Morgunblaðið - 26.01.2015, Qupperneq 27
mjög sérkennilegt að einangra hann
frá skipstjóra eða útgerðarmanni.
Það verður afar erfitt að finna rétt-
láta leið út úr þessum ógöngum.“
Þverfagleg rannsókn á lýðræði
Þú fjallar um barnavernd og svo
rétt fólks til að eignast börn?
„Mikilvægt að gera greinarmun á
tvenns konar ólíkum rétti. Það er
annars vegar sú tegund æxlunar-
frelsis að fólk geti hagað barn-
eignum sínum að vild, sé ekki látið
gangast nauðugt undir ófrjósemis-
aðgerðir eða eitthvað slíkt. Þá erum
við að tala um mannréttindi.
Hin tegund æxlunarfrelsis er þá:
Á fólk tilkall til þjónustu á þessu
sviði sem lið í heilbrigðiskerfi sem
rekið er fyrir almannafé? Þetta er
flókin spurning. Við getum ekki gert
allt í heilbrigðiskerfinu. Við þurfum
að taka erfiðar ákvarðanir um hvar
eigi að setja mörkin. Ég tel að það
þurfi að huga að brýnum lífs-
tækifærum. Að menn geti gert hluti
sem fólk er almennt fært um að
gera, ganga, stunda vinnu og sjá um
sig. En er það, að eignast börn, af
slíku tagi?
Barnaverndarsjónarmið eru mér
hugleikin. Frumhugsunin er þá
hagsmunir þess barns sem er að
fæðast en ekki hitt, að verið sé að
hugsa fyrst og fremst út frá hags-
munum fullorðinna. Ég hef fært rök
gegn nafnleyndinni, tel mikilvægt að
fólk eigi kost á því að fá að vita um
uppruna sinn. Ég hef alltaf haldið á
lofti þessum málflutningi sem er að
mínu viti barnaverndarsjónarmið.“
Hvað er í vændum hjá þér núna?
„Ég er vinna að þverfaglegri
rannsókn á lýðræði, veikleika þess
og hvernig við getum styrkt það.
Málþing verður um þessa rannsókn í
maí og niðurstöður komast vonandi
á bók. Ég er og með í bígerð bók á
ensku og kannski tvær. Annars-
vegar um lífsiðferðileg efni, sem ég
hef skrifað mikið um og hins vegar
um íslensk samfélagsmál.
Mér er hugleikið ábyrgðar-
hugtakið, við tölum mikið um nauð-
syn þess að axla ábyrgð. Mér finnst
skemmtilegt hvað þetta getur haft
margþætta merkingu. Svo sem per-
sónulega fyrir okkur hvert og eitt –
við þurfum að axla ábyrgð og lifa
okkar lífi.
Síðan getur maður tekið inn í
þetta margvíslegt samhengi, svo
sem pólitísk ábyrgð. Í hinu fræga
lekamáli kristallast hugmyndir um
hvernig hægt er að draga fólk til
pólitískrar ábyrgðar.“
Erum við Íslendingar að axla
ábyrgð?
„Vænlegasta leiðin til þess að læra
ekki af kreppu er að leita rótanna að
óförunum erlendis. Umsáturskenn-
ingarnar hafa verið notaðar og aukin
þjóðernishyggja. Ef við keyrum upp
okkar ágæti, segjum ófarir okkar
öðrum að kenna erum við nánast
sem pólitísk heild að laumast undan
ábyrgð.
Það mikilvægasta sem við getum
gert er að læra af því sem gerðist og
axla ábyrgðina sjálf. Ekki með því
einu að draga hina og þessa ein-
staklinga til ábyrgðar, þó það sé auð-
vitað mikilvægt frá réttlætissjónar-
miði, heldur með framsýnni ábyrgð.
Við borgarar þess lands gegnum
mismikilvægum hlutverkum í þessu
skyni, en við þurfum öll að axla þá
ábyrgð að byggja traust samfélag
sem veitir viðnám eyðingaröflum.“
samfélag
Morgunblaðið/Kristinn
MENNING 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2015
Kvikmyndin Birdman var valin af
félagi kvikmyndaframleiðenda í
Bandaríkjunum, Producers Guild,
besta kvikmynd ársins þegar til-
kynnt var um val félagsmanna á
bestu myndum liðins árs. Hafði hún
betur en Boyhood sem margir töldu
líklegasta til að hreppa hnossið. Síð-
ustu sjö ár hefur kvikmyndin sem
hlýtur þessi verðlaun einnig hreppt
Óskarsverðlaunin.
