Morgunblaðið - 20.04.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. APRÍL 2015
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Tenerife
Frá kr.203.900
m/hálft fæði innifalið
Netverð á mann frá kr. 203.900 á Jacaranda m.v. 2 í herbergi.
26. apríl í 22 nætur
SÉRTILBO
Ð
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Við gerð deiliskipulags fyrir Foss-
vogsdalinn verða skoðaðar leiðir til
að draga úr neikvæðum sjónrænum
áhrifum sundlaugar sem áformað
hefur verið að gera í dalnum. Meðal
annars hefur komið fram í vinnu
sveitarfélaganna að boðið yrði upp
á þá möguleika að gestir komi
gangandi eða hjólandi í litla sund-
laug sem gerð væri fyrir miðjum
dal og ekki yrði gert ráð fyrir bíla-
stæðum við laugina.
Kópavogsbær og Reykjavíkur-
borg hafa ákveðið að gera sameig-
inlegt deiliskipulag fyrir allan Foss-
vogsdalinn. Landmótun hefur
skilað lýsingu á skipulagsverkefn-
inu til sveitarfélaganna. Hún var
kynnt á fundi í umhverfis- og skipu-
lagsráði Reykjavíkur á dögunum.
Deiliskipulagssvæðið er að
stærstum hluta útivistarsvæði en
innan þess er ennfremur íþrótta-
svæði, gróðarstöðvar, skólar og
hverfisverndarsvæði. Markmið
deiliskipulagsins er að gera gott
útivistarsvæði ennþá betra með því
að tryggja íbúum fjölbreytta að-
stöðu til útivistar, íþrótta og afþrey-
ingar.
Þrír staðir metnir
Gert hefur verið ráð fyrir að
Kópavogsbær og Reykjavíkurborg
geri saman sundlaug í dalnum. Í
lýsingunni kemur fram að mögu-
lega verði gert ráð fyrir veitinga-
aðstöðu eða útiveitingum við sund-
laugina til að þjónusta gesti.
Í vinnu sveitarfélaganna hafa
verið metnir þrír staðir fyrir sund-
laug. Í fyrsta lagi í vestanverðum
dalnum, við ræktunarstöð Reykja-
víkurborgar við Fossvogsveg. Hún
hefur þann galla að enginn mögu-
leiki er á aðkomuleið úr Kópavogi. Í
öðru lagi er nefnd staðsetning í aust-
anverðum dalnum, nálægt athafna-
svæði Víkings eða við Blesugróf.
Gallar eru aukið álag á aðkomugötur
úr Kópavogi og Reykjavík og að
trjáasafn sunnan íþróttasvæðis Vík-
ings er hverfisverndað í aðal-
skipulagi Kópavogs.
Þriðja staðsetningin er fyrir
miðjum dalnum. Hún mun væntan-
lega breyta ásýnd dalsins mest en
hentar um leið skólunum best. Rætt
er um gerð lítillar sundlaugar sem
þjónað gæti skólasundi á daginn og
almenningi eftir lok skóladags. Í því
tilviki er ekki gert ráð fyrir bíla-
stæðum við laugina og aðgengi mið-
ist aðallega við gangandi og hjólandi.
Þó væri hægt að nýta bílastæði við
skólabyggingar Fossvogsskóla og
Snælandsskóla og ganga þaðan að
lauginni.
Víkingssvæðið stækkað
Við deiliskipulagsvinnuna verður
einnig fjallað um stækkun á lóð
Knattspyrnufélagsins Víkings inn á
lóð Gróðrarstöðvarinnar Markar.
Kemur fram að borgaryfirvöld þurfi
að ákveða hversu stór hluti af lóð
Markar eigi að koma í hlut Víkings
eftir árið 2016 þegar lóðarleigu-
samningur rennur út.
Stefnt er að því að tillaga að deili-
skipulagi verði kynnt í júní og það
verði staðfest í janúar 2016.
Sundlaug án bílastæða
Morgunblaðið/Frikki
Stígar Fossvogsdalur verður áfram útivistarsvæði þótt þjónustan verði bætt með sundlaug og veitingaaðstöðu.
Gert er ráð fyrir því að fólk komi gangandi eða hjólandi í nýja sundlaug sem
Kópavogsbær og Reykjavíkurborg áforma að gera í Fossvogsdal
Sérhæfðri kælimeðferð var beitt á
drenginn sem var hætt kominn við
Reykdalsstíflu. Drengurinn, sem er 9
ára, var útskrifaður af gjörgæslu-
deild Landspítalans í gærmorgun og
dvelur nú á Barnaspítala Hringsins.
Felix Valsson, sérfræðilæknir í
svæfingu og gjörgæslu á Landspítala,
segir aðeins örfá dæmi um það að
slíkri meðferð hafi verið beitt á sjúk-
linga sem hafa nærri drukknað.
„Með meðferðinni er sérstökum
æðalegg komið fyrir í nára sjúklings
sem hægt er að nota til að stýra lík-
amshita hans. Þá er sjúklingnum
haldið sofandi og
köldum í að
minnsta kosti sól-
arhring áður en
hann er hitaður
hægt og rólega
upp í eðlilegt hita-
stig,“ segir Felix.
Með kæling-
unni sé efna-
skiptahraði heila-
frumna
minnkaður svo þær fái hvíld og tíma
til að jafna sig. Þetta takmarki skaða
og hjálpi einnig til við batann.
