Morgunblaðið - 23.01.2015, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 23.01.2015, Qupperneq 52
FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 23. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420 1. Konan lést af mannavöldum 2. Ömurlegasta afmælisgjöf í heimi 3. Fólk stendur skíthrætt á … 4. Eðluæði sprengir ostasöluna »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Vulnicura, nýjasta breiðskífa Bjark- ar sem gefin var út á iTunes í fyrra- dag eftir að ljóst varð að upptök- unum hefði verið lekið á netið, er þegar orðin mest sótta plata iTunes í yfir 30 löndum, þ.á m. Bretlandi, Mexíkó, Brasilíu, Danmörku, Spáni, Suður-Afríku, Svíþjóð og Rússlandi. Vulnicura er nú fáanleg á Íslandi til niðurhals á Tónlist.is. Platan hefur fengið lofsamlega umfjöllun á sam- félagsmiðlum og fjölmiðlum, m.a. dagblöðunum Telegraph og New York Times. Björk segir frá aðdraganda og vinnslu plötunnar á heimasíðu sinni, www.bjork .com. Segir þar m.a. að hún hafi staðið sig að því að skapa verk sem býr yfir sárri sorg. Vulnicura Bjarkar á toppi iTunes-lista  Bandaríska myndlistarkonan Caro- lee Schneemann verður heiðurs- gestur Sequences-myndlistar- hátíðarinnar sem haldin verður 10.-19. apríl. Schneemann er 75 ára og einn af brautryðjendum gjörninga- listar. Hún hóf að fremja gjörninga á fyrri hluta sjöunda áratugarins þegar listformið var nýtt af nálinni og eru verk hennar mörg hver hlaðin sam- félagslegum ádeilum og femínískum gildum og hafa verið sýnd á helstu samtímalistasöfnum heims. Af þeim sem sýna munu á Se- quences má nefna Ed Atkins, Sally O’Reilly, Kris Lem- salu, Anne Haan- ing, Margréti H. Blöndal og Finn- boga Pétursson. Carolee Schneemann gestur Sequences Á laugardag Vestlæg átt, 8-13 m/s, él á stöku stað, kalt í veðri, en gengur í hvassa suðaustanátt með snjókomu eða slyddu. Á sunnudag Suðvestan hvassviðri eða jafnvel stormur, skúrir og síðar él, en heldur hægari og úrkomulítið NA-til. Kólnandi veður. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Heldur hvasst, einkum við suður- og vest- urströndina. Kólnar smám saman, frost 0 til 7 stig síðdegis. VEÐUR Niðurlæging, svartnætti voru tvö fyrstu orðin sem komu upp í hugann þegar flautað var til leiksloka í viðureign Íslendinga og Tékka í Katar í gærkvöldi. Ís- lenska landsliðið verður nú að vinna sterkt lið Egypta á morgun. »2-3 Niðurlæging og svartnætti í Doha Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Stefan Bonneau, sem kom til liðs við Njarðvíkinga um áramótin, ætlar heldur betur að reynast þeim happa- fengur. Hann var áfram í aðal- hlutverki í gærkvöld þegar Njarðvík vann góðan útisigur á ÍR í úrvalsdeildinni. Á Sauð- árkróki varð Tindastóll fyrsta liðið til að leggja KR-inga að velli á þessu keppn- istímabili. »1, 4 Bonneau happafengur og KR tapaði fyrsta leik „Við byrjuðum á að moka holu sem við stukkum ofan í hver á fætur öðrum. Þetta er mjög slæmt hjá okkur og á margan hátt eftir góðan leik gegn Frökkum,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik, þegar hann gekk af leikvelli eftir 11 marka skell, 36:25, fyrir Tékkum á heims- meistaramótinu í handknattleik. »1 Mokuðum holu og stukkum ofan í hana ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Bóndadagurinn er í dag og viðbúið að margir hefji daginn á því að narta í þorramat. Jóhannes Stef- ánsson, þorrakóngur í Múlakaffi í Reykjavík, segir að eftirspurnin bendi í það minnsta sterklega til þess, en eigendur veitingastaðar- ins byrjuðu að bjóða upp á þorra- mat fyrir 50 árum. „Það stefnir í mjög góðan þorra,“ segir hann ákveðinn. Jóhannes segir að vinsældir þorramatar hafi aukist með hverju árinu. „Hægt og bítandi,“ segir hann og vísar meðal annars til fjölmennra þorrablóta margra íþróttafélaga og annarra félaga- samtaka. „Þessi þorrablót eru að verða vinsælustu partí ársins,“ heldur hann áfram og rifjar upp að miðar á þorrablót Stjörnunnar í Garðabæ hafi selst upp á nokkrum mínútum fyrir skömmu. „Fyrirtæki og skólar bjóða upp á þorramat, fólk tekur hann með sér í hesthúsið, í sumarbústaðinn, í jeppaferðir og býður upp á hann í fjölskyldu- og vinaveislum,“ segir veitingamaðurinn. „Ég hef oft sagt og segi enn að þorrinn er mesti félagatími ársins. Þetta er skemmtilegur tími og þorramatur- inn er skemmtileg rammíslensk hefð.“ Yfir 20 rétta veisla Hann segir að heildarmagnið af þorramatnum aukist árlega en misjafnlega eftir tegundum og bendir á að helsta breytingin sé sú að fólk borði meira nýmeti en áð- ur á kostnað súrmetisins. „Samt sem áður hafa hrútspungar og sviðasulta haldið velli og eru alltaf jafnvinsæl,“ segir Jóhannes. Á dæmigerðum þorrabakka eru yfir 20 réttir. Jóhannes segir að sitt sýnist hverjum en fólkið velji sjálft hvað það vilji. „Fólk pantar hjá okkur í trog og fær það sem það vill.“ Hann nefnir sem dæmi að bringukollar séu ekki lengur ofarlega á lista þorra fólks og áhugi á lundaböggum, lifrarpylsu og blóðmör hafi einnig minnkað. „En þetta er samt sem áður alltaf með og er nauðsynlegt.“ Undirbúningur fyrir þorrann í Múlakaffi hefst í byrjun sept- ember. „Við bíðum eftir fyrstu eistunum í suðu í fyrstu viku sept- ember ár hvert og í kjölfarið byrj- um við að laga hrútspungana og sviðasultuna,“ segir Jóhannes. „Það er allt komið ofan í hjá okk- ur 1. október og svo byrjar nær fimm vikna veislan á bóndadag.“ Í þorramatnum í 50 ár  Hrútspungar og sviðasulta halda velli Morgunblaðið/RAX Múlakaffi Egill Guðnason, Jóhannes Stefánsson og Guðjón Harðarson með sýnishorn af þorramatnum. Jóhannes Stefánsson hefur verið viðloðandi eldhúsið í Múlakaffi í Hallarmúla í Reykjavík síðan faðir hans, Stefán Ólafsson, stofnaði fyrirtækið 1962. Þremur árum síðar var fyrst boðið upp á þorramat. „Ég hef verið hér frá því ég man eftir mér, byrjaði sem vikapiltur og tók svo við stjórninni 1989,“ segir Jóhannes, hreykinn af fyrirtækinu, sem hefur alla tíð verið fjölskyldu- fyrirtæki og er alfarið í eigu fjöl- skyldu hans. Allur súrmaturinn er lagaður á staðnum og segir Jóhannes að ein- göngu sé notast við íslenska mjólk- urmysu og hefðbundnar íslenskar aðferðir. Bóndadagurinn, fyrsti dagur þorra, er mikill annadagur en í gær var unnið við að senda þorra- mat í stofnanir og fyrirtæki, sem vilja hafa allt tilbúið á réttum tíma. Fjölskyldufyrirtæki frá byrjun MÚLAKAFFI STOFNAÐ 1962 OG ALLTAF Á SAMA STAÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.