Morgunblaðið - 10.03.2015, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2015
Áslaug Sigvaldadóttir myndlistarkona kennir í Laugargerðis-skóla á Snæfellsnesi, þá aðallega myndmennt og náttúru-fræði. „Þetta er svo lítill skóli að ég kenni öllum nemendum
í þrem hollum. Á sumrin er ég í garðyrkjunni með eiginmanninum
Þórði I. Runólfssyni en við rekum Ræktunarstöðina Lágafelli. Þar
ræktum við salöt fyrir veitinga- og ferðaþjónustuaðila á Snæfells-
nesi. Við erum líka að byggja kaffihús við ræktunarstöðina og
stefnum á að opna í sumar en svo kemur í ljós hvort það tekst. Við
vonum að það fari að hætta að blása, það er búið að vera svo leið-
inlegt að byggja í þessu veðri.“
Áslaug sinnir myndlistinni alltaf reglulega. „Ég hef ekki sýnt tvö
undanfarin ár en þar á undan var ég með sýningar á hverju ári og
verður maður ekki að gera eitthvað í tilefni af fimmtugsafmælinu?
Ég stefni á að sýna í haust og kannski verð ég með sýninguna á
kaffihúsinu.“ Áslaug málar með olíu- og vatnslitum, mest fígúratíf-
ar myndir. „Ég mála mest í skorpum og tek svo hlé þess á milli, ef
ég væri að þessu allan daginn væri allt troðfullt hérna af myndum.“
Áslaug bauð systkinum sínum og fjölskyldum þeirra í mat síðast-
liðinn laugardag, alls 25 manns. „Við maðurinn minn ætlum svo að
halda stórt sumarpartí fyrir vini og vandamenn, en hann varð
fimmtugur í febrúar. Það er auðveldara að fólk fá út á land á
sumrin.“
Áslaug og Þórður eiga þrjár dætur. „Elst er Silja Ósk, vöruhönn-
uður og í þjóðfræðinámi, Sólrún er í náttúrufræði í Landbúnaðar-
háskólanum og Helga er nemandi í Laugargerðisskóla og ætlar sér
í myndlistina og svo á ég þrjú barnabörn, unglingurinn ég.“
Áslaug Sigvaldadóttir er fimmtug í dag
Fimmtug Áslaug og Þórður eru bæði nýorðin fimmtug.
Er að byggja kaffihús
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
G
arðar fæddist á Hofsósi
10.3. 1955, en ólst upp í
foreldrahúsum á Böð-
móðsstöðum í Laugar-
dal: „Æskuárin fólust í
leik og almennum sveitastörfum eft-
ir því sem aldur og þroski gáfu til-
efni til. Á Böðmóðsstöðum var rek-
inn blandaður búskapur og stunduð
garðyrkja. Þó svo að það hafi ekki
alltaf verið gaman að liggja á hnján-
um og reyta illgresi, hneigðist hug-
urinn að ræktun og umhirðu marg-
víslegra plantna.“
Garðar lauk landsprófi frá Hér-
aðsskólanum á Laugarvatni, lauk
stúdentsprófi frá ML, lauk prófi sem
garðyrkjufræðingur frá Garðyrkju-
skóla ríkisins 1978, af ylræktar- og
garðplöntubraut, stundaði síðan
nám í garðyrkjudeild Landbún-
aðarháskóla Noregs og útskrifaðist
þaðan með Cand.agric-gráðu í garð-
yrkjufræðum eftir fjögurra ára nám.
Garðar kom heim frá Noregi 1982
og hóf þá kennslu og tilraunir við
Garðyrkjuskóla ríkisins. Hann varð
garðyrkjuráðunautur hjá Búnaðar-
félagi Íslands sumarið 1987 og sinnti
því starfi hjá Búnaðarfélaginu og
síðar Bændasamtökum Íslands til
2003. Þá lá leiðin aftur á Garðyrkju-
skóla ríkisins og nú sem verkefnis-
stjóri við tilraunir og kennslu og
varð síðan lektor við Landbúnaðar-
háskóla Íslands til 2006.
Þá hóf Garðar kennslu við Grunn-
skólann í Hveragerði að loknu 30
eininga námi í uppeldis- og kennslu-
fræðum við KHÍ, fyrst og fremst
sem stærðfræði- og náttúrufræði-
kennari og sinnir enn þeirri kennslu.
Garðar Rúnar Árnason grunnskólakennari – 60 ára
Fjöskyldan heima í Hveragerði Gunnvör, Reynir Þór, Harpa Rún, afmælisbarnið og loks Steinar Rafn.
Ræktun lýðs og lands
Í sumarbústaðnum Kristín Ósk frænka, Dagur Orri hjá stóra bróður, Mika-
el Máni, Reynir Þór, Harpa Rún, Atli Steinn og Garðar.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu
sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá
merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum,
barnsfæðingum eða öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta
af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
VANDAÐIR ÍTALSKIR GÖNGU-
OG ÚTIVISTARSKÓR FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
Verð 19.995
SMÁRALIND • 2 HÆÐ