Morgunblaðið - 26.01.2015, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 26.01.2015, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2015 Frá og með 1. mars munu Oddi ehf., OPM ehf. og Kvos ehf. sameinast undir nafni Odda. Þorgeir Baldurs- son, forstjóri Kvosar, verður for- stjóri sameinaðs fyrirtækis. Í dag er Kvos móðurfyrirtæki bæði Odda og OPM. Oddi hefur haft á sinni könnu sölustarfsemi, hönn- un og því um líkt en OPM haldið ut- an um þrjár framleiðslueiningar. Kassaverksmiðjuna við Köllunar- klettsveg (gömlu Kassagerðina), prentsmiðjuna í Höfðabakka og plastframleiðsluna við Fossháls. Þessi skipting rekstrarins í að- skildar einingar er arfleifð frá þeim tíma þegar fyrirtækið var umsvifa- mikið erlendis og er samruninn nú til þess gerður að einfalda starf- semina á ný. ai@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Prentverk Úr prentsmiðju Odda, þar sem oft gengur mikið á. Oddi, Kvos og OPM sameinast Bandaríska gagnavörslufyrirtækið Box Inc. fór vel af stað fyrsta daginn eftir skráningu á hlutabréfamarkað vestanhafs. Viðskiptablaðið greindi frá fyrir- hugaðri skráningu og hlutafjárútboði fyrir tveimur vikum. Box býður fyr- irtækjum og stofnunum upp á vörslu gagna í skýinu og er stjórnað af hin- um bráðunga Aaron Levie. Fréttastofa Bloomberg greinir frá að hlutir í fyrirtækinu hafi hækkað um 66% eftir skráningu. Upphafsverð var 14 dalir á hlut í byrjun föstudags- ins en var komið í 23,23 dali við lokun. Hlutafjárútboðið aflaði Box sam- tals um 175 milljónum dala, jafnvirði um 23,6 milljarða króna. Bloomberg segir aukna hörku vera að færast í gagnavörslugeirann og því spáð að þessi geiri markaðarins stækki um 23% árlega á næstu árum. Er reiknað með að velta gagnavörslu- fyrirtækja verði um 2,3 milljarðar dala árið 2018. Wall Street Jounal segir árangur Box á markaðinum í New York líkleg- an til að blása öðrum ungum fyrir- tækjum í Sílíkondal kjark í brjóst og ýta undir fleiri skráningar á árinu. ai@mbl.is EPA Hækkun Aaron Levie, vinstra meg- in við miðju, kampakátur á gólfi NYSE. Box Inc. fór vel af stað. Box byrjar vel á markaði  Gæti blásið öðrum fyrirtækj- um von í brjóst Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Það er misskilningur að samfélagsábyrgð fyrirtækja snúist um aukin útgjöld og gjafir. Þvert á móti geti sam- félagsábyrgð skilað aukinni í hagkvæmni í rekstri og ver- ið fjárfesting í viðskiptavild til langs tíma. Þetta segir Hildur Hauksdóttir, ráðgjafi hjá RoadMap ehf, en hún verður meðal fyrirlesara á ráðstefnu Festu og Samtaka atvinnulífsins um samfélagsábyrgð sem haldin verður á fimmtudag. Yfirskrift ráðstefnunnar er Árang- ur og ábyrg fyrirtæki: Samfélagsábyrgð hjá íslenskum fyrirtækjum. Fer ráðstefnan fram í Silfurbergi Hörpu og stendur yfir frá kl. 8.30 til 12. Auk Hildar taka til máls Anna Björk Bjarnadóttir frá Expectus, Þórdís J. Sigurðardótt- ir frá Capacent og Hulda Steingrímsdóttir hjá Alta. Til viðbótar munu Birna Einarsdóttir bankastjóri Ís- landsbanka, Eggert Benedikt Guðmundsson forstjóri N1, Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda, Hrönn Margrét Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Ankra og Bragi Smith, framkvæmdastjóri Lín Design, gefa dæmi um innleiðingu og áhrif samfélagsábyrgðarstefnu í fyrirtækjum sínum. Samofið öllum verkum Að sögn Hildar verður enn vart við misskilning um í hverju samfélagsábyrgð felst. „Í raun held ég að best sé að lýsa samfélagsábyrgð einfaldlega sem hluta af því að vera vel rekið fyrirtæki. Samfélagsábyrgð snýst um að fyrirtæki skilji áhrif starfseminnar á samfélag, efnahags- líf og umhverfi og setji sér markmið sem miða að því að lágmarka neikvæðu áhrifin en hámarka þau jákvæðu. Samfélagsábyrgð á að vera fléttuð inn í alla stefnu og menningu fyrirtækja og m.a. fela í sér ábyrgð gagnvart starfsmönnum, viðskiptavinum, hluthöfum og öðrum hagsmunaaðilum.