Morgunblaðið - 20.04.2015, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. APRÍL 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu það vera að elta uppi ein-
hverja hluti sem færa þér enga innri gleði.
Talaðu æsingalaust um hlutina. Sýndu kjark
og leyfðu hæfileikum þínum að blómstra.
20. apríl - 20. maí
Naut Það getur verið varasamt að fara um
ókunnar slóðir án nokkurs undirbúnings.
Heimilið er þitt vígi og þú mátt ekkert
spara til þess að það sé griðastaður þinn
og vandamanna þinna.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Á þessum árstíma er nauðsynlegt
að tryggja undirstöður sínar og finna út úr
því hvað aðrir eiga inni hjá þér. Kannski
fær makinn launahækkun eða annan bón-
us.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú finnur til þrasgirni í samskiptum
við foreldra og yfirboðara. Allt sem tengist
listum, eða leik við börn, sem og skemmt-
anir, mun veita þér mikla ánægju.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Manstu hvernig það var að vera ekki
umsetinn? Það er munaður sem þú þarfn-
ast núna. Mundu að ást er að taka þarfir
einhvers annars fram fyrir sínar eigin og þá
gengur allt að óskum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þegar þú sérð hlutina í öðru ljósi en
félagi þinn er það kallað „slagur“, en
stundum „fallega fjölbreytt álit“. Vinur þinn
upplifir samband ykkar svo að leiti beri í
milli.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú verður þú að taka á málum heima
fyrir áður en þau fara úr böndunum.
Finndu jafnvægi á öllum sviðum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér ætti að ganga vel að vinna
með vinum þínum og kunningjum í dag.
Leitaðu ráðgjafar ef þörf krefur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Taktu til hendinni og berðu þig
rétt að, ljúktu verki í eitt skipti fyrir öll.
Sestu niður, kannaðu stöðuna og leiktu svo
þeim leik sem þér þykir bestur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Allgóðar aðstæður eru til að
koma skikk á fjármálin í dag. Kaldhæðnin
er að þær eru ekki eins skyndilegar og sýn-
ist.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Stundum kemst þú bara ótrú-
lega vel að orði og ert fyndnari en flestir
aðrir. Notaðu peningana skynsamlega.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er ekki ástæða til annars en að
vera léttur í lund og láta lífið leika við sig.
Gerðu glöggan greinarmun á raunveruleika
og hugmyndaheimi.
Ég fékk góða kveðju frá ÓlafiStefánssyni sem er í sólar-
löndum sér til hvíldar og hress-
ingar:
Þó í fjarlægð fljúgi burt
er fjarska lítil von að þorni,
kemur á borðið kalt og þurrt
kampavín á hverjum morgni.
Hallmundur Kristinsson orti á
Boðnarmiði:
Hann er svo hugmyndaríkur
að hæfni til engum líkur.
Hvert sem hann fer
og hvar sem hann er
hvergi finnst annar slíkur.
Auðvitað fór ég strax að velta
fyrir mér, um hvern þetta væri ort,
en það vafðist fyrir mér. En aftur
og aftur kom sjálfslýsing Sölva
Helgasonar upp í hugann:
Ég er gull og gersemi,
gimsteinn elskuríkur,
ég er djásn og dýrmæti,
Drottni sjálfum líkur.
Sem auðvitað kallar fram brag-
hendu Bólu-Hjálmars:
Heimspekingur hér kom einn
á húsgangsklæðum,
með gleraugu hann gekk á skíðum,
gæfuleysið féll að síðum.
Það er alltaf gaman að rifja upp
umsagnir skálda um skáld. Þór-
bergur Þórðarson skrifar á einum
stað:
„Maður sá, er eg tel eigi aðeins
gáfaðastan allra skálda vorra, held-
ur jafnvel gáfaðasta manninn, sem
með þjóð vorri hefur verið, kemst
svo að orði um hrumleik sinn og
vesaldóm:
Finnst mér orðið fremur stirt
um ferðastjáið;
alltaf blaktir ýlustráið,
ekki getur Hjálmar dáið.
