Morgunblaðið - 23.01.2015, Blaðsíða 43
Rigoletto. Auk þess söng Guðmunda
töluvert í útvarp og inn á hljómplötur.
Þá kenndi Guðmunda söng um árabil,
í Söngskólanum í Reykjavík, við
Tónlistarskóla Akraness og í einka-
tímum.
Guðmunda lék í ellefu kvikmynd-
um á sextán ára tímabili.
Guðmunda var um skeið trúnaðar-
maður fyrir söngvara í Félagi ís-
lenskra leikara. Hún er heið-
urslistamaður Alþingis frá 1995.
Árið 1982 kom út ævisaga Guð-
mundu, Lífsjátning, sem Ingólfur
Margeirsson skráði.
Fjölskylda
Guðmunda giftist 24.10. 1943 Hen-
rik Knudsen, f. 10.8. 1918, d. 8.10.
1993, gullsmíðameistara frá Maribo í
Danmörku. Þau bjuggu í Danmörku
til 1945 en síðan ýmist á Íslandi, í
Danmörku eða í New York þar til þau
slitu samvistum.
Börn Guðmundu og Henriks eru
Bergþóra, f. 12.6. 1944, d. 1946; Hans
Albert, f. 1.10. 1947, d. 27.11. 2009,
flugumsjónarmaður i Lúxemborg, var
kvæntur Laufeyju Ármannsdóttur og
eignuðust þau tvö börn, Henrik
Knudsen, f. 25.7. 1984, verkfræði-
nema við Háskólann í Reykjavík, og
Helenu Sif Knudsen, f. 15.11. 1987,
sjúkraliða í Lúxemborg; Sif Knudsen,
f. 2.7. 1950, sjúkraliði, búsett í Reykja-
vík, gift Stefáni Ásgrímssyni, f.
24.7.1946, blaðamanni og ritstjóra
FÍB blaðsins og eru börn þeirra Guð-
mundur Elías, f. 23.1. 1974, listdansari
og danskennari, og Sigurlaug, f. 6.10.
1978, óperusöngkonu.
Langömmubörn Guðmundu eru
átta talsins.
Vorið 1973 giftist Guðmunda
Sverri Kristjánssyni, f. 7.2. 1908, d.
26.2 1976, sagnfræðingi og rithöfundi.
Alsystur Guðmundu: Þorgerður, f.
1922, lést í frumbernsku; Þorgerður
Nanna, f. 23.5. 1923, d. 22.11. 2000,
búsett í Reykjavík.
Hálfsystkini Guðmundu, samfeðra:
Jón Árni sem drukknaði rösklega tví-
tugur; Olga sem lést í bernsku; Svein-
björn sem drukknaði tvítugur; Olga,
nú látin, lengst af búsett í Keflavík;
Elías, lést sem ungbarn; Ágústína, nú
látin, lengst af búsett í Reykjavík;
Jónína, nú látin, var búsett í Hafnar-
firði.
Hálfsystkini Guðmundu, sam-
mæðra, Guðmundsbörn: Tvíburarnir
Guðmundur og Sigurður sem dóu í
frumbernsku; Gunnar Sólberg sem
dó sjö ára; Elísabet sem fórst í flug-
slysi í Búðardal 1947; Kristín Hall-
dóra sem dó í frumbernsku og Gunn-
ar Sólberg sem dó þriggja ára.
Foreldrar Guðmundu voru Elías Þór-
arinn Magnússon, f. 5.11. 1878, d.
7.11. 1923, formaður í Bolungarvík,
og s.k.h., Sigríður Jensdóttir, f. 1.2.
1881, d. 2.1. 1968, húsfreyja.
Úr frændgarði Guðmundu J. Elíasdóttur
Sigríður
Magnúsd
húsfr. á
Siglunesi
Sigurður
Finnbogason
b. á Siglunesi
á Barðaströnd
Sólborg Sigurðardóttir
húsfr. í Jenshúsi
Jens GuðmundurJónsson
b. í Jenshúsi í Neðri-Arnardal
Sigríður Jensdóttir
húsfr. í Bolungarvík og í Rvík
Jón
Halldórsson
b. í Fremri-
Arnardal
Sigríður Magnúsd.
húsfr. á Meiribakka
Jón Einarsson
b. á Meiribakka
Elías Þórarinn Magnússon
form. í Bolungarvík
Þóra Árnadóttir
frá Meiribakka í Skálavík
Jón Guðmundsson
hreppstj. á Hóli
í Bolungarvík, af
Arnardalsætt
Þorgerður
Nanna
Elíasd.
húsfr. í
Rvík
Guðrún
Guðlaugsd.
blaðam. og
rith. í Rvík
Ásgerður
Júníusdóttir
óperusöngkona
Guðlaugur
Júníusson
tónlistarmaður
Móeiður Júníusd.
söngkona og
guðfræðingur
Kristinn
Júníusson
tónlistarmaður
Guðmunda J. Elíasdóttir
Sif Knudsen
sjúkraliði í Rvík.
