Morgunblaðið - 26.01.2015, Síða 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2015
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Þ
etta hefur gengið stór-
kostlega vel. Fyrsti dag-
urinn var alveg frábær
þá fengu stelpurnar gull
og silfur. Svo komu þrjú
gull hjá stelpunum til viðbótar eftir
það. Heilt yfir þá höfum við staðið
okkur með eindæmum vel. Árang-
urinn hefur komið okkur öllum rosa-
lega á óvart því ég held að við höf-
um ekki gert okkur grein fyrir
hvers sterk við erum,“ segir Daði
Steinn Brynjarsson um gengi Ís-
lendinga á Evrópumeistaramóti í
Brasilísku Jiu Jitsu í Lissabon.
Mótinu lauk í gær.
Íslendingarnir sem kepptu
voru 22 talsins og þeir hlutu fimm
gull, tvenn silfurverðlaun og þrjú
brons. Tekið skal fram að stelp-
urnar sem kepptu fengu öll gullin
fimm. „Stelpurnar hafa algjörlega
tekið yfir þessa ferð,“ segir Daði
Steinn glaður í bragði en bendir á
að strákarnir hafi einnig staðið sig
vel og komist á pall.
Hann segir árangurinn hafi
komið flestum mikið á óvart, eink-
um keppendunum. Blaðamaður
Morgunblaðsins getur tekið undir
þau orð því gullhafarnir; Sunna
Rannveig Davíðsdóttir og Ólöf
Embla Kristinsdóttir, létu þau orð
falla í viðtali að þær hefðu hvorugar
átt von á sigri.
Erum á réttri braut
„Árangur liðsins sýnir að við
erum á réttri braut. Það getur verið
erfitt að átta sig á hvar maður
stendur í sportinu þar sem við búum
á litla Íslandi og eigum erfitt með að
bera okkur saman við aðra þar sem
færri keppinautar eru til að takast á
við. Við náum að gera það á svona
mótum og erum mjög sátt við út-
komuna,“ segir Daði Steinn og
bendir á að þeir sem þekkja til
glímumenningarinnar sjái að þetta
er stórkostlegur árangur.
Hann vonast til að árangur
mótsins hafi þau áhrif á keppendur
að þeir haldi áfram að hafa trú á sér
og að þeir geti náð virkilega langt í
sinni grein.
Daði Steinn er varaformaður
BJÍ sem er samband þeirra félaga
sem æfa Brasilískt Jiu Jitsu og/eða
uppgjafarglímu. Hann er einnig yf-
irþjálfari VBC sem er íþróttafélag í
Kópavogi.
Hann finnur fyrir auknum
áhuga á sportinu hér heima og er-
lendis. Ekki eru nema um 10 ár frá
því farið var að stunda BJJ á Ís-
landi. Evrópumeistaramótið í Lissa-
bon er það stærsta sem haldið hefur
verið, skráðir keppendur voru 3.400
talsins til samanburðar við 2.300 í
fyrra. Í Bandaríkjunum hafa verið
haldin stór mót í BJJ og hafa kepp-
endur verið flestir um 3.000 talsins.
Margir sem stunda þessa íþrótt
keppa einnig í blandaðri bardaga-
list, MMA. „Við njótum góðs af því
að MMA er ákaflega vinsælt sport í
dag og þetta tvinnast saman,“ segir
Daði Steinn.
Sigrún Helga Lund frá Mjölni
vann tvöfalt gull, bæði í flokki
fjólublábeltinga -74 kg 30 ára og yfir
og í opnum flokki. Sunna Rannveig
Davíðsdóttir frá Mjölni vann gull í
flokki blábelta undir 64 kg 30 ára og
yfir auk þess að fá silfur í opnum
flokki. Ása Guðmundsdóttir frá
Fenri fékk gull í flokki blábeltinga
yfir 79 kg 30 ára og yfir auk þess að
vinna sér inn brons í opnum flokki.
Sigursælar og
sterkar stúlkur
Íslensku keppendurnir á Evrópumeistaramótinu í
Lissabon í Brasilísku Jiu Jitsu hafa sópað að sér verð-
launum. Kvenpeningurinn hefur þó séð um að vinna
til gullverðlauna en samtals eru þau fimm.
Ljósmynd/BJJ Samband Íslands
Tvöfalt gull Sigrún Helga Lund frá Mjölni vann tvöfalt gull, bæði í flokki fjólublábeltinga -74 kg
30 ára og yfir og í opnum flokki. Hún var að vonum kampakát með tvöfaldan sigur í Lissabon.
Ljósmynd/BJJ Samband Íslands
Gull og silfur Sunna Rannveig Davíðsdóttir frá Mjölni vann gull í flokki blábelta undir 64 kg í
flokki 30 ára eldri og yfir, auk þess að fá silfur í opnum flokki. Hér er hún á palli í Lissabon.
Ljósmynd/BJJ Samband Íslands
Á palli Ása Guðmundsdóttir.
www.volkswagen.is
Caddy City er enn einfaldari og hagkvæmari útfærsla af
Volkswagen Caddy, sniðin að þörfum þeirra sem vilja traustan
vinnufélaga til að létta sér lífið við dagleg störf. City er viðbót í
sendibílalínu Volkswagen Caddy.
Það er engin tilviljun að Volkswagen Caddy hefur árum saman
verið mest seldi atvinnubíllinn á Íslandi. Með tilkomu City er enn
auðveldara að bætast í hóp hæstánægðra Volkswagen-eigenda.
Caddy City kostar aðeins frá
2.630.000 kr.
(2.120.968 kr. án vsk)
Caddy með nýju sniði
Atvinnubílar
Söluaðilar: HEKLA Reykjavík · Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
Vinsælasti atvinnubíllá Íslandi síðastliðin ár!