún nám hjá Kristian Riis í
Kaupmannahöfn, Madame Fourest-
hier í París og hjá Florence Bower í
New York.
Guðmunda söng í óperum, hélt tón-
leika á Íslandi og víða erlendis, söng
t.a.m. við hátíðarmessu á jólum í Hvíta
húsinu í forsetatíð Eisenhowers. Þar
söng hún m.a. Heims um ból á fimm
tungumálum og síðan söng hún þar í
þrjú önnur skipti.
Eldri Íslendingum er Guðmunda
minnisstæð sem Madame Flora í Miðl-
inum eftir Menotti og sem Maddalina í
Guðmunda Elíasdóttir óperusöngkona – 95 ára
Afkomendur Hans Alberts: Liam Hans, Henrik með Sigurey Unu og Hans Albert, Guðmunda, Helen Sif og Milena.
Söng fyrir Eisenhower
Barnabörn Sifjar og Stefáns: Gabriel ,Guðmunda, Mikael, Sara og Hekla Sif.
- með morgunkaffinu
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Hlaupakettir
og talíur
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
Skaft- og keðjutalíur úr áli og stáli
- lyftigeta allt að 9000 kg.
Rafdrifnar keðjutalíur
- lyftigeta allt að 4000 kg.