Morgunblaðið - 23.01.2015, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 23.01.2015, Blaðsíða 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 2015 Ýmislegt Tískuverslunin Smart Grímsbæ/Bústaðavegi Skór 20% afsláttur Sími 588 8050. - vertu vinur TILBOÐ Mjúkir og þægilegir dömuskór úr leðri. Stakar stærðir. TILBOÐSVERÐ: 3.500.- TILBOÐ Vandaðir dömukuldaskór úr mjúku leðri, fóðraðir og með góðan sóla. Stakar stærðir. TILBOÐSVERÐ: 5.500.- Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Teg. 456809 Vandaðir herravetrar- skór úr leðri, sympatex-fóðri og góðum sóla. Litur brúnt. Stærðir: 4-47. Verð: 22.500. Teg. 207802 Vandaðir herravetrar- skór úr leðri, sympatex-fóðri og góðum sóla. Litur brúnt. Stærðir: 41-46. Verð: 23.500. Teg. 416501 Þessir frábæru herra- kuldaskór komnir aftur! Mjúkt leður, gæruskinnsfóður, góður sóli og tveir rennilásar sitthvoru megin. Litur: svart. Stærðir: 40-48 Verð: 20.800. Teg. 408501 Þessir frábæru herra- kuldaskór komnir aftur! Mjúkt leður, gæruskinnsfóður, góður sóli. Litur: svart. Stærðir: 41-46. Verð: 22.400. Teg. 408503 Þessir frábæru herra- kuldaskór komnir aftur! Mjúkt leður, gæruskinnsfóður, góður sóli. Litir: brúnt og svart. Stærðir: 40-48. Verð: 26.900. Komdu og líttu á úrvalið hjá okkur! Sími 551 2070. Opið mán.-fös. 10–18, laugardaga 10–14 Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Erum einnig á Facebook. Smáauglýsingar GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ! MOGGINN Í IPADINN WWW.MBL.IS/MOGGINN/IPAD ✝ Guðbjörg Guð-bjartsdóttir fæddist á Hjarðar- felli í Miklaholts- hreppi 17. október 1920. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 3. janúar 2015. Foreldrar henn- ar voru Guðbjartur Kristjánsson, f. 18.11. 1878, d. 9.9. 1950, og Guðbranda Þorbjörg Guðbrandsdóttir, f. 22.11. 1884, d. 19.8. 1957. Guðbjörg var yngst átta systkina, en þau voru (í ald- ursröð): Alexander, f. 5.3. 1906. d. 21.4. 1968, Guðbrandur, f. 23.4. 1907, d. 10.8. 1994, Kristján, f. 18.1. 1909, d. 10.12. 2000, Sig- ríður Elín, f. 22.2. 1911, d. 15.5. 2002, Þorkell Ágúst, f. 7.10. 1915, d. 9.10. 1981, Gunnar, f. 6.6. 1917. d. 17.3. 1991, Ragnheiður, f. 15.2. 1919, d. 7.8. 2010. og Helga á Ölmu. Áslaug, f. 17.7. 1953, maki Nikulás Hall. Þau eiga Helga Tómas, sambýliskona Hildur Arnardóttir, Þorbjörgu Daphne, maki Heiðar Sumar- liðason, Þorgerði Eddu, sam- býlismaður Mathias Susaas Hal- vorsen og Hildigunni Önnu, unnusti Jörundur Jörundsson. Þorbjörg á Áslaugu Elínu. Barnabörn Guðbjargar eru því níu og langömmubörn níu. Guð- björg og Helgi bjuggu allan sinn búskap í Reykjavík. Guðbjörg var við nám í Hér- aðsskólanum á Laugarvatni vet- urna 1936-7 og 1937-8. Hún var síðan á Húsmæðraskólanum á Laugalandi í Eyjafirði veturinn 1941-42. Guðbjörg helgaði heim- ilinu starfskrafta sína mestan hluta ævinnar en vann ýmis af- leysingastörf á sumrum. Eftir lát eiginmannsins starfaði hún nokkur ár sem gæslukona