Morgunblaðið - 26.01.2015, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 26.01.2015, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2015 Góður drengur er genginn. Bennó, æskuvinur minn, er far- inn yfir fljótið mikla. Hugurinn leitar til baka, – langt til baka. Eiginlega áttum við heima hlið við hlið, Bennó í Gunnarssund- inu, ég á Austurgötunni. Við gengum snemma í fóst- bræðralag og var Bennó góður fóstbróðir – öðlingur í allri skap- gerð, seinþreyttur til vandræða, hugrakkur, kraftmikill og alltaf sanngjarn. Við uppátektasamir eins og stráka er svosem vani, stofnuðum fótboltafélag, nokkur leynifélög, stunduðum dúfna- og kanínu- rækt,veiddum kola við bryggj- urnar og seldum aflann til bræðslu í Lýsi og mjöli hf. Við grófum upp hálfa Hvaleyr- ina í leit að kopar og eir sem Bretar skildu eftir sig. Urðum snemma áhrifamiklir í Austurgötuhernum. Smíðuðum sverð og skildi og ýmis önnur Benedikt Ernest Rutherford ✝ Benedikt(Bennó) Ernest Rutherford fæddist 4. júlí 1943. Hann lést 18. janúar 2015. Eftirlifandi eig- inkona hans er Sig- ríður Ingveldur Sigurðardóttir, f. 7. desember 1927. Foreldrar Bene- dikts voru Ernest Rutherford og Guðrún Guðjóns- dóttir. Útförin fer fram frá Fríkirkj- uni í Hafnarfirði í dag, 26. jan- úar 2015, kl. 11. vopn og áttum í stöðugum erjum við suður- og vesturbæ- inga. Tarzan, Gunnar á Hlíðarenda, Roy Rogers og fleiri slík- ir voru okkar fyrir- myndir. Svo einn daginn fórum við til kirkju og urðum fermdir. Fyrir peningana sem okkur voru þá gefnir keypt- um við hjól. Tvö dökkrauð Con- visabell-fullorðinsreiðhjól. Hví- líkar gersemar! Saman hjóluðum við svo inn í framtíðina – upp í Flensborg, út og suður, og svo bara áfram inn í lífið. Svo fór Bennó á sjóinn og þá skildi leiðir um hríð. Kominn í land unnum við saman við að byggja hús og laga hús þar til ég flutti með minni fjölskyldu til út- landa. Vinátta okkar og fóstbræðra- lag voru þó alltaf í fullu gildi þeg- ar við hittumst á því tímabili og svo mun áfram verða þótt breitt fljót skilji okkur nú að um stund- arsakir. Vertu sæll að sinni. Þinn vinur, Þórður Ben. Vitur maður hefur sagt: „Góðir nágrannar eru náðargjöf Guðs.“ Þeirra sanninda fékk æskuheim- ili mitt í húsinu Austurgötu 25 að njóta með því að eiga sem næstu nágranna þá ágætu fjölskyldu sem bjó í húsinu Gunnarssundi 7, en þar átti Benedikt, oftast kall- aður Bennó, heima alla tíð. – Afi og amma Bennó, Guðjón og El-  Fleiri minningargreinar um Benedikt Ernest Ruther- ford bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ínborg, önnuðust uppeldi fóstur- sonar síns af ástríki og á kristi- legum grundvelli, en afi hans las daglega úr gömlu bænabókinni, sem móðir hans hafði átt. Fékk því Bennó haldgott veganesti. Við Bennó vorum mjög góðir vinir allt frá bernskudögum hans. Minnist ég þess sérstaklega, að hann var í hópi ungra drengja í næsta nágrenni, sem biðu eftir því fyrir utan verslun föður míns að fá að sitja í fallegri sendiferða- bifreið sem hann átti og ég ók. Þessar ökuferðir voru mér og drengjunum sannur gleðigjafi, enda var ekki sparað að syngja saman. Bennó var dagfarsprúður, afar hjálpsamur, glaðsinna og hafði þá lífsskoðun að vilja bæta hag fólks, sem við bágust kjör áttu að búa. Hann var hæglátur í allri fram- göngu og alltaf notalegt að eiga við hann spjall á götum úti. Þá hafði Bennó yndi af góðri tónlist og lék sjálfur á píanó, sem afi hans hafði gefið honum, og án