Reykjalundur - 01.10.1980, Síða 46

Reykjalundur - 01.10.1980, Síða 46
LOVÍSA BJÖRGVINS- DÓTTIR Lovísa var fædd 2. janúar 1924 í Vestmannaeyjum. Hún andaðist 29. mars 1979. Lovísa giftist 7. febrúar 1958 Jóni Karlssyni frá Hafnarnesi. Var heimili þeirra hin síðari ár að Faxa- stíg 86. Foreldrar Lovísu voru meðal hinna mörgu Aust- firðinga er fluttust til Eyja á uppgangsárum vélbátaút- gerðarinnar. Þá er Lovísa hafði aldur til tók hún þátt í þeim störf- um er til féllu í útgerðar- plássi, en mörg hin síðari ár átti hún við vanheilsu að búa og þurfti olt að dvelja á sjúkrahúsum. I.ovísa var búkhneigð og las mikið meðan hún hafði heilsu til. Hún var áhuga- samur félagi í félögunum Sjálfsbjörg og Berklavörn. EGGERT ÓLAFSSON SKIPASMÍÐAMEISTARI, VESTMANNAEYJUM Eggert Ólafsson var fæddur á Eyrarbakka 7. mars 1924. Hann andaðist að heimili sínu, lllugagötu 75, hinn 12. apríl 1980. Eggert ólst upp í foreldra- húsum. Ólafur faðir lians var um áratugi í röö fremstu verkstjórnarmanna. Og Egg- ert erfði þá eiginlcika löð- ur síns. Eggert fluttist til Eyja ár- ið 1944. Hinn 13. maí 1945 kvæntist hann Helgu Ólafs- dóttur, Sveinssonar heil- brigðisfulltrúa og sjóveitu- stjóra. Helga er formaður Berklavarnar í Eyjum. Eggert hóf nám í skipa- smíðum 1945 og starfaði að þeirri iðn til 1958, hjá hinum kunna skipasmið Gunnari M. Jónssyni, en þá stofnaði hann, ásamt öðrum, Skipa- viðgerðir h.f. Frá 1947 var fyrirtækið í eigu Eggerts og fjölskyldu hans. Eggert Ólafsson var mað- ur athafna og alltaf var gott til hans að leita um margs- konar fyrirgreiðslu. Það þekkja útgerðarmenn í Eyj- um og víðar manna best. Þess er minnst í Sjómanna- dagsblaðinu, riti sjómanna í Eyjunt: „Störf lians í sam- bandi við skipasmíði og þjónustu við bátaflotann hafa reist lionum þann bautastein, að orð verða þar lítils megnug um að tala. Allt hans starf við skipa- smíðar hér í Vestmannaeyj- um verður seint að verðleik- um metið.“ Um margra ára skeið var skipalyfta hér í Eyjum liug- sjón hans, og má segja að hann hafi séð hilla undir að málið væri í höfn. Á Eggert hlóðust ýmis ábyrgðarstörf í þágu bæjar- félagsins, og öll voru jiau rækt af áhuga og samvisku- senti. Þá var Eggert formaður Iðnaðarmannafélagsins í 12 ár og virkur félagi í Berkla- vörn var hann jafnan. Hin síðari ár var liann í sóknar- nefnd Landakirkju. Með Eggerti er genginn drengur góður, en svo var drengskaparmönnum lýst til forna. H. G. 44 REYKJALUNDUR

x

Reykjalundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.