Morgunblaðið - 26.01.2015, Page 6

Morgunblaðið - 26.01.2015, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2015 aðeins kíkt í búðir en verslunar- miðstöðvar í Doha þykja ansi íburð- armiklar. „Sumar verslunarmiðstöðvar eru ansi flottar og stórar og íburðurinn mikill. Löggan sést þó hvergi, venju- legir öryggisverðir eru í verslunar- miðstöðvum, maður sér löggubíla á götum sinna einhverjum árekstrum og tilfallandi en aldrei er sýnileg lögga á götum – hvergi. Maður fær aldrei á tilfinninguna að hér séu höft á öllu og boð og bönn. Hótelin eru eins og annars staðar þar sem ég hef komið; fólk labbar léttklætt milli hæða í sundlaugina, í sánu eða í ræktina. Morgunmaturinn er bæði venju- legur og óvenjulegur því köku- magnið er fáránlegt og sem köku- skraut eru gylltar þunnar flögur – afar flott. Þá er hreinlæti fyrsta flokks alls staðar.“ Hann segir að íbúar í borginni Doha séu kurteisir. „Allt fólk sem maður hittir utanhúss á gangi er kurteist, allir taka tillit til hinna, aldrei finnst manni að einhverjir séu varasamir eða hættulegir útlits, enda þjófnaður ekki til, menn hend- ast frekar eftir fólki sem missir eitt- hvað eða gleymir veski á borðinu.“ Morgunblaðið/Golli Áfram Ísland Stuðningsmenn íslenska liðsins. Börkur syngur hátt í treyju númer 9. 20 Íslendingum var boðið út. Íslenskt Hér er Bóas Börkur við skilti Íslands í Doha. Gamli Sjálfur Bogdan Kowalczyk fyrrum landsliðsþjálfari. Rafmagns BMW dótabíll sem kostaði nokkur hundruð þúsund. Potturinn Hluti af íslenska hópnum í pottinum enda vetur í Doha. „Áfram Ísland“ í Katar  Stuðningsmenn Íslands hafa skemmt sér vel í Katar þrátt fyrir misjafnt gengi landsliðsins  Bílstjórarnir brjálaðir  Íburðurinn mikill  Dagurinn byrjar á ferð í ræktina og svo í pottinn Markaður Kíkt var á markað þar sem margt framandi var á boðstólum. SVIÐSLJÓS Benedikt Bóas benedikt@mbl.is „Það er í raun ekki fyrr en komið er niður í miðbæinn sem það rennur al- mennilega upp fyrir manni að við er- um á framandi slóðum. Það er bara ekki hægt að lýsa því hvernig þessir turnar og háhýsi eru, svona í ná- lægð. Myndirnar eru svo póst- kortalegar en þetta er einstök upp- lifun, algjörlega sérstakt. Við ströndina eru flottustu hótelin og íburðurinn rosalegur; ströndin framan við hvert hótel er eins og í einhverri bíómynd og þegar kvöldar og ljósin kvikna í öllum háhýsum og turnum, þá bara stendur maður, snýr sér í hringi og svo annan og annan og getur bara sagt: vá,“ segir Bóas Börkur Bóasson, einn af stuðn- ingsmönnum Íslands á heimsmeist- aramótinu í Katar. Flautukór í umferðinni Börkur er einn af þeim tuttugu sem fengu boðsmiða frá HSÍ fyrir óeigingjarnt starf fyrir sambandið. Hann segir vegakerfið í Katar vera líkt og í Evrópu þótt bílstjórar séu gjarnir á að nota flautuna. „Vega- kerfið er bara svipað og á megin- landinu, hægri umferð, allt venju- legt, nema flestir eru brjálaðir. Það eru oftast þrjár til fimm akreinar en allir eru að stilla sig fyrir næsta hringtorg til að komast út og troðn- ingurinn er ótrúlegur, menn svína rosalega og uppskera flautukór tíu bíla fyrir aftan sig, samt gera þetta allir – og allir jafnbrjálaðir. Ég eig- inlega skil ekki að maður skuli ekki sjá fleiri árekstra. Leigubílar eru margir og eru mjög ódýrir, miðbær-Breiðholt- vegalengd kostar um 650-750 krón- ur. Svo stoppar mælirinn þegar bíll- inn stoppar, tikkar bara á keyrslu.“ Íslensku stuðningsmennirnir hafa Ísland leikur yfirleitt sína leiki klukkan 21 að staðartíma. Börkur segir að stuðningsmenn nýti þá daginn vel. „Það er vaknað snemma og farið í ræktina, svo er morgunmatur, og kaffi á eftir, sem er afskaplega gott. Svo er farið í heita pott- inn, sundlaugina og gufu. Flestar verslanir eru opnaðar kl. 13 svo menn geta leyft sér að hanga í pottinum,“ segir hann og hlær. Milli 11 og 13 fara margir stuðningsmenn af hótelinu annaðhvort í verslunarferð eða göngu- ferð um hverfið, taka leigubíl niður að sjó eða fara í ferð með útsýnisrútunni. „Menn finna afþreyingu sjálfir, leita að mörk- uðum, verslunum og áhugaverðum stöðum. Við erum komin heim á hótel um fjögur og þá er borðað og svo er oft fyrirpartí á einhverju hóteli niðri í bæ sem selur bjór. Þaðan er haldið á leik- inn.“ Hann segir annan möguleika vera í stöðunni; að fara með leigubíl og horfa á báða leikina, því það er alltaf leikur líka kl. 19. „Eftir leik fer rútan heim á hótel 30 mínútum eftir að leik lýkur, þá er klukkan 11:15 til 11.30 og þá er farið beint í kvöldmat. Eftir mat fara menn ýmist í rúmið eða finna sér félagsskap og spjalla og horfa á endursýningar annarra leikja.“ Dagskráin á frídegi er ögn öðruvísi þótt hann byrji eins, með æfingu að morgni og heimsókn í pottinn. „Eftir hádegi eru svo ferðir og labbitúrar um allt, sumir hafa komist á ströndina og tekið lit en mest eru menn þó að skoða og labba. Ekki hægt að gera kjarakaup í Katar Verðlagið hér er ekkert sérstakt, hér er ódýr- ara en heima, en ekki hægt að gera nein kjara- kaup. Skór, föt og merkjavara er ansi dýr, en raf- tæki eru mun ódýrari en heima.“ Hann segir að stuðningsmennirnir séu nú farn- ir að kynnast landinu og hugsi stórt fyrir næstu ferð. „Menn eru nú farnir að skoða stærri ferðir eins og safaríferðir, í boði eru ferðir á úlföldum, fjórhjólum, jeppum og hægt að vera stutt og lengi – jafnvel allan daginn. Það er rándýrt, kam- eldýrareið kostar yfir 20 þúsund krónur stysta ferð.“ Slappað af á leikdegi 20. febrúar vinnur heppinn áskrifandi Morgunblaðsins Volkswagen e-Golf. Rafmagnað samband við áskrife dur. Þann 20. febrúar kemst einn heppinn áskrifandi Morgunblaðsins í samband við Volkswagen e-Golf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.