þess að styðjast við nótur og spil- aði vel eftir eyranu. Að eigin hvöt fór Bennó í fyrsta skipti í heimsókn til hálf- systkina sinna í Bandaríkjunum, sem tóku fagnandi á móti honum. Faðir hans, Ernie Rutherford, var þá látinn, en Bennó átti fal- legan minjagrip um hann. Guð- rún Guðjónsdóttir, móðir Bennó, hafði kynnst föður hans á stríðs- árunum. – Síðar fór Bennó nokkrar ferðir til Bandaríkjanna til dvalar hjá systur sinni Rann- veigu, sem þá bjó þar, en milli þeirra var mikill kærleikur. Á yngri árum var Bennó togarasjómaður, en síðan vann hann við smíðar og hafði tilskilin leyfi í þeirri iðn. Síðustu starfs- árin annaðist Bennó húsvörslu í íþróttasal FH í Kaplakrika. Öll- um sínum störfum sinnti Bennó af alúð og samviskusemi. Sem dæmi um óeigingirni og hjálp- semi Bennó var, að hann vildi ekki þiggja laun fyrir vinnu sína í lóð húss míns við Ölduslóð. Skyndilegt fráfall Bennó eftir stutt og erfið veikindi kom öllum á óvart, en hann hafði áður alltaf notið góðrar heilsu. Megi bjartar minningar um heiðursmann sefa sorg og söknuð hans góðu og ást- ríku eiginkonu og systkina og vera þeim styrkur á vegferð lífs- ins. Guð blessi minninguna um Bennó. Árni Gunnlaugsson. ✝ Stefán ÞórJónsson fæddist 31. desember 1973 í Reykjavík. Hann lést á gjörgæslu- deild Landspítalans við Fossvog 19. jan- úar 2015. Foreldrar hans eru Jón Valentínus- son, f. 11.2. 1928, d. 20.12. 2013, og Inge Löwner Valentínus- son, f 20.6. 1941. Systkini Stefáns eru Guðlaug Jónsdóttir, maki Arnór Valdi Valdimarsson. El- ísabet Jónsdóttir, maki Grétar Árnason, og Auðunn Jónsson, maki María Níelsdóttir. Stefán starfaði í 17 ár sem bíl- stjóri hjá Landsbankanum og starfaði þar þegar hann lést. Hann var einnig mikill íþrótta- maður og þar var aðaláhugamálið keila, en hann spilaði með ÍR og var þar í liði Broskalla. Stefán var mikill veiðimaður og átti það hug hans allan á sumrin. Stefán byrjaði ungur búskap með Soffíu Ólafsdóttur en þau slitu samvistir árið 2002. Seinna kynntist hann Sigurbjörgu Ásmundsdóttur og bjuggu þau saman í 10 ár, en þau slitu svo samvistir síðastliðið sumar. Stefán var búsettur í Hamra- borg 34 er hann lést. Útför hans fer fram í Seltjarnarneskirkju í dag, 26. janúar 2015, kl. 13. Í dag kveðjum við Stefán Þór Jónsson, vin okkar sem var hrifinn frá hinu daglegu lífi í einu vetfangi og án nokkurs fyrirvara. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að starfa í Landsbankanum í rúma tvo áratugi. Árin í Landsbankanum voru einstök og þaðan á maður góð- ar minningar. Þó verkefnin hafi oft verið krefjandi og skemmtileg, þá var það fyrst og fremst samstarfs- fólkið sem gerði Landsbankann að fyrirmyndarvinnustað. Stefán, eða Stebbi, eins og flestir kölluðu hann, var einn þeirra sem lituðu lífið í Landsbankanum. Hann starfaði þar í tæpa tvo ára- tugi og var umfram allt annað Landsbankamaður. Hann gerði sér far um það að kynnast fólki og hann og vinnufélagar hans í útkeyrslunni smituðu bankann af lífsgleði sinni og léttleika hvar sem þeir komu. Það var okkar lukka í Breiðholtsú- tibúi að þeir félagar vörðu matar- tímum sínum í okkar hópi um ára- bil. Stebbi var einstaklega góður drengur, einlægur og röggsamur í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Hann var opinn og skemmtilegur og sinnti starfi sínu af mikilli alúð. Hann var viðræðugóður á öllum sviðum og áhugasamur um velferð annarra. Stebbi hafði mikinn áhuga á veiði og íþróttum