Morgunblaðið - 10.03.2015, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2015
Bílaverkstæði Jóa býður upp á
alla almenna þjónustu fyrir
flestar gerðir bifreiða.
Er kominn tími á að
smyrja bílinn?
Opið: mánud. – fimmtud. 8-17 föstudögum 8-15
með allt fyrir bílinn
Dalvegi 16a - 201 Kópavogi | Sími: 564 5520 | bilajoa@bilajoa.is | www.bilajoa.is
Að smyrja bílinn reglulega
er hagkvæm og ódýr leið til
þess að tryggja betri og lengri
endingu vélarinnar.
564 5520
bilajoa.is
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ný álma Icelandair Hotel Reykjavik
Marina við Slippsvæðið í Reykja-
víkurhöfn verður opnuð í byrjun júní
og eru horfur með bókanir fyrir
sumarið mjög góðar, að sögn Birgis
Guðmundssonar hótelstjóra.
Hann segir að með nýju álmunni
bætist við 40 her-
bergi við þau 108
sem fyrir voru.
Til viðbótar verða
sjö herbergi í
tveimur endur-
byggðum húsum
vestur af nýju
álmunni en þau
voru áður íbúðar-
hús. Verða her-
bergin því alls
155. Til saman-
burðar eru 220 herbergi á Icelandair
Hotel Reykjavik Natura, stærsta
hóteli keðjunnar.
Bæta þjónustu og gæði
Spurður hvernig nýja álman verð-
ur innréttuð segir Birgir að áhersla
sé lögð á að bæta þjónustu og gæði
með því að auka framboð gistirýmis í
hærri verðflokki. Þá verði framboðið
á veitingum á hótelinu aukið en þó
ekki þannig að farið verði í sam-
keppni við Slippbarinn. Hönnun
innanrýmis er nú á lokastigi.
„Uppleggið hjá Icelandair Hotels
er að vinna markvisst að uppbygg-
ingu gistirýmis í hærri verðflokki
fremur en að fjölga eingöngu her-
bergjum í miklu magni.
Spurður hversu margra stjörnu
Marina-hótelið verður eftir stækk-
unina segir Birgir að hefðbundin
stjörnugjöf hótela sé að víkja fyrir
einkunnagjöf gesta á netinu.
Birgir segir það skapa hótelinu
sérstöðu að það er staðsett við Slipp-
inn. Gestir hafi gaman af því að
fylgjast með því þegar skip eru
dregin upp eða sjósett. Myndavélar
fari þá gjarnan á loft. Hafnarsvæðið
sé að lifna við og bendir Birgir þar
m.a. á nýtt hvalasafn á Granda.
Hann segir góð sóknarfæri á
markaði þótt samkeppnin sé mikil.
„Það er alltaf samkeppni á þess-
um markaði. Maður finnur ef til vill
minna fyrir henni í dag þegar upp-
sveiflan er svona mikil og nýtingar-
tölur á hótelum þetta háar. Stefna
okkar er að byggja á gæðum hótela
og að hvert hótel hafi sína sérstöðu.
Það mun skila okkur samkeppnis-
forskoti til framtíðar,“ segir Birgir
Guðmundsson hótelstjóri.
Fjölga dýrari hótelherbergjum
47 ný herbergi á Icelandair Hotel Reykjavik Marina verða tekin í notkun í byrjun júní Framboð
á veitingum verður aukið Markmið Icelandair-keðjunnar að bæta við herbergjum í dýrari flokki
Morgunblaðið/Júlíus
Bárujárn á efstu hæð Icelandair Hotel Reykjavik Marina er á Mýrargötu.
Birgir
Guðmundsson
Á efstu hæð nýja hótelsins eru út-
veggir klæddir með bárujárni.
Fjöldi húsa í gömlu Reykjavík er
klæddur með sama efni en notkun
þess fór síðan minnkandi, nema
hvað á stöku stað var bárujárnið
látið snúa lárétt.
Nú eru vísbendingar um að
bárujárnið sé að snúa aftur.
Freyr Frostason, arkitekt hjá
THG Arkitektum, segir upp-
runalegt hús á Mýrargötu 2-8
standa í eldri byggð, umkringt
bárujárnsklæddum húsum.
„Hluti af því að reyna að halda í
gamla tímann er að nota bygg-
ingarefni sem eru í gömlum húsum
í hverfinu. Mýrargötuhúsið hefur í
gegnum tíðina yfirleitt verið iðn-
aðarhúsnæði og kannski stórt
miðað við nálæg hús. Það var því
tekin ákvörðun um að hafa báru-
járn á fyrstu hæð hússins sem nú
er norðurhlið hótelsins, hliðin sem
snýr að Slippnum, og á inndreginni
fjórðu hæð hússins. Sú hæð var
upprunalega ekki á húsinu. Við
horfðum á það sem viðbót með
sögulega tengingu við gamla
hverfið. Við er-
um að reyna að
halda í sögu
svæðisins og
hússins. Það
færist í vöxt að
hönnun ný-
bygginga í mið-
bænum hafi
sögulega teng-
ingu við um-
hverfið og þá koma gömlu bygg-
ingarefnin fram.“
Er bárujárnið að snúa aftur sem
vinsælt byggingarefni?
„Já, það má segja það. Sú þróun
á sér reyndar langan aðdraganda.
Fyrir um áratug var bárujárnið
mikið notað lárétt. Þá var tekið
gamalt byggingarefni og reynt að
gera það nútímalegt. Litavalið var
líka oft óvenjulegt. Oft var báru-
járnið látið vera grátt með állit. Í
gamla daga var það alltaf málað.
Síðan finnst mér þróunin vera sú
að við séum að færast nær hinni
sögulegu notkun. Bárujárnið felur í
sér sögulega tengingu við gömlu
Reykjavík,“ segir Freyr.
Bárujárnið snýr aftur sem
byggingarefni í Reykjavík
FELUR Í SÉR SÖGULEGA TENGINGU
Freyr Frostason