Morgunblaðið - 26.01.2015, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 2 6. J A N Ú A R 2 0 1 5
Stofnað 1913 21. tölublað 103. árgangur
MIKILVÆGAST AÐ
VIÐ LÆRUM AF
ÞVÍ SEM GERÐIST
ÞÆR SÓPA AÐ SÉR
VERÐLAUNUM
Í JIU JITSU
ALLIR LEIKA MÖRG
HLUTVERK Í
GEGNUM LÍFIÐ
EVRÓPUMEISTARAMÓT 10 LEIKLISTARMEÐFERÐ 10VILHJÁLMUR ÁRNASON 26
Vinstriflokkurinn Syriza, með Alexis
Tsipras í broddi fylkingar, er sigur-
vegari þingkosninganna sem fram
fóru í Grikklandi í gær. Antonis
Samaras, núverandi forsætisráð-
herra landsins, hefur þegar játað
ósigur sinn. Þegar búið var að telja
þriðjung atkvæða í gærkvöldi var
Syriza-flokkurinn með 35,4% at-
kvæða en flokkur Samaras með 29%.
„Ég afhendi land sem er hluti af
Evrópusambandinu og evrunni. Með
hagsmuni landsins í huga vona ég að
næsta ríkisstjórn haldi í það sem
áunnist hefur,“ sagði Samaras í
stuttu ávarpi. Syriza hefur heitið því
að endursemja um skuldir landsins
og að hætta aðhaldsaðgerðum. »15
Syriza sig-
urvegari
kosninga
Samaras viður-
kenndi ósigur
AFP
Ósigur Antonis Samaras forsætis-
ráðherra ávarpar fréttamenn.
Morgunblaðið/Golli
Katar Stuðningsmennirnir í stuði.
Íslenska karlalandsliðið í handknatt-
leik þarf að sigra Guðmund Þ. Guð-
mundsson og lærisveina hans í
danska landsliðinu í kvöld til þess að
komast í hóp átta bestu liðanna á
heimsmeistaramótinu í Katar. Þjóð-
irnar mætast í sextán liða úrslitum
keppninnar klukkan 18 en héðan í
frá er útsláttarkeppni þar sem
sigurliðið kemst áfram en tapliðið
heldur heimleiðis.
Óvíst er hvort Aron Kristjánsson,
landsliðsþjálfari Íslands, getur teflt
fram sterkasta liðinu. Það skýrist í
dag hvort Aron Pálmarsson verður
búinn að jafna sig nægilega eftir höf-
uðhöggið sem hann hlaut í leiknum
við Tékka til þess að læknir íslenska
liðsins heimili honum að taka þátt í
viðureigninni í kvöld. Nokkrar líkur
voru taldar á því í gærkvöld. Björg-
vin Páll Gústavsson markvörður var
slappur í gær en reiknað var með að
hann yrði leikfær.
Íslendingarnir sem fylgdu liðinu
til Katar hafa notið lífsins í framandi
landi. „Það er í raun ekki fyrr en
komið er niður í miðbæinn sem það
rennur almennilega upp fyrir manni
að við erum á framandi slóðum. Það
er bara ekki hægt að lýsa því hvern-
ig þessir turnar og háhýsi eru, svona
í nálægð. Myndirnar eru svo póst-
kortalegar en þetta er einstök upp-
lifun, algjörlega sérstakt. Við
ströndina eru flottustu hótelin og
íburðurinn rosalegur; ströndin
framan við hvert hótel er eins og í
einhverri bíómynd og þegar kvöldar
og ljósin kvikna í öllum háhýsum og
turnum, þá bara stendur maður,
snýr sér í hring og svo annan og ann-
an og getur bara sagt: vá,“ segir
Bóas Börkur Bóasson, einn af stuðn-
ingsmönnunum. »6 og Íþróttir
Ekkert nema sigur dugir gegn Dönum
Stuðningsmenn Íslands njóta lífsins í Katar Upplifunin alveg einstök
Í breytingartillögu sem meiri-
hlutinn í borginni lagði fram er lagt
til að hætt verði við smíði 1.000 fer-
metra bílakjallara við Laugaveg
120 þar sem verður 7.000 fermetra
hótel. Þá er einungis gert ráð fyrir
17 stæðum á lóð hótelsins. Minni-
hlutinn í borginni er ósammála til-
lögunni og telur þörf á fleiri bíla-
stæðum á svæðinu. »9
17 bílastæði á lóð
risahótels á Hlemmi
Samkvæmt
nýrri þjónustu-
könnun Capacent
er Garðabær í
fyrsta sæti
sveitarfélaga hér
á landi hvað varð-
ar þjónustu við barnafjölskyldur.
Þetta er meðal þess sem fram kemur
í umfjöllun í greinaflokknum Heim-
sókn á höfuðborgarsvæðið í dag.
Sagt er frá rekstri tveggja ung-
barnaleikskóla, í bænum. Einnig er
rætt við bæjarlistamanninn Soffíu
Sæmundsdóttur myndlistarkonu og
sagt frá starfsemi Hönnunarsafns-
ins. »12-13
Fremstir í þjónustu
við barnafjölskyldur
Þessu fríða pari varð ekki fótaskortur þegar Dans-
íþróttasamband Íslands stóð fyrir Íslandsmeistara-
mótinu í latneskum dönsum um helgina. Mótið þyk-
ir vera eitt það þýðingarmesta hér á landi því með
sigri á mótinu vinna dansarar sér inn keppnisrétt á
heimsmeistaramótum víða um heim. Ljóst er að til
mikils er að vinna og mátti sjá spennuna í andliti
keppenda í Laugardalshöllinni í gær.
Morgunblaðið/Ómar
Dönsuðu af innlifun og eldmóði
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Um 1.200 eru á skrá Blóðbankans yfir
stofnfrumugjafa hér á landi og átta Íslend-
ingar hafa farið úr landi undanfarin ár til að
gefa stofnfrumur, en þörf er á því að fleiri
skrái sig sem gjafa. Í
Blóðbankanum eru
gerðar tilraunir með
stofnfrumur, sem tengj-
ast m.a. því að smíða líf-
færi. Ólafur Eysteinn
Sigurjónson, forstöðu-
maður rannsókna og ný-
sköpunar þar, segir að
ýmsar goðsagnir séu á
kreiki um lækningamátt stofnfrumna.
Allir skráðir stofnfrumugjafar hér á landi
koma úr röðum blóðgjafa Blóðbankans og
er skilyrði að þeir hafi gefið blóð a.m.k.
fimm sinnum og séu á aldrinum 18-40 ára
þegar þeir eru skráðir. Þegar blóðgjafi
ákveður að verða stofnfrumugjafi er gerð
vefjaflokkun með því að taka blóðsýni og
niðurstaðan síðan geymd í stofnfrumu-
gjafaskrá, en Blóðbankinn er í samstarfi við
norsku stofnfrumugjafaskrána. Þeir sem
þurfa á stofnfrumum að halda eru oftast
með illkynja blóðsjúkdóma eða eitlaæxli. Ef
hentugur stofnfrumugjafi finnst ekki innan
fjölskyldu er leitað í skránni að einstaklingi
sem er með sömu vefjaflokkun. Fyrst er
leitað í því landi sem sjúklingurinn býr í;
beri það ekki árangur er gerð leit á heims-
vísu, þ.m.t. í norsku skránni. Sé einhver á
skrá með sama eða mjög líkan vefjaflokk og
sjúklingurinn er þess farið á leit að hann
gefi stofnfrumur.
Hér á landi eru ekki framkvæmdar stofn-
frumugjafir á milli einstaklinga. Þeir Ís-
lendingar sem þurfa á stofnfrumugjöf að
halda fara því utan. »4
Tilraun-
ir með
stofn-
frumur
Um 1.200 manns
á skrá Blóðbankans