The Lego Movie var valin besta
teiknimyndin, besta heimildakvik-
myndin var valin Life Itself,, um
kvikmyndarýninn Roger Ebert,
besta sjónvarpsþáttaröðin var
Breaking Bad og besta gamanefnið í
sjónvarpi Orange Is the New Black.
AFP
Birdman Alejandro González Iñárritu
leikstýrir og framleiðir kvikmyndina.
Bandarískir framleiðendur velja
Birdman bestu kvikmynd liðins árs
Bílaverkstæði Jóa býður upp á alla almenna
þjónustu fyrir flestar gerðir bifreiða.
með allt fyrir bílinn
Dalvegi 16a - 201 Kópavogi | Sími: 564 5520 | bilajoa@bilajoa.is | www.bilajoa.is
Opið
mánudaga til
fimmtudaga
8-17
föstudögum
8-15
Þarf bíllinn þinn á þjónustu að halda?564 5520
bilajoa.is
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 31/1 kl. 13:00 Lau 21/2 kl. 13:00 Sun 15/3 kl. 13:00
Sun 1/2 kl. 13:00 Sun 22/2 kl. 13:00 Lau 21/3 kl. 13:00
Lau 7/2 kl. 13:00 Lau 28/2 kl. 13:00 Táknmálst. Sun 22/3 kl. 13:00
Sun 8/2 kl. 13:00 Sun 1/3 kl. 13:00 Lau 28/3 kl. 13:00
Lau 14/2 kl. 13:00 Sun 8/3 kl. 13:00 Sun 29/3 kl. 13:00
Sun 15/2 kl. 13:00 Lau 14/3 kl. 13:00
Táknmálstúlkuð sýning 28.febrúar kl 13
Dúkkuheimili (Stóra sviðið)
Mið 28/1 kl. 20:00 Fös 6/2 kl. 20:00 Sun 22/2 kl. 20:00
Sun 1/2 kl. 20:00 Sun 8/2 kl. 20:00
Fim 5/2 kl. 20:00 Sun 15/2 kl. 20:00
Aðeins sýnt út febrúar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fim 29/1 kl. 20:00 Lau 7/2 kl. 20:00 Fös 13/2 kl. 20:00
Fös 30/1 kl. 20:00 Sun 8/2 kl. 20:00 Fös 20/2 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Öldin okkar (Nýja sviðið)
Fös 30/1 kl. 20:00 Sun 1/2 kl. 20:00 Fös 20/2 kl. 20:00
Lau 31/1 kl. 17:00 Lau 7/2 kl. 20:00
Lau 31/1 kl. 20:00 Sun 8/2 kl. 20:00
5 stjörnu sýning að mati gagnrýnanda
Beint í æð (Stóra sviðið)
Fim 29/1 kl. 20:00 Lau 7/2 kl. 20:00 Lau 21/2 kl. 20:00
Fös 30/1 kl. 20:00 Fös 13/2 kl. 20:00 Fös 27/2 kl. 20:00
Lau 31/1 kl. 20:00 Lau 14/2 kl. 20:00
Sprenghlægilegur farsi
Bláskjár (Litla sviðið)
Þri 3/2 kl. 20:00 Mið 4/2 kl. 20:00
Fyrsta verðlaunaleikritið sem gerist í Kópavogi
Ekki hætta að anda (Litla sviðið)
Mið 28/1 kl. 20:00 6.k. Fös 6/2 kl. 20:00 9.k Sun 15/2 kl. 20:00 11.k
Lau 31/1 kl. 20:00 Aukas. Mið 11/2 kl. 20:00 Aukas. Mið 18/2 kl. 20:00 12.k
Sun 1/2 kl. 20:00 7.k. Fim 12/2 kl. 20:00 10.k Fim 19/2 kl. 20:00
Fim 5/2 kl. 20:00 8.k. Lau 14/2 kl. 20:00 Aukas.
Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur
Dúkkuheimili –★★★★ , S.B.H. Mbl.