á Þjóðminjasafninu. Guðbjörg var annáluð hannyrðakona og í fór- um afkomenda hennar má finna ýmsa muni sem hún vann af miklu listfengi og eljusemi. Útför Guðbjargar verður gerð frá Áskirkju í dag, 23. janúar 2015, kl. 13. Hún giftist Helga J. Halldórssyni, f. 17. nóvember 1915, d. 13. október 1987, cand. mag. frá Kjal- vararstöðum í Reykholtsdal 24. febrúar 1945. Helgi og Guðbjörg eign- uðust fjórar dætur. Þær eru: Sigrún, f. 11.5. 1945, maki Ari Arnalds. Þau eiga Þorstein, maki Þórunn Elín Pét- ursdóttir og Guðbjörgu Höllu, maki Kyle Gates. Þorsteinn og Þórunn eiga dæturnar Svanhildi Margréti og Sigrúnu Mörtu. Guðný, f. 2.8. 1947, unnusti Ingi- mundur Gíslason. Þorbjörg, f. 18.5. 1951, maki Jørgen Højgård Jørgensen. Þau eiga Jakob, Önnu, maki Anders Gaden og Helgu, sambýlismaður Durval de Rocha. Jakob á Fríðu og Egil, Anna á Gústaf, Ástu og Konráð Hún Guðbjörg amma okkar var engin venjuleg amma. Óhætt er að segja að hún hafi ekki átt síðri þátt í uppeldi okkar systkinanna en for- eldrarnir. Á hverjum degi kom hún heim á Brúnaveginn og tók á móti okkur þegar við komum heim úr skólanum. Okkar beið ávallt dýrindis hádegisverður og kaffi- tími með heimabakkelsi. Kakósúp- an hennar ömmu var alltaf í sér- stöku uppáhaldi ásamt snúðakökunni. Amma fór með okkur í hinar ýmsu vettvangsferð- ir; í sund, á tónleika, í Viðey, á Ár- bæjarsafn eða Þjóðminjasafnið þar sem hún hafði starfað síðustu ár starfsævinnar. Þá var amma ekki bara góð við okkur barnabörnin heldur líka alla þá fjöldamörgu krakka sem við drógum með okkur heim. Alltaf voru einhver aukabörn með okkur á Brúnaveginum og kom amma fram við alla af sömu hlýjunni. Vin- ir okkar bættust fljótt í ömmu- barnahópinn sem hún sinnti af ein- stakri natni. Hún hjálpaði okkur með heimalærdóminn, kenndi okkur að prjóna og var óhrædd við að segja okkur til, aga og hjálpa okkur öllum að verða betri mann- eskjur. Það sem einkenndi helst heim- sóknir til ömmu á Kleppsveginn var rokið fyrir framan húsið henn- ar, skipin sem hægt var að fylgjast með sigla út úr höfninni, útsýnið yfir Esjuna og Snæfellsnesið, ásamt hlýjunni og matarilminum sem ávallt tók á móti okkur. Amma var alltaf fús til þess að segja okkur sögur frá fyrri tíð, hvort sem það var af fimleikaferð- um til Evrópu, sumarfríi í Amer- íku eða frásagnir af heyskap og ofsaveðrum á Hjarðarfelli á Snæ- fellsnesi þar sem hún ólst upp. Það sem einna ótrúlegast var við ömmu var að hún virtist vera botnlaus brunnur af orku og dugn- aði. Hún synti á hverjum morgni í Laugardalslauginni, fór allra sinna ferða ýmist fótgangandi eða með strætó um allan bæ og gekk í hvaða verk sem var, bæði á sínu eigin heimili og okkar. Svo var hún mikil handavinnukona og við fylgdumst með henni sauma kjóla og dúkkuföt, sauma út og búa til bútasaumsteppi, prjóna óteljandi peysur, sokka og vettlinga, búa til keramikskálar, diska, bolla, blómavasa og mála á postulín. Með öllum þessum