Morgunblaðið - 26.01.2015, Page 31

Morgunblaðið - 26.01.2015, Page 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2015 PI PA R\ TB W A • SÍ A • 14 0 24 3 jonogoskar.is Sími 552 4910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind 26. jan–2. feb. Verið velkomin! Tilboðsdagar 15–50% afsláttur af öðrum úrum 30–50% afsláttur af völdum skartgripum 20% afsláttur af öðrum skartgripum 15% afsláttur af trúlofunar- og giftingarhringum 50–70% afsláttur af Michael Armani, Diesel, Adidas, Foss DKNY og Ca s,Kor il, sio. 15–70%afsláttur Senn líður að því að bókin Mein Kampf eftir Adolf Hitler renni úr höfundarrétti, en hinn 30. apríl nk. verða 70 ár liðin frá því Hitler svipti sig lífi. Höfundarrétturinn hefur tilheyrt bæverska sambands- ríkinu sem hefur á umliðnum ára- tugum ekki veitt leyfi fyrir endur- prentun bókarinnar. Þjóðverjar óttast að nýnasistar hyggist gefa út bókina með eigin athugasemdum og að slík útgáfa geti haft skaðleg áhrif á orðspor landsins. Á árinu 2016 er von á nýrri þýskri útgáfu bókarinnar með ítarlegum athuga- semdum fræðimanna. Margir bókaútgefendur vilja þó ekki bíða svo lengi heldur stefna að því að setja prentvélarnar af stað um leið og dánardagurinn rennur upp. Meðal þeirra er lítil dönsk bókaútgáfa í eigu Jørgens Paludan. „Við munum prenta bókina reynist áhugi fyrir því,“ segir Paludan í samtali við Politiken, en forlag hans gaf árið 1966 út bókina með at- hugasemdum Svens Henningsens sagnfræðiprófessors þrátt fyrir mikil mótmæli ráðamanna í bæ- verska sambandsríkinu. Hjá stóra danska forlaginu Gyldendal dettur mönnum ekki til hugar að endur- prenta bókina. „Við viljum ekki gefa út svona viðurstyggilega bók sem hefur orðið til þess að ala á ómældu hatri og óheyrilegum hörmungum í mannkynssögunni,“ segir Johannes Riis, útgáfustjóri hjá Gyldendal. AFP Eldfim Mein Kampf kom fyrst út 1925 og er ævisöguleg bók Hitlers. Mein Kampf endurútgefin? Heimildarkvikmynd um Bill Clinton fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem hinn virti leikstjóri Martin Scorsese vann að fyrir HBO sjónvarpsstöðina, hefur verið lögð til hliðar, ótímabund- ið, að sögn The New York Times. Verkefnið mun hafa stöðvast sök- um listræns ágreinings og hver ætti að ráða hverju. Samkvæmt frétt blaðsins vildi Clinton fá að stjórna því hvaða spurninga hann væri spurður og hafa afskipti af lokaklippingu verksins. Talsmaður Clintons sagði þá skýringu „ónákvæma“. Tökur á kvikmyndinni hafa staðið yfir síðustu tvö ár og átti meðal ann- ars að fylgjast með forsetanum í ferð til Suður-Afríku þar sem hann studdi við góð verkefni sem unnið er þar að. Talsmaður Scorsese kaus að tjá sig ekki um málið en í yfirlýsingu frá HBO segir að ekki verði lokið við kvikmyndina í bráð en það þýði ekki að hún verði ekki gerð. Fyrst þegar greint var frá gerð kvikmyndarinnar sagði Scorsese Clinton vera risastóran karakter sem væri enn einhver „sterkasta röddin um málefni heimsins“. Hann bæti við að með ítarlegum viðtölum við forset- ann vonaðist hann til að gefa fyllri mynd af honum en fólk hefði haft. Á þeim tíma lýsti Clinton yfir ánægju sinni með að vera viðfangs- efni hins „goðsagnakennda leik- stjóra“. Kvikmynd Scorsese um Clinton sett í salt Scorsese og Clinton Leikstjórinn hugðist gera upplýsandi kvikmynd um forsetann fyrrverandi. Verkefnið hefur nú verið sett ótímabundið á ís. AFP Félagarnir í hljómsveitinni Hundur í óskilum, þeir Hjörleifur Hjartar- son og Eiríkur Stephensen, halda á morgun, þriðjudag klukkan 17, fyr- irlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, undir yfirskriftinni Hundalógík. Þar munu þeir félagar velta fyrir sér Hundi í óskilum og hvort eitthvað sé á bak við hann. Hundur í óskilum varð til í leik- félagspartíi á Dalvík fyrir 20 árum og ætlaði sér, samkvæmt tilkynn- ingu, aldrei stóra hluti. Þrátt fyrir litlar væntingar í upphafi hefur hljómsveitin „troðið upp við fjöl- breyttar aðstæður beggja vegna Atlantsála, gefið út tvær plötur án þess að fara í stúdíó, haldið úti óskalagaþætti í útvarpi fyrir minni- hlutahópa, haldið uppi innanlands- flugi Flugfélags Íslands, starfrækt tveggja manna leikhús og hlotið tvær grímur fyrir leikhústónlist en aldrei sungið í Frostrósum.“ Að- gangur að fyrirlestrinum er ókeyp- is. Fyrirlestur Hunds í óskilum í Ketilhúsi Morgunblaðið/Ómar Hundur Félagarnir Hjörleifur og Eiríkur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.