Morgunblaðið - 10.03.2015, Page 41
AF TÓNLIST
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Tónleikar Bubba og Dimmu íHörpu sl. laugardagskvöldvoru dásamlegir og nánast
óaðfinnanlegir. Maður hálfpartinn
vorkennir þeim sem fóru ekki –
þetta var þannig viðburður.
Tónleikarnir byrjuðu ögn yfir
átta og þá var talið í. Það var ljóst
frá fyrsta tóni að þeir sem staddir
voru uppi á sviðinu voru ekki að
fara að slá eitthvað af.
Þungarokk hljómar ótrúlega
vel í Hörpu. Nú vill svo til að einu
tónleikarnir sem ég hef farið á í
þessu húsi eru þungarokks-
tónleikar – og þeir hafa allir hljóm-
að stórkostlega. Þessir gerðu það
líka.
Bubbi hoppaði um sviðið og tók
nokkur vel valin dansspor. Hann er
reyndar frekar dapur dansari.
Þessir tónleikar flokkast sem
þriggja bola tónleikar því hann
byrjaði í ljósgrárri skyrtu sem fljót-
lega var orðin gegnsósa af svita. Þá
fór hann í bláa sem fór sömu leið og
að lokum endaði hann í bol af Rúna
Júl.
Bubbi er í stórkostlegu formi
og hoppaði, trallaði, söng, tjúttaði,
sippaði og tók einhverjar dýpstu
hnébeygjur sem ég hef séð á sviði.
En hann skilaði sínu í míkrófóninn
og gott betur en það. Bubbi var í
stuði þetta laugardagskvöld og það
skilaði sér út í sal. Ef hann brosti
brosti maður líka.
Sett í framhaldsskóla
Fyrri hlutinn á tónleikunum
var frábær enda var þar að finna
þekktustu lögin af þessum tveimur
plötum sem var verið að spila, Lily
Marlene og Geislavirkir. „Leynd-
armál frægðarinnar“ var frábært í
þessari málmútsetningu en reyndar
hljómuðu öll lögin miklu betur í
þessum útsetningum. Það var búið
að taka þessi lög úr grunnskóla og
setja þau í framhaldsskóla, sum alla
leið í háskóla.
Sum laganna þekkti ég ekki
vel því þótt þessar tvær plötur séu
magnaðar er alveg ástæða fyrir að
lög lifa ekki.
„Bönnum verkföll“, sem Bubbi
tileinkaði Sigmundi Davíð og
Bjarna Ben., er til að mynda mjög
vont lag og maður taldi niður í að
það myndi klárast.
Langt frá því að vera kyrrlátt kvöld
Morgunblaðið/Eggert
Frábærir Bubbi Morthens og Ingó Geirdal í faðmlögum. Þeir félagar voru frábærir á tónleikum Bubba og Dimmu. Algjörlega frábærir.
Maradona í hægri bakverði
Í seinni hlutanum voru ögn
fleiri lög sem maður þekkti minna
til og stuðið datt aðeins niður í saln-
um. En það var fljótt að koma aftur
þegar kunnuglegir hljómar fóru að
heyrast.
Þónokkrir hápunktar voru á
þessum tónleikum. „Blindsker“ var
frábært, „Poppstjarnan“ skein
skært, „It’s A Shame“ hljómaði sem
silki í höndunum á Stefáni Jakobs-
syni, „Hiroshima“ með Mikka Poll-
ock var magnað og svona mætti
lengi telja. Góðu lögin urðu miklu
betri og það var alveg hægt að
hlusta á flestöll þau sem eru síðri.
Ég er Dimmu-maður. Ég
hlusta á bandið og finnst tónleikar
með þeim alveg magnaðir. Bandið
skilaði sínu með bravúr.
Birgir, sem lemur húðir, lamdi
oft á tíðum svo fast að manni fannst
merkilegt að trommusettið héldi
tónleikana út. Geirdalsbræður eru
frábærir sviðsmenn og stjarna
þeirra skein skært. Stefán, sem er
trúlega einhver allra besti rokk-
söngvari landsins, var í öðru hlut-
verki en hann á að venjast. Hann
var falinn á bak við gítar og bak-
rödd. Það er svipað eins og að vera
með Maradona í hægri bakverði.
Heilt yfir var þetta frábær
skemmtun. Þó svo að Harpa sé ein-
hver ömurlegasti staður landsins,
þar sem allt er dýrt og húsið um-
lukt ísköldu gleri, gekk ég þaðan
burt með bros á vör og mikið suð í
eyrum. Þá held ég að tilganginum
sé náð.
» „Leyndarmálfrægðarinnar“ var
frábært í þessari metal-
útsetningu en reyndar
hljómuðu öll lögin miklu
betur í þessum útsetn-
ingum. Það var búið að
taka þessi lög úr grunn-
skóla og setja þau í
framhaldsskóla.
Morgunblaðið/Eggert
Fjörugir Stefán Jak-
obsson og Silli Geir-
dal úr Dimmu voru í
góðum gír og
skemmtu sér vel á
sviðinu. Fjör þeirra
skilaði sér út í sal.
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2015
Besta leikkona í
aðalhlutverki
Ertu Duff
eða ertu töff?
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
www.laugarasbio.is
Sími: 553-2075
Þriðjudagstilboð Þri
ðjudagstilboð
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS OG
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR VIÐ HLIÐINA Á
- bara lúxusKvartett gítarleikarans ÁsgeirsÁsgeirssonar leikur á djasskvöldi
KEX hostels í kvöld og hefjast
tónleikarnir kl. 20.30. Auk Ás-
geirs eru í kvartettinum Sunna
Gunnlaugsdóttir sem leikur á pí-
anó, Þorgrímur Jónsson á
kontrabassa og Scott McLemore
á trommur. Kvartettinn mun
flytja þekkta djassstandarda í
bland við frumsamið efni og
verða tónleikarnir um tveggja
klukkustunda langir með hléi.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
Kvartett Ásgeirs á djasskvöldi KEX hostels
Djassar Ásgeir Ásgeirsson gítarleikari.
Örmyndahátíð Örvarpsins var
haldin í Bíó Paradís 7. mars sl. í
samstarfi við RÚV og Nýherja og
voru 12 örmyndir sýndar sem
valdar höfðu verið á hátíðina. Ör-
varpann, verðlaun fyrir bestu ör-
myndina, hlaut Ari Alexander Erg-
is Magnússon fyrir örmynd sína
Urna og sérstaka tilnefningu dóm-
nefndar hlaut Tarantúlfur, Úlfur
Úlfur eftir Magnús Leifsson. Áhorf-
endaverðlaunin hlaut Blik eftir
Þórunni Ylfu Brynjólfsdóttur en
hún hlaut 13 atkvæði af 87 atkvæð-
um áhorfenda.
Verðlauna-
mynd örmynda-
námskeiðs Ný-
herja hlaut
Hversu pikkí get-
ur maður verið
eftir Gunnar Jón-
atansson.
Dómnefnd
skipuðu Davíð
Óskar Ólafsson,
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson og
Margrét Elísabet Ólafsdóttir.
Örmyndin Urna hlaut Örvarpann
Ari Alexander
Ergis Magnússon