hvers konar. Hann var leikinn í keilu og var fastamaður í keiluliði Landsbank- ans um langt árabil. Á síðustu árum hefur golfið einnig skipað stóran sess hjá honum og það var sérstak- lega gaman að hitta Stebba á golf- vellinum. Eftir að ég hætti stöfum í Landsbankanum fyrir tæpum fjórum árum hitti ég Stebba reglulega í ferðum hans á vegum bankans í afgreiðslu Borgunar, þar sem ég starfa nú. Það var voru fagnaðarfundir og ánægjulegt að fá fréttir frá lífinu í Landsbank- anum og spjalla um daginn og veginn. Við sem þekktum Stebba vor- um lánsöm að hitta hann á lífsins leið og hans verður sárt saknað. Fyrir hönd samstarfsfólks míns í Breiðholtsútibúi Landsbankans í gegnum árin, sendi ég öllum ást- vinum hans, fjölskyldu og vinum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Við biðjum Guð að styrkja okkur í sorginni um leið og við kveðjum góðan og gegnheilan dreng. Tómas Hallgrímsson. Held það hafi verið í lok árs ’94 að ég og einn vinur minn vorum plataðir til að taka þátt í keilumóti. Við mættum í Öskjuhlíð og mér eiginlega til skelfingar var húsið kjaftfullt af keilurum. Stressið læsti klónum vel í mig. Einhvern veginn tókst mér að ná 2. sætinu í mínum flokki í forkeppninni sem kom mér í undanúrslit. Þegar að þeim leik kom mætti andstæðing- ur minn mér við brautina. Strákur á svipuðu reki og ég, aðeins lægri, dökkhærður með stutt hár, gler- augu á nefinu og andlitið eitt risa-, risastórt bros. Stebbi var mættur. Hann hefur örugglega séð stress- ið á mér og það hefur skemmt honum vel trúi ég. Við heilsuð- umst eins og siður er fyrir viður- eign og tókum svo slaginn. Þannig fór að ég rétt náði að vinna hann og lék þá til úrslita. Tókst mér að vinna þann leik nokkuð örugglega og þar með minn flokk í mótinu. Einn af þeim fyrstu sem komu og óskuðu mér til hamingju var Stebbi. Eins og eflaust kemur fram víðar í minningargreinum um Stebba gaf hann sig oftar en ekki á tal við ókunnuga. Tókum við tal saman í lok móts. Úr varð að við ákváðum að stofna keilulið og keppa á Íslandsmótinu. Þegar kom að því hvaða nafn ætti að gefa liðinu kom ekkert annað til greina en að kalla það Broskarla. Mark- miðið var skýrt; brosa og hafa gaman af þessu. Upp frá þessu varð góður vin- skapur milli okkar Stebba sem hefur enst vel þessi 20 ár. Margt höfum við brallað saman á þessum tíma og ætli það sé ekki best að láta það ósagt opinberlega hvað við gerðum. Allt átti það sameig- inlegt að vera eitthvað skemmti- legt og stundum fíflalegt sem við þreyttumst aldrei á að rifja upp og hlæja að. Mest gerðum við grín að okkur sjálfum enda var af nógum vitleysis- og kjánaskap að taka í þeim málum. Leiðir skildi í keil- unni fyrir tíu árum eða svo en vin- skapurinn hélt áfram. Það var svo fyrir fjórum árum að Stebbi hringdi í mig og vildi endurvekja Broskarlana og stemninguna í kringum þá. Það var nú lítið mál að taka þátt í því og stendur það enn. Upp á síðkastið fannst mér vin- átta okkar hafa dýpkað. Við spjöll- uðum oft um okkar persónulegu mál, sögðum skoðanir af einlægni og þykir mér afskaplega vænt um þau samtöl. Við höfum líklegast þroskast eitthvað smá á þessum 20 árum. Ég mundi svo sannar- lega vilja að þessi vinskapur ætti önnur 20 ár framundan eða helst 40 ár. En svona er nú lífið. Það eina sem við getum gert er að „taka Stebba á þetta“ en það er frasi sem varð til núna um daginn eftir að Stebbi lenti í áfallinu. Við nokkrir vinir Stebba spurðum okkur