Morgunblaðið - 20.04.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. APRÍL 2015
Laugavegi 7, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033 Flo
ttir í fötu
m
Við seljum frægu
buxurnar
– frábært úrval
Skráning á www.imark.is
ÍMARK og viðskiptadeildir Háskóla Íslands,
Háskólans í Reykjavík og Háskólans á Bifröst kynna:
Háskólafund– Brú milli fræða og framkvæmda
Erindin eru eftirfarandi:
Háskólinn á Bifröst
Björn Kristjánsson, B.Sc. í viðskiptafræði með áherslu
á markaðssamskipti.
Erindi: Samkeppnisumhverfi íslenskra netverslana
Morgunblaðið
Þóra Björg Hallgrímsdóttir, BA í félagsfræði og MBA frá HR,
auglýsingastjóri Morgunblaðsins.
Erindi: Nám með vinnu og mikilvægi tímastjórnunar
Háskóli Íslands
Birgir Már Daníelsson, M.Sc. í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum.
Erindi: Ísland sem upprunaland vörumerkis
Háskólinn í Reykjavík
Lilja Ósk Diðriksdóttir, M.Sc. í alþjóðaviðskiptum.
Erindi: Íslenskir styrkjendur hálparsamtaka: Skynjun á áhættu
og áhugi á að veita fjárhagsstyrki
Kapall
Gunnar Thorberg, M.Sc. Management of eBusiness, eigandi
og markaðsráðgjafi hjá Kapli, stundakennari við HÍ.
Erindi: Tæki og tól við greiningu á markaðsaðstæðum
Lögbergi, stofu 102 í Háskóla Íslands
22. apríl 2015 klukkan 12:00-13:30
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir!
Fimm stutt en fjölbreytt erindi frá háskólunum
sem og atvinnulífinu.
Vegfarandi fann sprautunálar í
garði fjölbýlishúss í Eskihlíð í
Reykjavík í gær. Markaði fyrir
blóði á nálunum og talið er að fíkni-
efnaneytendur hafi kastað þeim frá
sér að neyslu lokinni, en um er að
ræða opinn garð sem börn sækja.
Hetta var þó fyrir nálunum svo
smithætta var takmörkuð.
Ólafur Freyr Birkisson, íbúi í
hverfinu, fann sprautunálarnar
þegar hann var í göngutúr. „Það er
barnafólk hérna í blokkinni og
krakkar eru hérna á hverjum degi.
Blóð var í sprautunum og þetta var
afar ógeðfellt á að líta.“
Ljósmynd/Ólafur Freyr Birkisson
Förgun Neyðarlínan sagði Ólafi að láta nál-
arnar í plastflösku og henda síðan í rusl.
Notaðar sprautunálar fundust í Eskihlíð
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
Þorsteinn Ásgrímsson
thorsteinn@mbl.is
Í dag hefst aðalmeðferð í stóra
markaðsmisnotkunarmáli Kaup-
þings, en um er að ræða stærsta mál
sinnar tegundar hér á landi. Lengd
aðalmeðferðar er án fordæmis en
áætlað er að vitnaleiðslur taki 17
daga og málsferð 5 daga. Samtals er
því um að ræða 22 daga í dómsal, eða
fimm vikur í það heila.
Verði bankans haldið uppi
Ákæran skiptist í raun upp í tvær
hliðar, kaup- og söluhlið. Á kauphlið-
inni er bankinn sagður hafa keypt
hlutabréf í sjálfum sér í stórum stíl
og kemur fram í ákærunni að með
því hafi verði bankans verið haldið
uppi, eða passað upp á að það lækk-
aði ekki of hratt. Á söluhliðinni er
ákært fyrir að bankinn hafi losað sig
við sömu bréf með því að lána fé-
lögum með lítið eða neikvætt eigið fé
fyrir kaupum á hlutabréfum í bank-
anum, þar sem eina veðið voru hluta-
bréfin sjálf.
Á kauphliðinni eru tveir verð-
bréfasalar hjá eigin viðskiptum
Kaupþings, Birnir Snær Björnsson
og Pétur Kristinn Guðmarsson,
ákærðir fyrir að hafa lagt inn kaup-
tilboð á tímabilinu nóvember 2007 til
falls bankans hinn 8. október 2008.
Ásamt þeim Birni og Pétri eru þeir
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrver-
andi forstjóri Kaupþings, Sigurður
Einarsson, fyrrverandi stjórnarfor-
maður bankans, Einar Pálmi Sig-
mundsson, forstöðumaður eigin við-
skipta, og Ingólfur Helgason,
forstjóri bankans á Íslandi, allir
ákærðir í þessum hluta málsins.
Ásakaðir um blekkingar
Í ákærunni eru tekin fyrir fjögur
sérstök mál á söluhliðinni, en sam-
tals voru þar 68,25 milljón hlutir
keyptir sem voru að fullu fjármagn-
aðir af Kaupþingi með veði í bréf-
unum sjálfum. Um er að ræða félög-
in Mata ehf., Holt Investment Group
Ltd. og Desulo Trading Ltd. og fjár-
festinn Kevin Stanford. Lánaði
Kaupþing þessum aðilum tugi millj-
arða til viðskiptanna og segir í ákær-
unni að það hafi verið gert án full-
nægjandi veða og hafi stjórnendur
bankans þar með valdið honum stór-
felldu fjárhagslegu tjóni. Með því að
fjármagna kaupin að fullu og án ann-
arra veða eða trygginga en bréfanna
sjálfra eru stjórnendur bankans sak-
aðir um að hafa gefið ranga og mis-
vísandi sýn á eftirspurn eftir bréfum
í Kaupþingi með blekkingum og
sýndarmennsku.
Héraðsdómur Aðalmeðferð hefst í stóra markaðsmisnotkunarmálinu í dag.
Búist við vitna-
leiðslum í 17 daga
Lengd aðalmeðferðar án fordæmis
Al-Thani-málið var í raun einn angi
þessa máls, en þar var ákært fyrir
stærsta einstaka hluta söluhliðar-
innar. Í þessu máli er aftur á móti
kauphliðin sameinuð öðrum
stórum söluhliðarmálum í eitt
heildar markaðsmisnotkunarmál.
Í Al-Thani-málinu var um að
ræða sölu á 37,1 milljón hlutum í
bankanum, en í þessu máli er
samanlagður fjöldi seldra bréfa
rúmlega 65,2 milljónir. Málið er
því talsvert stærra, auk þess sem
hluteigandi aðilar eru fleiri. Í Al-
Thani-málinu voru þeir Hreiðar
Már, Sigurður og Magnús allir
dæmir í fjögurra til fimm og hálfs
árs fangelsis. Verði þrímenning-
arnir aftur fundnir sekir verður því
um að ræða viðbót við núverandi
dóm. Hægt er að skala upp dóminn
en ekki margfalda hann. Það þýðir
í raun að þeir gætu fengið há-
marksrefsingu fyrir markaðs-
misnotkun eða umboðssvik sam-
anlagt í báðum málunum.
Talsvert stærra í sniðum
AL-THANI-MÁLIÐ VAR EINN ANGI MÁLSINS