“ Ef rétt er á spilunum haldið segir Hildur að skýr stefna um samfélagsábyrgð geti verið verðmætt stjórn- unartæki og m.a. hjálpað til við áhættustýringu, enda feli samfélagsábyrgð í sér að horfa fram á veginn og hugsa til langtímaávinnings og -áhættu, frekar en að einblína á skammtímahagnað. Hún segir að stjórnendur sem leggja ofuráherslu á hagnað til skemmri tíma geti í raun skaðast til lengri tíma því neytendur eru upplýstari en áður og mikil vakn- ing er í samfélaginu um að beina viðskiptum til þeirra sem gera samfélaginu gott en frá þeim sem valda því skaða. „Undanfarin ár höfum við séð mörg dæmi um að fólk sniðgangi vörur útaf lélegri frammistöðu, eins og þegar Greenpeace átti í árangursríkri herferð gegn tískuverslanakeðjunni Zara vegna notkunar eiturefna í framleiðslukeðjunni. Þá er ekki langt síðan Nike átti í töluverðum vandræðum þegar komst í hámæli að mann- réttindabrot ættu sér stað í verksmiðjum sem framleiddu fyrir íþróttavörurisann.“ Minni sóun verndar umhverfið Jákvæðu áhrifin á reksturinn geta verið hvað skjótust og greinilegust þegar kemur að umhverfisáhrifum. „Oft er stærsta áskorunin að sjá fjárhagslega ávinninginn af bættu orðspori og aukinni tryggð viðskiptavina, starfs- manna o.fl. en þegar kemur að umhverfishliðinni snýst bætt stefna oft um að lágmarka sóun og bæta efnisnotk- un. Gott dæmi um þetta er hraðsendingafyrirtækið UPS sem með hugvitsamlegum hætti fann út að með þróun á nýju leiðsögukerfi fyrir bíla sína, þar sem vinstribeygjum var fækkað mjög, tókst þeim að draga úr eldsneytisnotk- un. Yfir allan bílaflota fyrirtækisins sparar þetta 32 millj- ón lítra af bensíni á ári, sem bæði þýðir minni umhverfis- áhrif en líka töluverða hagræðingu í rekstri.“ Samfélagsábyrgð snýst um langtímaávinning  Ráðstefna Festu og SA um samfélagsábyrgð á fimmtudag Morgunblaðið/Eggert Græða Hildur Hauksdóttir segir fyrirtæki geta haft ávinning af að móta eigin áhrif á samfélag, umhverfi og hagkerfi m.a. með tryggari kúnnum. Stjórnvöld í Síerra Leóne undirrituðu á föstudag sam- starfssamning við Aurora velgerðarsjóð og Neptune Holdings um rekstur fjög- urra löndunar- og fisk- vinnslustöðva. Stöðvarnar voru byggðar árið 2012 af stjórnvöldum og African Development Fund (ADF) með það fyrir augum að efla sjávarútveg í landinu. Í tilkynningu frá Aurora seg- ir að þrátt fyrir góð fyrirheit hafi löndunar- og fiskvinnslustöðvarnar staðið ónotaðar, einkum vegna skorts á þekkingu á slíkum rekstri. Fræða og veiða Til að byrja með leggur Aurora eina milljón dala til verkefnisins og gildir samningurinn til tíu ára. Fara löndunar- og fiskvinnslustöðvarnar í fulla notkun og verður lögð áhersla á að efla þekkingu fiskimanna á svæð- inu á veiðiaðferðum, vinnslu sjávar- fangs og dreifingu á markað. Verður leiða leitað til að hagnýta fiskiauðlindir landsins á sem sjálf- bærastan hátt og um leið auka virði aflans. Standa vonir til að auka megi framboð á fiski fyrir íbúa Síerra Leóne sem í dag er eitt fátækasta land heims. Verkefnið er svokallað Public-Pri- vate-Partnership (PPP) þar sem stjórnvöld, einkaframtak og velgerð- arstarf leggjast á eitt um þróun, fjár- festingu og nýsköpun. Er þetta fyrsti PPP-samningurinn sem stjórnvöld í Síerra Leóne gera, að því er greint er frá í tilkynningu. Fjögur hundruð starfsmenn Fyrirhugað er að heimamenn taki sjálfir við rekstri löndunarstöðvanna þegar samningstímanum er lokið og ráðgert að þar starfi samtals um fjögurhundruð manns. Aðstandend- ur Aurora vona að verkefnið geti orðið fyrirmynd annarra verkefna til eflingar atvinnulífs í landinu. Aurora velgerðarsjóður var settur á laggirnar árið 2007 af hjónunum Ólafi Ólafssyni stjórnarformanni Samherja og Ingibjörgu Kristjáns- dóttur landslagsarkitekt. Var stofnfé sjóðsins einn milljarður króna. Síðan þá hefur sjóðurinn styrkt fjölda verkefna, bæði innanlands og er- lendis. ai@mbl.is Aurora og Neptune Holding taka við fisk- vinnslu í Síerra Leóne Streð Bátarnr eru fagrir en skortur er á verkþekkingu í sjávarútvegi Síerra Leóne. Ljósmynd / Aurora

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.