Sigurlaug
Knudsen
söngkona
Guðmundur
Elías Knudsen
listdansari
Elín Jónsdóttir
húsfr. í Bolungarvík
Magnús Jónsson
húsmaður í Bolungarvík
Einar Jónsson frá
Meiribakka
Jón Einarsson
íshússtjóri á Suðureyri
Sturla Jónsson
hreppstj. og oddviti
í Súgandafirði
Jóhannes Jónsson
kaupfélagsstj. á Suðureyri
Ásgerður
Ólafsdóttir
kennari
Guðjón B.
Ólafsson
forstj. SÍS
Ásgerður
Jensd.
húsfr. í
Hnífsdal
Ólafur
Kjartan
Guðjónsson
verslunarm.
á Akranesi
Ólafur
Kjartan
Sigurðs-
son óperu-
söngvari
Fjölnir
Ólafsson
baritón-
söngvari
Sólborg
Jensdóttir
húsfr. í Rvík
Jakob
Einarsson
tónlistarm. og
þjónn í Rvík
Svanhildur
Jakobsdóttir
söngkona
Anna Mjöll
Ólafsdóttir
söngkona
Ingibjörg
Jónsdóttir
Jón Halldór Jóhannesson
verkstj.á Ísafirði og í Rvík
Ingibjörg Jónsd. skólastjóri
Húsmæðraskólans
Ósk á Ísafirði
Jóhannes Eggertsson
trommu- og sellóleikari
Margrét Eggertsdóttir
söngstjóri
Jón Jónsson b. á
Hálsi í
Ingjaldshólssókn
Helga Jónsd.
húsfr. í Súðavík
Halldóra Jónsd.
húsfr. í Rvík
Guðrún Jónsdóttir
húsfr. í Neðri-Arnardal
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 2015
Ingólfur Arnar fæddist á Háreks-stöðum á Jökuldalsheiði 23.1.1925. Foreldrar hans voru hjón-
in Þóra Þórðardóttir frá Gauks-
stöðum á Jökuldal og Þorkell Björns-
son, verkamaður frá Heyskálum.
Eftirlifandi eiginkona Ingólfs er
Rannveig Jónsdóttir cand. mag. og
eru börn þeirra Jón Arnar, Þorkell
Már bókavörður og Þóra Sigríður,
forstöðumaður Hljóðbókasafns
Íslands.
Ingólfur ólst upp á Seyðisfirði, lauk
prófi frá Alþýðuskólanum á Eiðum,
útskrifaðist frá KÍ, lauk stúdents-
prófi frá MR 1954, BA-prófi í dönsku
og sögu við HÍ og prófi í uppeldis- og
kennslufræði 1959 og stundaði nám í
dönskum bókmenntum og sagnfræði
við Kennaraháskólann í Kaupmanna-
höfn.
Ingólfur kenndi við Melaskólann í
Reykjavík 1948-49, Kópavogsskóla
1949-53, Gagnfræðaskólann í Kópa-
vogi 1954-61, Vogaskóla 1961-65,
Kvennaskólann 1965-73 og var
stundakennari við KÍ 1967-70 og æf-
ingakennari í mannkynssögu á veg-
um heimspekideildar HÍ 1964-73.
Ingólfur var skipaður fyrsti skóla-
meistari Menntaskólans í Kópavogi
1973 og gegndi því starfi í 20 ár, er
hann lét af störfum að eigin ósk.
Ingólfur sat í stjórn Lands-
sambands framhaldsskólakennara,
Félags BA-prófsmanna, Félags há-
skólamenntaðra kennara og formað-
ur þess, sat í fulltrúaráði BHM, var
fyrsti formaður Félags dönskukenn-
ara, sat í flokksstjórn Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna og í ritstjórn
Frjálsrar þjóðar – Nýs lands, í nefnd
um endurskoðun dönskukennslu 1968
og grunnskólanefndinni, 1972-1975,
sat í kosninganefnd fyrir Vigdísi
Finnbogadóttur 1980, var fyrsti for-
maður Seyðfirðingafélagsins í
Reykjavík og sat, ásamt Rannveigu
konu sinni, í stjórn Íbúa- og vina-
félags Hjúkrunarheimilisins Sóltúns.