Hjálmar karlinn veigrar sér ekki
við að láta ýlustráið tala, og mun þá
ritdóma-taðskegglingum vorum
þykja nógu langt farið út úr land-
helgi röksemdanna.“
Sjálfur orti Þórbergur og birtist í
Hálfum skósólum:
Ég er mikið mæðugrey,
má því sáran gráta,
af því forðum ungri mey
unni eg fram úr máta.
Sigurður Breiðfjörð orti:
Sannast var að sopinn þótti
Sigga góður.
Kallaður var hann kvennamaður
sem kannski hefur verið slaður.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ort um sjálfan sig og
skáld um skáld
Í klípu
„ÞAÐ ER GOTT AÐ VIÐ UPPGÖTVUÐUM
ÞETTA SNEMMA. ÞAÐ ER AUÐVELDARA AÐ
MEÐHÖNDLA ÞETTA Á LIRFUSTIGINU.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„VERTU KJURR!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera með þinn eigin
mannlega hitapoka.
GRETTIR, ÞÚ ERT MEÐ
LEIÐAN ÁVANA
ÞÚ SKILUR
ÍSKÁPINN
EFTIR OPINN
ÉG ER AÐ
REYNA AÐ
SPARA ORKU!
ÉG
LÍKA!
ÞETTA ER DÝFLISSAN ÞAR SEM
FANGARNIR ERU GEYMDIR...
JA HÉRNA! TALANDI UM FÓLK
SEM ELSKAR TÓNLISTINA
SÍNA!
Aukin félagsleg þátttaka og meiribaráttuandi fyrir því að góð mál
nái fram að ganga er ein skarpasta
breytingin sem orðið hefur á ís-
lensku samfélagi síðustu ár. Fólk er
ekki lengur ragt við að stíga fram
fyrir skjöldu og veita valdhöfum að-
hald og krefjast úrbóta af þeirra
hálfu. Í því efni hafa flokksbönd
brostið. Í borgarsamfélaginu nálgast
fólk þessi mál gjarnan út frá hags-
munum barna sinna, það er að
grunnskólinn sé góður og íþrótta-
aðstaðan sömuleiðis. Það var í krafti
þess sem íbúar í Úlfarsárdal og
Grafarholti í Reykjavík fjölmenntu í
síðustu viku á fund með borgar-
stjóra sem þar kynnti að flýta ætti
framkvæmdum við hús hvar verður
skóli, íþróttastarf Fram, bókasafn,
sundlaug og fleira. Hafist verður
handa á þessu ári og eftir sjö ár og
tíu milljarða króna verður hin 15.500
fermetra bygging komin í gangið.
x x x
Það viðhorf Úlfdæla og Grafhylt-inga um að seint miði er skiljan-
legt. Á fundinum var bent á að frum-
byggjar hverfisins hefðu komið
þangað um aldamótin og að öll nauð-
synleg þjónusta yrði komin í hverfið
fyrst um aldarfjórðungi síðar. Slíkt
væri tæplega bjóðandi.
x x x
Í fyrrahaust voru kynntar niður-stöður samkeppni hönnuða um
borgarbygginguna nýju. Um tillög-
una sem byggt verður samkvæmt
sagði dómnefnd að með þessu fengi
hverfið „nýjan aðlaðandi jaðar sem
ljær honum nýja ásjón frá dalnum
og tengir saman náttúru og byggð á
ljóðrænan hátt“. Ennfremur að
styrkur tillögunnar fælist í „frjórri
útfærslu útivistarsvæða og innirýma
og innbyrðis tengslum þeirra“.
x x x
Ekkert vantar upp á skrúðmælgi íumsögninni hér að ofan. Stað-
reyndin er samt sú að í úthverfið
þarf aðeins byggingu fyrir grunn-
þjónustu. Tíu þúsund milljónir og
bygging sem lýsingin bendir þó til
að verði eins og konungshöll í ævin-
týralandi? Væri ekki hægt að kom-
ast af með eitthvað ódýrara og ein-
faldara svo kröfum íbúa væri mætt?
Spyr sá sem ekki veit.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Fel Drottni verk þín og þá bera áform
þín árangur. (Orðskviðirnir 16:3)