fallegu munum get- um við ávallt minnst ömmu. Helgi, Þorbjörg, Þorgerður og Hildigunnur. Mér fannst aldrei sérlega skemmtilegt í leikskóla. Um há- degi tók hins vegar dagurinn nýja og betri stefnu þegar afi sótti mig á gulu Cortinunni og við fórum heim til ömmu Guðbjargar í há- degismat. Maturinn var aldrei af lakari gerðinni, þverskorin ýsa með hömsum, lærissneiðar steikt- ar í raspi eða eitthvert annað góm- sæti. Og alltaf eftirmatur eins og rabarbaragrautur með rjóma- blandi. Ég dafnaði vel en elda- mennska mömmu, sem reyndi að bjóða upp á heldur nútímalegri kost, féll í skuggann. Til tíu ára aldurs var húsið í Vatnsholtinu, þar sem amma og afi bjuggu, miðpunktur tilveru minn- ar. Þrátt fyrir að búa langt í burtu sótti ég skóla þar nálægt og kom heim til ömmu er skóla lauk. Þegar búið var að ganga frá eftir matinn tóku við ýmiss konar leikir og störf. Við skrifborðið í gamla her- berginu hennar Guðnýjar, móður- systur minnar, kenndi amma mér að lesa. Hún kenndi mér einnig að prjóna og margt annað gagnlegt. En amma var líka góður leikfélagi, hún kenndi mér Marías og spilaði við mig löngum stundum en eft- irminnilegast var samt að fara með henni í feluleik. Þó að ég ætti sjálfsagt erfitt með að fela mig svo vel væri við svipaðar aðstæður í dag voru fjöldamargir góðir felu- staðir fyrir barn og netta konu í húsinu hennar ömmu. Við vorum reyndar búin að kortleggja þá nokkuð vel, svo þegar kallað var „hó“ var byrjað á að leita á bestu felustöðunum. Eitt sinn var amma hins vegar búin að fela sig svo rækilega inni í fataskáp, bak við föt að ég fann hana ekki fyrr en í þriðja skiptið sem ég gáði þangað inn! Afi og amma voru sérlega sam- rýnd og taktur lífsins breyttist því mikið hjá ömmu þegar afi dó. Hún flutti úr Vatnsholtinu niður á Kleppsveg, virkið var fallið. Tómið sem afi skildi eftir fyllti amma að nokkru leyti með því leyfa nýjum hópi barnabarna að njóta góðs af umhyggju sinni. Amma var lengst af vel á sig komin líkamlega og frá á fæti. Þegar hún var komin vel á níræðisaldur lét hún sig ekki muna um að ganga af Kleppsveginum niður í miðbæ og aftur til baka. Á tímabili hélt ég að hún yrði eilíf. En því miður er lífið fallvalt og ekki þarf nema litlar þúfur til að stefna lífsins breytist og hlutir þróist á verri veg. Sem betur fer fengu dætur mínar, Svanhildur Margrét og Sigrún Marta, þó að kynnast langömmu og hún þeim. Fyrir það erum við ákaflega þakk- lát. Við munum minnast ömmu með söknuði og þakklæti fyrir allt það sem hún veitti okkur. Blessuð sé minning Guðbjargar Guðbjarts- dóttur. Þorsteinn Arnalds. Gamalt myndaalbúm geymir ljósmynd af tveimur ungum stúlk- um sem sitja brosmildar á vélarhlíf bifreiðar og í baksýn má greina Húsmæðraskólann á Laugalandi í Eyjafirði. Klæðnaður og hár- greiðsla minnir á kvikmynda- stjörnur stríðsáranna. Myndin er tekin vorið 1942 og er af móður minni og mágkonu hennar, föður- systur minni, Guðbjörgu Guð- bjartsdóttur, sem