Hann ritaði sögu Menntaskólans í
Kópavogi, útg. í tveimur bindum 1995
og 1997, og var heiðursfélagi Félags
dönskukennara á Íslandi og Seyðfirð-
ingafélagsins í Reykjavík.
Ingólfur lést 3.1. 2005.
Merkir Íslendingar
Ingólfur A.
Þorkelsson
90 ára
Petrína Salóme Gísladóttir
85 ára
Ásta Sveinsdóttir
Georg Sigurðsson
80 ára
Helga Gunnarsdóttir
Louise Chr. Kjartansson
Ólafur Stephensen
Björnsson
Pálína Pálsdóttir
75 ára
Grétar Róbert Haraldsson
Guðlaug Emilía Eiríksdóttir
Haraldur Friðjónsson
Helga Ólafsdóttir
Helga Sveinsdóttir
70 ára
Bryndís Einarsdóttir
Guðmundur Már
Sigurðsson
Ingibjörg Sveinsdóttir
Ólafía Guðjónsdóttir
Sigurbjörn Bjarnason
Stefán Jörundsson
60 ára
Ármann Eggertsson
Ásgeir Jónas Salómonsson
Ásmundur Jón Jónsson
Bjarghildur F.
Guðmundsdóttir
Dagmar S. Hallgrímsdóttir
Einar Halldórsson
Erla María Ásgeirsdóttir
Grímur Bjarnason
Haukur Friðrik Sigurðsson
Ingibjörg Dóra Hansen
Jóhannes Jónasson
Rúnar Loftsson
Sigurjón Kristmannsson
50 ára
Baldur Úlfar Haraldsson
Hafdís Elín Helgadóttir
Jón Lárus Stefánsson
Wanphen Noiklang
40 ára
Aðalheiður Lára
Guðmundsdóttir
Benedikt Gunnar Ófeigsson
Brynja Emilsdóttir
Daiva Juknaité
Helena Lind
Ragnarsdóttir
Katrín Gróa Sigurðardóttir
Lamia Hmaidi
Linda Þorvaldsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Taru Marjukka Harðarson
30 ára
Árni Sigfús Birgisson
Baldur Jóhannsson
Elena Cobo Garcia
Fríða Björk Birkisdóttir
Katrín Ósk Guðmundsdóttir
Busk
Rúnar Þór Kristjánsson
Stefán Ólafur Stefánsson
Þorsteinn B. Aðalsteinsson
Ævar Gunnar Ævarsson
Til hamingju með daginn
40 ára Guðrún er frá
Neskaupstað en býr á
Egilsstöðum og er hár-
snyrtir þar.
Maki: Magnús Baldur
Kristjánsson, f. 1974,
verkfræðingur hjá Flúor.
Dóttir: Embla Rán, f.
2001, og Bjartur Berg, f.
2003.
Foreldrar: Jóhanna Ax-
elsdóttir, f. 1945, vinnur
hjá Félagsþj. í Neskaup-
stað, og Ísak Valdimars-
son, f. 1940, fv. skipstjóri.
Guðrún Valdís
Ísaksdóttir
40 ára Ólafur ólst upp í
Reykjavík, er þar búsett-
ur, lauk prófi í matreiðslu
frá Hótel- og veitingaskól-
anum og sér nú um
mötuneyti á 365 miðlum.
Maki: Arna Dögg Ketils-
dóttir, f. 1980, nemi.
Dætur: Anika Sól, f. 1998,
og Embla Sif, f. 2002.
Foreldrar: Sólveig Krist-
jánsdóttir, f. 1954, starfar
við lögfræðiinnheimtu, og
Eyvindur Ólafsson, f.
1952, fyrrv. sölumaður.
Ólafur Ragnar
Eyvindsson
30 ára Arna ólst upp í
Reykjavík, er nú búsett í
Hafnarfirði, lauk háskóla-
brú frá Keili 2013 og
starfar hjá Eimskip.
Sonur: Örn Einar, f. 2011.
Bróðir: Magnús Mar Arn-
arson, f. 1993.
Foreldrar: Linda Hrönn
Magnúsdóttir, f. 1959,
læknaritari á röntgen, og
Örn Hjálmarsson, f. 1958,
aðstoðarverslunarstjóri
hjá Útilífi – Glæsibæ. Þau
búa í Reykjavík.
Arna Hrönn
Arnardóttir
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón