Reykjalundur - 01.10.1980, Qupperneq 11

Reykjalundur - 01.10.1980, Qupperneq 11
SIGRÍÐUR INGIMARSDÓTTIR Alþjóðaár fatlaðra 1981 Unclirbúningur að framkvœmdum d Islandi A 31. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 1976 var samþykkt að lýsa því yfir, að árið 1981 skylcli vera alþjóðaár fatlaðra. Haukur Þórðarson yfirlæknir gerði þessari yfirlýsingu S.Þ. og tilgangi hennar góð skil í síðasta blaði Reykjalundar. Því er óþarfi að endurtaka hér það, sem þar kom fram, enda einkum ætlast til að ég geri stutta grein fyrir undirbúningi hérlendis. í október s.l. skipaði þáverandi félagsmála- ráðherra, Magnús Magnússon, þriggja manna nefnd til að annast kynningu þessa máls og hafa forgöngu um undirbúning og skipu- lagningu á árinu 1981, í santræmi við áður- nefnda yfirlýsingu S.Þ. varðandi alþjóðaár fatlaðra. I nefndinni eru: Árni Gunnarsson alþingismaður, sem er formaður nefndar- innar, skipaður af félagsmálaráðherra, Ólöf Ríkarðsdóttir fulltrúi, skipuð skv tilnefn- ingu Endurhæfingarráðs ríkisins og Sigríður Ingimarsdóttir húsmóðir, skipuð skv. tilnefn- ingu Öryrkjabandalags íslands. Nefndin tók þegar til starfa og hefur síðan haldið 3—4 fundi að meðaltali í hverjum mán- uði, auk funda með aðilum er snerta mál fatl- aðra á einn eða annan hátt. Nafnið Aljjjóða- ár fatlaðra 1981 var til hagræðis stytt í ALFA ’81 með Jjví að taka tvo fyrstu stafina úr hvoru orði. Flestum virðist falla jjetta nafn, og er jjað jjegar orðið fast í sessi; rætt um Alfa-nefnd og Alfa-ár. Nafnið er einnig táknrænt. Það Ijoðar vonandi upphaf nýrra stórátaka í mál- efnum fatlaðra á árinu 1981. Nefndarnrönnum var frá upphafi Ijóst, að Jjau viðamiklu störf, er jjeim voru ætluð, yrðu ekki unnin eingöngu í hjáverkum. Fjármagn jjurfti til að launa fastan starfsmann og leggja fram fé til framkvæmda, sem ekki yrðu unnar að öðrunr kosti. Var því sótt unr styrk á fjár- lögunr 1980 og veittar 20 milljónir króna. í REVKJALUNDUR 9

x

Reykjalundur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.