nú er látin á 95. aldursári. Þær voru þá að kveðja skólann sem þær sóttu saman og lærðu þar þau fræði sem þóttu nauðsynleg ungum stúlkum sem vildu mennta sig til húsmæðra- starfs sem beið þeirra flestra. Ég veit fyrir víst að á Laugalandi lærðu mágkonurnar báðar margt nytsamlegt sem gagnaðist þeim á langri ævi og þar unnu þær marga fallega muni sem síðar prýddu heimili þeirra. Áður voru þær sam- tímis við nám í Héraðsskólanum á Laugarvatni þar sem ungt fólk víðsvegar af landinu kynntist og margir bundust vináttu- og tryggðarböndum. Þær voru af þeirri kynslóð sem er að hverfa en ólst upp við lífskjör sem nú til dags þættu ekki boðleg en á æviskeiði þeirra braust þjóðin úr viðjum fá- tæktar og til nútímaþjóðfélags með öllum þeim tækifærum sem nú bjóðast. Ég tel víst að ef Guð- björg frænka mín hefði verið ung í dag hefði hún farið í langskólanám og veist það létt með sínum góðu gáfum og vinnusemi. Þess í stað varð hún fyrirmyndarhúsfreyja sem rak heimili sitt og eiginmanns síns, Helga J. Halldórssonar, af miklum myndarbrag. Heimilið einkenndist af áhuga hjónanna á bókmenntum, leiklist og tónlist og voru hjónin samtaka um að veita dætrum sínum gott uppeldi. Þang- að var gott að koma bæði fyrr og síðar og njóta gestrisni húsráð- enda sem lögðu sig fram um að rækta bönd vináttu og frændsemi. Við hjónin og elstu börnin okkar minnumst þess sérstaklega hvað okkur þótti gott að koma á heimilið í Vatnsholtinu við margvísleg tækifæri þegar við ung að árum höfðum stofnað heimili í höfuð- borginni fjarri foreldrum og systk- inum. Þá var ómetanlegt að eiga góða frænku sem ávallt var reiðubúin til liðsinnis. Guðbjörg var áttunda og yngsta barn foreldra sinna auk tveggja uppeldisbræðra og kveður síðust. Hún bar nafn móðurömmu sinnar Guðbjargar Vigfúsdóttur frá Hraunhöfn í Staðarsveit. Mjög ná- ið var með Guðbjörgu og systrum hennar þeim Elínu og Ragnheiði og hef ég oft heyrt að þær hafi all- ar þótt hver annarri fríðari og glæsilegri stúlkur og undrar það engan sem þekkti þær. Mér er í minni gleði ömmu minnar og ann- ars heimilisfólks á Hjarðarfelli þegar systurnar sem bjuggu í Reykjavík, Elín og Guðbjörg, komu í heimsókn vestur. Oft voru börn þeirra með í för og við tóku gleðidagar okkar barnanna sem geymast í minningunni. Guðbjörg hélt heimili fram yfir nírætt en dvaldi síðustu árin á Hjúkrunarheimilinu Skjóli þar sem móðir mín hafði áður verið sín síðustu ár. Þá sýndi Guðbjörg móður minni einstaka vináttu og ræktarsemi með heimsóknum sín- um. Ég kveð frænku mína með þakklæti fyrir allt gott frá fyrstu tíð og sendi dætrum hennar, tengdasonum og barnabörnum innilegar samúðarkveðjur. Hallgerður Gunnarsdóttir. Við fráfall Guðbjargar verða kynslóðaskipti í Hjarðarfellsætt. Hún fæddist inn í vor sjálfstæð- is þjóðarinnar, blómatíma ung- mennafélagshreyfingarinnar og mikla bjartsýni á að menntun og framfarir myndu leiða íslenska þjóð til hagsældar. Og þetta var