Morgunblaðið - 26.01.2015, Síða 12

Morgunblaðið - 26.01.2015, Síða 12
Draghálsi 14 - 16 110 Reykjavík Sími 4 12 12 00 www.isleifur.is Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Það er frábært að vinna myndlist hér í Garðabæ, ég get ekki sagt annað. Ég bý hérna Bessastaða- megin á nesinu, maður er með sjó- inn við túnfótinn. Hér er mikil nátt- úrufegurð og fuglasöngur á vorin, mjög heillandi svæði,“ segir Soffía Sæmundsdóttir myndlistarkona en hún er núverandi bæjarlistamaður Garðabæjar. „Það er mikil viðurkenning að vera bæjarlistamaður Garðabæjar. Þetta eru tilnefningar frá fólki og félagasamtökum, maður sækir ekki um. Þetta er því viðurkenning sem kemur á óvart og er mjög skemmti- leg,“ segir hún. Virk í íslensku myndlistarlífi Allt frá árinu 1992 hefur Garðabær veitt styrk til listamanns eða listamanna. Sá aðili sem fyrir valinu verður fær þar með þann heiður að vera nefndur bæjar- listamaður Garðabæjar. Í tilkynn- ingu Garðabæjar við útnefningu Soffíu í maí á síðasta ári segir með- al annars að hún hafi verið einkar virk í íslensku myndlistarlífi und- anfarinn áratug. „Hún stundaði myndlistarnám í grafíkdeild Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands 1987-1991 og lauk Mastersgráðu í málun (MFA) frá Mills College í Oakland, Kaliforníu 2001-2003. Hún hefur haldið fjöl- margar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum heima og er- lendis. Verk hennar hafa verið sýnd víða, m.a. í Evrópu og Norður- Ameríku.“ Myndlistarkona með  Segir gott að vinna að myndlist í Garðabæ GARÐABÆR H EI MS ÓKN Á HÖFUÐBO R G A R S V Æ Ð IÐ 2015 Garðabær er sjötta stærsta sveit- arfélag landsins. Þar búa rúmlega fjórtán þúsund manns. Bærinn nær yfir stórt landsvæði og á mikil byggingarlönd og ósnerta náttúru. Það sem öðru fremur mótar lands- lagið er hið mikla hraun sem runnið hefur úr Búrfelli og kallast einu nafni Búrfellshraun. Byggð hefur verið á svæðinu frá landnámstíð en sveitarfélagið varð til árið 1878 þegar Álftaneshreppi var skipt í tvo hluta. Hét það upp- haflega Garðahreppur og hafði Hafnarfjörð innan sinna marka fyrstu þrjá áratugina. Eftir að hreppurinn fékk kaupstaðarrétt- indi 1. janúar 1976 hefur hann verið nefndur Garðabær. Árið 2012 var Álftanes sameinað Garða- bæ. Fyrsta skipulag Garðahrepps, sem miðaði að því að þar risi þétt- býli, er frá árinu 1955, og náði það til svæðis beggja vegna Hafn- arfjarðarvegar, frá Arnarneslæk að Engidal. Samkvæmt skipulag- inu reis byggð á Hraunsholti og í Silfurtúni. Árið 1960 fékk hrepp- urinn löggildingu sem versl- unarstaður. Er sjötta stærsta sveitarfélagið Rúmlega 14 þúsund búa í Garðabæ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Það er mikilvægt að foreldrum standi til boða fjölbreytt þjónusta þegar fæðingarorlofi lýkur. Best væri ef ríkið kæmi til móts við sveit- arfélög og fjölskyldur með því að lengja fæðingarorlofið í 12 mánuði,“ segir Viktoría Jensdóttir, formaður leikskólanefndar Garðabæjar. Í Garðabæ eru ungbarnaleik- skólarnir Litlu-Ásar, rekinn af Hjallastefnunni og Sunnuhvoll, skóli á vegum sveitarfélagsins þar sem lögð er áherslu á heilbrigði og vel- ferð. Þessir skólar taka við alls 80 ungum börnum. Einnig taka Holta- kot og Krakkakot við börnum frá eins árs aldri. 170 börn í leikskóla og gæslu Ungbarnaleikskólar hafa verið reknir í Garðabæ frá 2008. Þörfin er mikil. Nú eru um 100 börn í Garða- bæ, á aldrinum 12 til 24 mánaða, í leikskólum en um 70 hjá dagfor- eldrum. „Stefnan í Garðabæ er sú að bjóða fjölskyldum val milli þess að fara með börnin sín til dagforeldra eða í ungbarnaleikskóla þegar fæð- ingarorlofi lýkur. Í bænum starfa 11 dagforeldrar sem eru með um 50 börn og við höfum samið við þá – með þeim útgangspunkti að foreldrar greiða sama gjald og í leikskóla Einn- ig geta foreldrar leitað til dagfor- eldra í öðrum sveitarfélögum,“ segir Viktoría Í umræðum á dögunum um sam- þættingu fjölskyldulífs og atvinnu- þátttöku var hamrað á mikilvægi þess að þegar fæðingarorlofi sleppti gætu foreldrar komið börnum sínum Morgunblaðið/Ómar Framtíðin Börnin komast eins árs inn á leikskólana, en með því er komið til móts við þarfir foreldra og atvinnulífs. Reynslan af starfi ung- barnaleikskóla er góð  Börn komast að 12 mánaða gömul  Fæðingarorlof verði lengt MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2015

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.