Reykjalundur - 01.10.1980, Page 45

Reykjalundur - 01.10.1980, Page 45
björtum augum til framtíð- arinnar, þrátt fyrir fjötra þá, sem hinn livíti dauði felldi liann í. Og Björgvin fór með sigur af hólmi. Hann komst út í lífið og heim í Hrísey. Heimabyggð sinni unni hann heils hugar og mun á bernskudögum hafa lieitið henni tryggðum, og jaað heit var efnt með ágætum. Hjá útibúi KEA í Hrísey vann Björgvin við verslunarstörf næstu fjögur árin. Lengur voru ekki gefin grið, skuggi heilsubrestsins lá í leyni og féll yfir að nýju. Arið 1957 varð Björgvin að fara á Krist- neshæli öðru sinni og gista innan veggja þess um hríð. Var hann öðru hverju mikið veikur, og varð að gangast undir aðgerð. En hugarstyrk- urinn brást honum ekki fremur en fyrr, né heldur bjartsýnin eða starfsviljinn. Tók liann virkan þátt í fé- lagslífi hælisbúa, vann í skemmtinefnd og var í ýms- um störfum á vegum félags- ins Sjálfsvarnar við góða hylli. Sigurvonir Björgvins rætt- ust, sem í hið fyrra skiptið. Enn komst hann út af hæl- inu og heim í sína góðu eyju. Var hann eitt sumar hjá for- eldrum sínum í Lambhaga, en síðan lá leiðin á Vinnu- heimili SÍBS að Reykjalundi. Gekk hann þar að störfum eftir föngum. Förin til Reykjalundar varð örlaga- spor á ævigöngu Björgvins Jónssonar, því að jiar mætti hann lífsförunaut sínum, Áslaugu Kristjánsdóttur frá Hlíð í Köldukinn. Hún hafði eins og hann, horfið til Reykjalundar eftir sigur í sömu baráttu, en einnig lienni hafði um hríð verið búin vist á Kristneshæli. Vor- ið 1960 fluttust Jjau alfarin heim til Hríseyjar. Lílið var með björtum blæ. Enn gekk Björgvin til starfa hjá úti- búi KEA — nú á skrifstofu. Síðar varð Jtað hlutverk lians að taka við stjórn útibúsins, og við fjölmörgum öðrum trúnaðarstörfum fyrir sveitar- félagið. Var hann t. d. allt í senn oddviti lneppsnefndar, hreppstjóri og sýslunefndar- maður. Hann hafði brenn- andi áhuga fyrir allri upp- byggingu í eynni og sérhverju {dví, sem fengi stuðlað að heill hennar og hagsæld. Hér naut hann öruggrar liðveislu konu sinnar, sem virti hans áhugamál, vann markvisst við hlið hans og gekk inn í niörg af störfum hans, jjegar Jjess Jrurfti við. Heimili Jjeirra var og gestkvæmt, glatt og hlýtt og sem miðpunktur mann- lífs eyjarinnar. Nutn J>au Björgvin og Áslaug trausts og vinsælda í hvívetna. Þetta voru hamingjurík ár, sem Jjau áttu þarna í liinu grósku- mikla og fjöljiætta starfi, á meðal vina og vandamanna. Sólargeislar voru synirnir tveir, Narfi og Teitur, og aðrir sem næstir stóðu. Þarna var mikið til að lifa fyrir. Elfur lífsins streymdi fram með hrífandi niði og takt- sláttur starfs og hugsjóna var stemmdur til samræmis. En ennþá syrti að. Árið 1978 varð Björgvin fyrir al- varlegu hjartaáfalli, sent kostaði hann margra mánaða sjúkrahúsvistir, og eftir Jjetta varð eigi fengin sú heilsubót, sem treysta mátti. Þau Björg- vin urðu að yíirgefa sín verk- efni og vé í Hrísey. Fluttu Jiau til Akureyrar sumarið 1979 og bjuggu sér heimili að Áshlíð 4. Þrátt fyrir afar veika heilsu Björgvins stóðu vonir til, að Jjau fengju, í fylgd heilladísa sinna, gengið veginn saman enn um sinn. Það fór á aðra lund. Þann 16. desember sl. var Björgvin allur. Þann 28. desember fór fram í Akureyrarkirkju fjöl- menn og hátíðleg minningar- athöfn, og sama dag var út- för hans frá Hríseyjarkirkju, Jjar sem hvert sæti var skipað. Hinn trúi sonur var kom- inn heim til hinstu náða. Lokið var minnilegri, reynsluríkri göngu, sem Jjreytt hafði verið með dáð og hetjubrag. Eftir lifir minningin um vorhugann ... minning merluð ljósi. Jórunn Ólafsdóttir frá Sörlastöðum. REYKJALUNDUR 43

x

Reykjalundur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.