Morgunblaðið - 10.03.2015, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2015
Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver
.is
Velkomin á nýjan vef
Bakarameistarans
Nú getur þú pantað
Tertur, Brauðmeti og bakkelsi
Veislu og fundarpakka
og margt fleira í vefverslunni okkar
. ..
. ..
. ..
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Mig langaði að vinna aðverkefni og sýninguþar sem markmiðiðværi að þróa tækni og
ákveðna fagurfræði og leyfa hug-
myndinni að ráða hver niður-
staðan yrði, alveg óáreitt. Þetta er
hugmynd sem hefur setið lengi í
mér, en ég hef alltaf starfað sem
teiknari meðfram fatahönnuninni.
Þessi tækni sem ég nota við gerð
þessara portretta er tækni sem ég
hef unnið lítillega með áður og
mig langaði til að fara með þetta
lengra. Það er frekar sjaldgæft að
hönnuður fái tækifæri til að vinna
svona persónulegt verkefni,“ segir
Laufey Jónsdóttir hönnuður, um
einkasýningu sína, PERSÓNA-
minningar og hið margþætta sjálf.
„Þetta eru tilraunakennd
portrett-verk þar sem gefur að
líta ólíka einstaklinga út frá sér-
stöku sjónarhorni í þrívíðum
klippiverkum unnum úr mörgum
lögum af ljósmyndum.“
Fólk á öllum aldri og úr
ýmskum stéttum
Fólkið sem Laufey valdi til að
gera portrett af, kemur úr hinum
ýmsu stéttum samfélagsins.
„Við vildum leggja áherslu á
að fá fjölbreytt samfélag inn í sýn-
ingarsalinn og völdum því úr
breiðum hópi fólks. Þau eru á öll-
um aldri og úr ýmsum stéttum.
Þarna er meðal annars strætóbíl-
stjóri, ráðuneytisstjóri og kosm-
ískur kjaftavöðull. Við vildum fólk
með ólíkan bakgrunn, ólíka sögu
og minningar. Ég vildi líka hafa
Sjálfið, mannlegt
eðli og minningar
Laufey Jónsdóttir fatahönnuður vann þrívíð portrettverk sem hún byggir á per-
sónulegum viðtölum við nokkra mjög ólíka einstaklinga um ævi þeirra og minn-
ingar. Strætóbílstjóri, ráðuneytisstjóri og kosmískur kjaftavöðull eru í þeim hópi.
Henni finnst áhugavert að skoða mannlegt eðli og hvernig sjálfið beygir og brýtur
upp veruleikann. Sýningin heitir PERSÓNA og er hluti af Hönnunarmars.
Morgunblaðið/Kristinn
Portrett Eitt af verkum Laufeyjar sem verður á sýningunni á morgun.
Svavar Pétur Eysteinsson, kenndur
við Prins Póló, og Berglind Häsler
ventu kvæði sínu í kross og gerðust
bændur fyrir ári með það að mark-
miði að nálgast greinina með nýsköp-
un að leiðarljósi. Þau tóku við bænum
Karlsstöðum í Djúpavogshreppi og
hafa unnið að því að breyta fjósi í
snakkverksmiðju. Sveitasnakk, snakk
úr heimaræktuðum gulrófum, kemur
á markað í vor ef fjármögnun gengur
eftir. Nú sér fyrir endann á verkefn-
inu en enn vantar upp á fjármögnun.
Þau brugðu því á það ráð að hefja
hópfjármögnun á Karolina Fund: kar-
olinafund.com/project/view/759.
Fær fólk sem leggur verkefninu lið
ýmislegt fyrir peninginn. Allt frá því
að fá nafn sitt ritað á þakkartöflu í
snakkverksmiðjunni upp í gistingu,
tónleika með Prins Póló og Bulsu-
veislu. Allt eftir því hversu háa upp-
æð fólk leggur til.
Vefsíðan www.karolinafund.com/project/view/759
Sæla Svavar og Berglind í sveitinni heima, á Karlsstöðum í Djúpavogshreppi.
Breyta fjósi í snakkverksmiðju
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum
tungumálum býður reglulega upp á áhugaverða
fyrirlestra fyrir almenning og í hádeginu í dag, kl.
12-13 verður einn slíkur. Þar ætlar Carrie Anker-
stein, dósent í ensku við Saarland-háskóla í
Þýskalandi, að halda fyrirlestur um það hvort
hægt sé að ná valdi á öðru tungumáli en móð-
urmálinu og skilningi, þannig að sé eins og hjá
innfæddum: „Can a non-native speaker ever und-
erstand a language as well as a native speaker?“
Fyrirlesturinn fer fram á ensku í stofu 131 í
Öskju í Háskóla Íslands. Allir eru velkomnir.
Endilega …
… farið á fyrirlestur hjá Carrie
Carrie Hún ætlar að
spjalla um tungumál.
Nú þegar Mottu-mars stendur sem
hæst er ekki úr vegi að vekja athygli
á fyrirlestrum sem tengjast heilsu-
málum. Næringarfræðingurinn Vicki
Griffin er komin til Íslands til að ausa
af viskubrunni sínum og byrjaði hún í
gær að flytja fyrsta af fjórum fyrir-
lestrum sínum en þeir fjalla um hvað
sé ráðlagt að borða til að forðast til
dæmis ristilkrabbamein og marga
aðra lífsstílstengda sjúkdóma.
Þrjá fyrirelstra á hún eftir að flytja,
í kvöld undir yfirskriftinni: Tími til að
skipta um olíu. Þar fjallar hún um
áhrif fitu á hjartað, heilann og heil-
brigð efnaskipti. Á morgun miðviku-
dag er yfirskriftin: Þökk sé vilja-
styrknum, en þar fjallar hún um það
að temja sér hjartvænt viðhorf mitt í
hringiðu lífsins. Á fimmtudeginum
verður lokafyrirlesturinn: Batnandi
hjarta er best að lifa, en þar verður
litið vandlega á umbreytt líf.
Erindi sín flytur Vicki í Loftsalnum
hjá Aðventkirkjunni, Hólshrauni 3 í
Hafnarfirði, og hefjast þeir allir kl.
20. Skráning fer fram á netfanginu
heilsunamskeid@outlook.com
Til að forðast lífsstílstengda sjúkdóma
Fyrirlestrar um áhrif fitu á
hjartað, heilann og efnaskipti
Morgunblaðið/RAX
Heili Gott er að huga að heilsu heila og hjarta og þá skipta forvarnir máli.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.