Kæling takmarkar heila-
skaða eftir alvarleg slys
Felix
Valsson
Flest bendir til þess að víða um land
muni vetur og sumar frjósa saman
aðfaranótt sumardagsins fyrsta.
„Það dregur til tíðinda á mið-
vikudag þegar það tekur að snúast í
mjög kalda norðanátt. Það verður
því norðanátt og snjóél á sumar-
daginn fyrsta og líklega munu sum-
ar og vetur frjósa saman,“ segir
Teitur Arason, veðurfræðingur á
Veðurstofu Íslands, en samkvæmt
algengri hjátrú mun það vita á sól-
ríkt og gjöfult sumar.
Teitur bendir þó á að sú hjátrú
eigi uppruna sinn í því að talað hafi
verið um góða málnytu, frjósi sum-
ar og vetur saman, sem sagt að
meiri mjólkur sé að vænta úr kúm
og ám en á öðrum sumrum.
„Þá voru ekki gerðar sömu kröf-
ur og borgarbúar hafa til góðs sum-
ars. Að sumar og vetur frjósi saman
kann þannig, fremur en hitt, að
benda til mikils rigningasumars
sem kæmi bændum og dýrum vel,
en borgarbúum illa.“ sh@mbl.is
Sumar og
vetur frjósa
vísast saman
Kann þó að benda
til rigningasumars
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Grasbítur Kýrnar og borgarbúar
gera ekki sömu kröfur til sumars.
Eva Röver, nemandi í Lækjarskóla,
vann hetjudáð síðastliðinn þriðjudag
þegar hún kom að björgun bræðr-
anna sem féllu í lækinn við Reyk-
dalsstíflu í Hafnarfirði.
Eva, sem varð sextán ára tveimur
dögum fyrir slysið, hefur ekki lært
skyndihjálp en bæði lögregla og
fleiri hafa talað um hversu rétt við-
brögð hún sýndi á slysstaðnum. Eva
segist ekki hafa verið í sjokki á með-
an á þessu stóð.
„Ég var bara að reyna að hjálpa
sem mest en eftir á fékk ég áfall,“
segir hún. „Það sem ég hugsaði um
var að ég mætti ekki detta sjálf út í
lækinn. Því ég vissi að ef ég færi of-
an í þá væri ég í sömu aðstöðu og
þeir,“ segir Eva.
Gat ekkert gert þegar hann
missti meðvitund
Þegar Eva kom að læknum var
eldri bróðirinn einnig dottinn ofan í
lækinn en hann féll ofan í við að
reyna að bjarga litla bróður sínum.
Eva og móðir drengjanna hjálp-
uðust að og náðu í sameiningu að
koma eldri drengnum á land en að
sögn Evu var það mjög erfitt því
straumurinn var hrikalegur.
Um svipað leyti kom maður um
þrítugt og reyndi að bjarga þeim
yngri en féll sjálfur ofan í. Þær Eva
og móðirin gátu ekki náð þeim á land
enda meira en að segja það að ná
einhverjum upp úr straumnum. Hún
segir að það hafi hins vegar verið
mjög slæm tilfinning að sjá manninn
detta ofan í og geta ekkert gert.
„Við vorum tvær saman og við
gátum með naumindum náð strákn-
um upp. Við hefðum aldrei getað
bjargað manninum upp úr. Það var
ömurleg tilfinning og ég gat ekkert
gert þegar hann missti meðvitund í
vatninu,“ segir Eva.
Þegar lögregla kom á staðinn fór
Eva að sinna systur bræðranna, sem
er ellefu ára, og eðlilega mjög
hrædd.
„Ég fór með hana til hliðar svo
hún sæi ekki bræður sína og reyndi
að dreifa athyglinni hjá henni. Ég
spurði hana meðal annars hvað hún
héti og hvaðan hún væri og hún
hætti að gráta eftir að ég var búin að
tala við hana í smátíma,“ segir Eva
sem hélt ró sinni sjálf allan tímann.
Brákaðist á úlnlið
Eva er blá og marin eftir átökin
við að koma drengnum upp úr lækn-
um auk þess sem hún brákaðist á
úlnlið. Eins var hún rennandi blaut
og köld þegar mamma hennar kom
að og gat hlúð að henni. guna@mbl.is
„Ég var bara að reyna
að hjálpa sem mest“
Hetjan Eva Röver t.v. ásamt vinkonu sinni Ingibjörgu Elísu Jónatansdóttur.
Eva þykir hafa unnið mikið björgunarafrek við hörmulegar aðstæður.
Sextán ára stúlka vann hetjudáð við Reykdalsstíflu
Eva segist hafa fengið mikinn
stuðning frá skólanum, Lækjar-
skóla, og eru þær mæðgur, Eva og
Kristín Röver, afar þakklátar við-
brögðum skólans. Haraldur Har-
aldsson skólastjóri kom strax um
kvöldið heim til þeirra og daginn
eftir fékk Eva aðstoð hjá áfalla-
teymi skólans. „Það er algjörlega
til fyrirmyndar hvernig staðið var
að öllu af hálfu Lækjarskóla,“
segir Kristín en búið var að und-
irbúa alla nemendur skólans áður
en Eva mætti daginn eftir.
Fékk stuðning
frá skólanum
EVA RÖVER