hvað hann mundi gera í hin- um og þessum aðstæðum. Niður- staðan er alltaf sú sama; halda áfram, reyna að brosa og hafa gaman af þessu. Inger mömmu hans Stebba, systkinum og vinum sendi ég mín- ar innilegustu samúðarkveðjur. Stórt skarð er höggvið í líf okkar en við getum fyllt það örlítið upp með skemmtilegum sögum af virkilega góðum og lífsglöðum dreng. Takk fyrir samfylgdina, Stebbi. Hún var gefandi og góð. Það er ekki hægt að ljúka þessu með neinu öðru en: Við sjáumst síðar vinur minn. Jóhann Ágúst Jóhannsson. Stefán Þór Jónsson HINSTA KVEÐJA Okkur langar að kveðja frábæran vin og yndislegan vinnufélaga. Og langbesta keiluþjálfara sem hægt er að hugsa sér.Það var alltaf allt ekkert mál og við reddum þessu og hættu að hugsa, gerðu þetta bara. Vertu sæll, yndislegi Stebbi, og megi Guð styrkja fjölskyldu þína og vini á þessari stundu. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Saknaðarkveðjur, Halldóra og Sigrún.  Fleiri minningargreinar um Stefán Þór Jónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, BJARGHILDUR SIGURÐARDÓTTIR áður til heimilis í Kelduskógum 1, Egilsstöðum, sem andaðist á Hrafnistu í Reykjavík þriðjudaginn 13. janúar verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 28. janúar kl. 13.00. Gerður, Sigurður, Björn, Bergljót, Ingibjörg og Guðný Arabörn og fjölskyldur. ✝ Elskulegur bróðir okkar, DAVÍÐ STEFÁNSSON frá Saurhóli, lést þriðjudaginn 20. janúar í Silfurtúni, Búðardal. Jarðarförin fer fram frá Staðarhólskirkju fimmtudaginn 29. janúar kl. 14.00. Elsa Stefánsdóttir, Jensína Stefánsdóttir, Arndís Jenný Stefánsdóttir, Bryndís Stefánsdóttir, Haukur Stefánsson, Gísli Björgvin Stefánsson, Fanney Svana Stefánsdóttir. Okkar yndislegi eiginmaður, sonur faðir, tengdafaðir, afi, bróðir, mágur og frændi, HERMANN NÍELSSON, Túngötu 12, Ísafirði, lést á krabbameinsdeild Landspítalans 21. janúar sl. Útför fer fram 14. febrúar kl. 15 frá Ísafjarðarkirkju. Minningarathöfn verður haldin í Reykjavík síðar. . Kristín Theodóra Nielsen, Guðrún Sigurðardóttir, Níels Hermannsson, Christine Carr, Rafn Hermannsson, Herdís Kristinsdóttir, Nína Dagrún Hermannsdóttir, Sigríður Níelsdóttir, Gísli Vigfússon, Guðmundur Grétar Níelsson, Guðrún Eyjólfsdóttir, Kristinn Jóhann Níelsson, Harpa Jónsdóttir, María Níelsdóttir, Rúnar Már Jónatansson, Margrét Kjartansdóttir, barnabörn og systkinabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVÖVU INGIMUNDARDÓTTUR, Hjúkrunarheimilinu Eir, áður Lynghaga 12. . Ágúst Ingólfsson, Örn Ingólfsson, Hrafnhildur Bjarnadóttir, Einar Ingólfsson, Bára Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GYÐA (SKÍRNARNAFN GUÐNÝ) JÓHANNSDÓTTIR FRÁ SIGLUFIRÐI, síðast til heimilis á Brúnavegi 19, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 23. janúar. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 2. febrúar nk. kl. 13.00. . Valtýr Sigurðsson, Sigríður Hjaltested, Jóhann Ág. Sigurðsson, Linn Getz, börn, barnabörn og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR SUMARLIÐASON, sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 19. janúar sl., verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju miðvikudaginn 28. janúar kl. 15.00. . Brynhildur Jónsdóttir. Guðný Jóna Gunnarsdóttir, Haraldur Þráinsson, Hulda Maggý Gunnarsdóttir, Ingvar Björn Ólafsson, Björn, Brynhildur, Þráinn, Birna Ruth, Sóley, Gunnar Sær og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.