Morgunblaðið - 26.01.2015, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2015
Smiðjuvegi 9, 200 Kópavogi ■ Sími 535 4300 ■ axis.is ■ Opið: mán. - fös. 9:00 - 18:00
Fataskápur
Hæð 2100 mm
Breidd 800 mm
Dýpt 600 mm
Tegund: Strúktúr eik
TIL Á LAGER
S KÁPATI LB OÐ
Verð58.900,-m. vsk.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Lífið kemur þér á óvart þessa dagana
og þér finnst þú hafa litla stjórn á atburða-
rásinni. En þó skjólið sé gott er samt nauð-
synlegt að takast á við lífið fyrir utan.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér líður eins og tilfinningarnar ætli að
kaffæra þig. Allt gengur upp rétt eftir að þú
hefur hugleitt að gefast upp og ganga í
burtu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú verður að sýna þolinmæði þegar
nota þarf tækni á vinnustað þínum. Gerðu
það! Það er upplagt að byrja á smábreyt-
ingum og taka svo stærri skref, þegar reynsl-
an er fengin.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Rifrildi við maka er dæmigert á degi
sem þessum. Gefstu samt ekki upp því fyrr
eða síðar stendur þú með pálmann í hönd-
unum og verðlaun fyrir hugvit þitt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert tilbúinn til að láta þínar eigin
þarfir víkja fyrir æðri tilgangi. Rómantík og
galsi eiga upp á pallborðið hjá þér. Dragðu
bara djúpt andann og taktu eitt skref í einu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér finnst þú einstaklega segulmagn-
aður og algerlega við stjórnvölinn. Of mikið
umtal kallar bara á öfundarmenn sem gera
þér lífið leitt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Láttu ekki hugleiðingar um framtíðina
skemma fyrir þér nútíðina. Reyndu að skipu-
leggja tíma þinn miklu betur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Vel tímasett orð endurvekja
gamlan vinskap. Bíddu með að reyna að ná
fram sigri. Spurðu og spurðu, þó að þú vitir
ekki hvað þú átt að gera við svörin.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ef þér veitist of erfitt að finna
svör er reynandi að bera upp spurningarnar
með öðrum hætti. Velgengni í viðskiptum
hefur einnig góð áhrif.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þér væri hollt að hlusta á fjár-
málaráðleggingar fagmanna. Fáðu þína nán-
ustu í lið með þér og þá heppnast allt vel.
Varastu bara að leita langt yfir skammt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hefðir gott af því að bregða út
af vananum og gera eitthvað óvenjulegt í
dag. Gættu þess að taka frá tíma fyrir eitt-
hvert létt sprell í dag.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Mundu að sjaldan veldur einn þá tveir
deila. Svo farðu þér hægt í að velja þér trún-
aðarvini, sérstaklega af hinu kyninu. Sýndu
þolinmæði því að öllum líkindum sýnir þú
sömu eiginleika.
Á föstudag skrifaði ÓlafurStefánsson á Leirinn: „Á flest-
um vinnustöðum er mikið lagt upp
úr góðum samskiptum fólks og
þægilegu viðmóti. Forstjórinn er
kannski kallaður Svenni og bílstjór-
inn Gulli, og allir eru samstiga í
góðum vinnuanda og vináttu. Svona
er þetta víða en á Alþingi virðist
þessu þveröfugt farið. Þar taka
menn daglangar reiðirispur þar
sem fúkyrði og brigsl þykja sjálf-
sagðar trakteringar, og síðan fá
landsmenn „besta“ sýnishornið af
þessum atgangi yfir sig sem ábót á
kvöldsoðninguna í sjónvarps-
fréttum.
Úthvíldir eftir jólin,
ydda þeir bardagatólin
við bjöllunnar dyn,
Birgitta og hin.
Hæstvirtra heyrast þá gólin.“
Ágúst Marinósson skrifaði á
Leirinn á fimmtudag að Bengal-
köttum hefði verið stolið á Suður-
landi sl. nótt. – „Djúp hjólför eftir
bíl fundust í skafli á vettvangi, einn-
ig brjóstahaldari og kvenmanns-
buxur með hlébarðamunstri.
Köttum stal að talið er,
tölvert þykir galin.
Úr skafli komst með brjóstin ber,
brókarlaus og kalin.“
Skírnir Garðarsson sagði að upp
væri kominn nýr vinkill á að losa
jeppa úr skafli.
Illt er veður, erfið tíð,
asahlákur vegi teppa.
Brókarlaus í byl og hríð
baslast konugrey á jeppa.