líka kynslóð sem lyfti Grettistaki, ólíklegt er að nokkrir eigi eftir að lifa jafnmiklar samfélagsbreyting- ar á einu æviskeiði og þau gerðu. Guja, eins og hún var kölluð, sótti héraðsskóla og húsmæðraskóla. Hún kom til baka, með nýjar upp- skrifir, meðal annars að grænkáls- jafningi, og furðu sló á heimilis- fólkið á Hjarðarfelli, kýrfóður á borðum hjá skólagenginni stúlk- unni. Hjarðarfell var á uppvaxtarár- um Guju menningarheimili. Sím- stöð var á bænum, þjóðvegurinn lagður um bæjarhlaðið áleiðis yfir Kerlingarskarð í Stykkishólm. Húsbóndinn var hreppstjóri og sat á Búnaðarþingi þannig að hús- freyjan stóð oft í ströngu. Í dag væri það kölluð vinnuharka. Ástin vitjaði heimasætu á Hjarðarfelli þegar brúavinnu- flokkur undir stjórn Sigfúsar Tryggva Kristjánssonar brúar- smiðs lagði brýr fyrir Mýrarnar. Flokksstjórinn Sigfús og Sigríður Elín, elsta heimasætan felldu hugi saman. Þau urðu síðar amma mín og afi. Annað sumar fór Sigfús með flokkinn í Borgarfjörð, þá var ráðskonan mágkona hans Guð- björg. Einn af verkamönnunum í flokknum var Helgi J. Halldórsson stúdent og nemi í íslensku við Há- skóla Íslands og Helgi lagði snörur sínar fyrir Guju. Þær systur fluttu því báðar á mölina. Helgi og Guja urðu samtaka hjón og heimili þeirra er í minning- unni einstakt. Þeim fylgdi báðum arfur íslenskar sveitamenningar, henni af Snæfellsnesi, honum úr Borgarfirði og dæturnar fjórar fengu allar bestu hugsanlegu menntun, bóknám, tónlistarnám og kennslu í hannyrðum og heim- ilisrekstri. Ungt frændfólk þeirra beggja utan af landi bjó gjarnan á heimili þeirra hjóna á meðan það stundaði nám í Reykjavík, þannig sýndu Guja og Helgi í verki hvað þau töldu ungu fólki mikilvægt að hafa tækifæri til náms. En það er andrúmsloftið á heimili þeirra, áhuginn sem þau sýndu öllum ungmennum, sem lif- ir. Þau höfðu einlægan áhuga á allri menntun og æfðu okkur í upp- lestri , þannig las ég Sálminn um blómið eftir Þórberg í fyrsta sinn. Gilsbakkaþulan var sungin þegar laufabrauðið var skorið og jólatréð skreytt með íslenska fánanum. En það var ekki bara menning og menntun sem var þeirra aðal. Það var líka hjálpsemi og frænd- semi í orðsins bestu merkingu. Þegar veikindi herjuðu á í stórfjöl- skyldunni kom Guja frænka og hjálpaði til við þvottana og þegar móðir mín varð ekkja 33 ára með tvö börn voru það Guja og Helgi sem buðust til að gæta yngra barnsins – gerast dagforeldrar – og líta líka eftir því eldra. Eldra barnið var ég og gleymi ég aldrei atlæti þeirra á þessum erfiðu tím- um í lífi okkar mæðgna. Konum í Hjarðarfellssætt er lýst sem stórlyndum, jafnvel hof- móðugum. Sé svo eru það allt mannkostir þegar Guja á í hlut. Hún flutti með sér hvar sem hún fór það besta úr aldagamalli ís- lenskri sveitamenningu og lagði þannig sitt af mörkum til að byggja upp íslenskt borgarsam- félag. Ragnheiður Gunnarsdóttir. Guðbjörg Guðbjartsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.