Morgunblaðið - 10.03.2015, Side 11
Morgunblaðið/Kristinn
fólk sem ég þekkti lítið sem
ekkert persónulega og það
var mjög áhugavert að taka
þessi persónulegu viðtöl við
fólk sem ég var að hitta í
fyrsta sinn, að reyna á ör-
stuttum tíma að mynda mér
ákveðna hugmynd um þau
sem persónur. Þetta var
sérlega ánægjulegt ferli og
ég er afar þakklát þeim
sem gáfu sér tíma til þess
að taka þátt,“ segir Laufey
og bætir við að suma í
hópnum hafi hún þekkt lít-
illega.
„Ég veit öll leyndar-
mál þessarar borgar“
„Þau sögðu mér meðal
annars frá minningum sem
hafa að þeirra mati mótað þau, og
þannig máluðu þau sína eigin
mynd fyrir mér í samtalinu. Dæmi
um setningar sem féllu í samtöl-
unum eru:
„Það skiptir öllu máli að
þykja vænt um fólk.“ „Ég veit öll
leyndarmál þessarar borgar.“ „Ég
er svo fljúgandi – ég bý þarna
uppi.“
Þetta var æðislegt, og ótrú-
lega gaman hvað allir
voru tilbúnir að opna
sig og tala opinskátt
um líf sitt og tilveru.
Ég er ekki vön því
að kynnast fólki á
þennan hátt, að það
veiti svona mikla inn-
sýn á skömmum
tíma.“
Laufey segir að
þegar viðmælendur
hennar hafi lýst að-
stæðum sínum hafi
hún séð það allt
myndrænt fyrir sér.
„Síðan fór ég
ýmist og tók myndir
af einhverju sem þau
sýndu mér og tengd-
ist minningum sem
þau sögðu mér frá, eða ég fór og
myndaði það sem ég sá fyrir mér
út frá því sem við töluðum um.
Síðan notaði ég ljósmyndirnar til
að skapa áferðina á portrettinu.
Ég teiknaði líka andlit þessa fólks
og þær teikningar eru hluti af
portrettunum. Þetta var mikið
ferli og tók tíma, að skera þetta
allt út og setja saman, en niður-
staðan er áhugaverð.“
Verk í vinnslu Verkin eru marglaga, klippt og sett saman.
Þetta var æðislegt og
ótrúlega gaman hvað
allir voru tilbúnir að
opna sig og tala opin-
skátt um líf sitt og
tilveru.
PERSONA Laufey segir það hafa verið sérlega ánægjulegt að kynnast fólkinu sem hún gerir portrett-verk af.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2015
Á sýningunni kannar Laufey nýj-
ar slóðir og teflir saman miðlum
í tilraunakenndum þrívíðum
klippimyndaverkum sem sýna
ólíkar persónur á áhugaverðan
hátt. Verkin eru byggð á per-
sónulegum viðtölum Laufeyjar
við viðfangsefni sín um ævi og
minningar. Verkin vinnur hún úr
áferðum sem sóttar eru í innri
og ytri heim viðfangsefnisins í
gegnum ljósmyndun og sker út í
mörgum lögum eftir teikn-
ingum.
Sýningunni er ætlað að velta
upp spurningum um mann-
veruna og ímyndir í víðu sam-
hengi með áleitnum hætti og af-
gerandi stílfærslu.
Einstaklingarnir sem Laufey
tekur fyrir sem viðfangsefni í
sýningu sinni eru ólíkir inn-
byrðis og skapa áhugaverða
heild en á sýningunni verður
leitast við að skapa upplifun af
því margþætta ferli sem að baki
verkunum stendur.
Fólkið sem Laufey vann port-
rettin út frá:
Ása Helga Hjörleifsdóttir
leikstjóri
Birkir Snær Mánason
upplýsingatækniráðgjafi
Darius Aleksandravicius
strætóbílstjóri
Ingi Þór Kjartansson,
kosmískur kjaftavöðull
Pálína Björk Matthíasdóttir,
sérfræðingur á sviði þróun-
armála
Ragnhildur Hjaltadóttir,
ráðuneytisstjóri innanríkis-
ráðuneytis
Sveinbjörn Thorarensen
tónlistarmaður
Sævar Karl Ólason
myndlistamaður
Þórunn Elísabet Sveins-
dóttir búningahönnuður
Mannveran og ímyndir
PERSONA – MINNINGAR OG HIÐ MARGÞÆTTA SJÁLF
Þrívídd Verkin hennar Laufeyjar eru fjölbreytt, hér er hluti af potretti af Sveinbirni.
:
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 mánudaginn 23. mars.
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
SÉRBLAÐ
Páskablaðið
Stórglæsilegt
páskablað fylgir
Morgunblaðinu
föstudaginn
27. mars
Matur, ferðalög, skreytingar
og viðburðir um páskana
verðameðal efnis í blaðinu