Og bætti síðan við: „Eitt sinn var
ég stöðvaður fyrir það eitt að aka
léttklæddur, en það var að sumri.“
Skemmtilegt bréf fékk ég frá
Sturlu Friðrikssyni eins og oft áð-
ur: „Enn eru til kviðlingar, sem fólk
fer oft með, en ég kann ekki nöfn á,
mætti kalla ambögur. En ég hef
einhvern tíma heyrt þær nefndar
einhverju nafni. Ég kann nokkrar
þvílíkar, en hér er ein alkunn, sem
er einnig þekkt á þýsku.
Gekk ég áðan göngin inn,
rak ég mig á kvörnina,
ég er eins og jólatré,
ég er í hreppsnefndinni.“
Hallmundur Kristinsson orti á
Boðnarmiði:
Allskyns skrautlega skækla
skulum við reyna að tækla.
Með djörfung og dug
og dirfsku í hug
nánar má nýta hækla.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Svenni eða Gulli eða
háttvirtur alþingismaður
Í klípu
„JÆJA, HVAÐ ER ORÐIÐ Á GÖTUNNI?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„FLUGVÉLINNI ÞINNI SEINKAÐI UM
TÍU MÍNÚTUR. NOKKRIR SKRÚFBOLTAR
SKUTUST ÚT.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að grilla sykurpúða
yfir opnum eldi, saman.
MÁN MÁN MÁN
RÍF
JÆJA, AÐ MINNSTA KOSTI
ER MÁNUDAGURINN
LIÐINN
ÉG ÆTLA AFTUR
Í RÚMIÐ NÚNA.
AF HVERJU BÓKAÐI PABBI FUND Í
MIÐJU FRÍINU OKKAR?
ÞÁ GETUR HANN SKRIFAÐ FERÐINA SEM
VIÐSKIPTAKOSTNAÐ!
Umræður á pressukvöldi Blaða-mannafélags Íslands í síðustu
viku voru áhugaverðar. Þar mættu
til leiks stjórnendur Ríkisútvarpsins
og Vefpressunnar, auk þess sem
framkvæmdastjóri Stundarinnar,
væntanlegs fjölmiðils, kynnti í gróf-
um dráttum hvernig að þeirri starf-
semi verði staðið. Og allt var þetta
gott og blessað; þarna voru talna-
súpur úr Excel-skjölum í töluðu
máli. Hinu mikilvægasta var samt
sleppt, það er blað, vefmiðill eða ljós-
vaki hefur tæplega tilverugrundvöll
nema hafa eitthvað fram að færa. Á
hverjum miðli finna menn sína fjöl
og ákveða á hvaða mið skuli róið. Til
skemmri tíma kunna sögur af frægu
fólki að duga vel; en munum þó að
eðlinu samkvæmt er froðan fljót að
leysast upp og verða að engu. Með
öðrum orðum sagt þá þarf efni hvers
miðils að hafa raunverulega inni-
stæðu og skírskotun í líf almennings
svo hann geti lifað. Hinn þungbúni
nafnlausi skari verður að geta sam-
samað sig í því sem sagt er frá.
x x x
Uppnám varð á Alþingi í dag; þettavar kjarnasetningin í upphafi
fréttatíma í sjónvarpi í vikunni. En
hvert var uppnámið? Jú, hressileg
skoðanaskipti um eitt þessara hefð-
bundnu dægurmála þar sem fólk
rökræðir sig til niðurstöðu sem
bærileg sátt næst um.
x x x
Íslendingar eru liðlega 300 þúsundog nú um stundir einkennist sam-
félagið af ákveðinni jafnstöðu. Að
minnsta kosti hefur þjóðarskútan oft
ruggað hressilegar en gerist nú um
stundir. Og séu mál skoðuð heild-
sætt yfir lengri tíma má kannski
segja að ekkert gerist á Íslandi sem
raunverulega skiptir máli, að frá-
töldum persónulegum atburðum í lífi
hvers og eins, nema á um það bil
fimm ára fresti. Og hvaða áhrifaríku
mál eru þetta? Jú, við munum stað
og stund þegar Broddi Broddason
kom með fyrstu fregnir í útvarpinu
og forsíða Morgunblaðsins næsta
dag lifir í sjónminni okkar. Form-
úlan er einföld – og vitnisburður um
að fjölmiðill hafi staðið sína plikt og
haft eitthvað að segja. víkverji@m-
bl.is
Víkverji
Já, vona á Drottin, ver öruggur og
hugrakkur, vona á Drottin.
(Sálmarnir 27:14)