Fréttablaðið - 30.11.2015, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 30.11.2015, Blaðsíða 4
Síðumúla 16 | Opið mán - fös 8:30 - 17:00 | S: 580 3900 Falleg glös gleðja augað StjórnSýSla Bæjarráð Norður- þings telur mikilvægt að tryggja ásættanlegt þjónustustig lög- reglunnar á svæðinu. Aukinn íbúafjöldi í sveitarfélaginu vegna uppbyggingar á Bakka kallar á að bætt verði í löggæslu á svæðinu. Kristján Þór Magnússon, sveitar- stjóri Norðurþings, telur þjónustu- stig lögreglunnar á Húsavík of lágt. Á fundi bæjarráðs Norðurþings þann 20. nóvember síðastliðinn var staða lögreglunnar rædd. Fyrir fundinn var lagt fram minnisblað Kristjáns Þórs sem hann ritaði eftir fund með lögreglustjóra á Norður- landi eystra, Höllu Bergþóru Björnsdóttur. Aðeins þrír lögreglu- menn eru á vakt á hverjum degi hjá lögreglunni á Húsavík. Einn er á vakt frá sjö árdegis til þrjú eftir hádegi. Þá taka tveir við og eru til eitt eftir miðnætti. „Það sýnir sig að lítið má út af bregða og þá er enginn á vakt,“ segir Kristján Þór. „Svæðið sem þessi lögregla sinnir er gríðarlega stórt og fjölfarið af ferðamönnum einnig. Svo erum við á leið inn í uppbyggingartíma á Bakka með tilheyrandi hættu á slysum og óhöppum og því teljum við mikla þörf á að auka við mann- skap lögreglunnar á svæðinu.“ Halla Bergþóra segir það ekkert launungarmál að lögregluembætt- ið á Norðurlandi eystra, sem sinnir fimmtungi alls landsins að flatar- máli, sé ekki nægjanlega mannað. „Við værum til í að geta bætt við okkur um sjö starfsmönnum allt frá Fjallabyggð til Þórshafnar. Þetta er víðfeðmt svæði og við teljum mönnunina nú í algjöru lágmarki,“ segir Halla Bergþóra. „Hins vegar höfum við ekki fengið svigrúm í fjárlögum til að bæta við okkur mannskap.“ Daníel Guðjónsson, yfirlög- regluþjónn á Akureyri, segir umdæmið lengi hafa þurft að berjast við niðurskurð. „Eins og staðan er núna er sami lögreglu- fjöldi á dagvakt hér á Akureyri og var þegar bæjarlögreglan hætti störfum og lögreglan fór yfir til ríkisins, rétt eftir 1970. Það hefur fækkað í lögregluliðinu eftir hrun en einnig verður að minna á það að það fækkaði einnig á árunum fyrir hrun,“ segir Daníel. sveinn@frettabladid.is Telja mikilvægt að fjölga í lögreglunni vegna Bakka Framkvæmdir á Bakka við Húsavík gætu aukið íbúafjölda Norðurþings um 600 manns. Sveitarstjóri og lög- reglustjóri sammála um þörfina á að fjölga lögreglumönnum í umdæmi Lögreglunnar á Norðausturlandi. Kjaramál Viðræður starfsmanna álversins í Straumsvík og stjórn- enda fyrirtækisins eru enn strand. Boðað verkfall hefst á miðviku- daginn, verði ekki samið fyrir þann tíma. Fulltrúar starfsmanna álversins hafa átt hátt í þrjátíu samninga- fundi hjá Ríkissáttasemjara síðustu mánuði með stjórnendum fyrir- tækisins í von um að leysa kjara- deilu þeirra. Krafa starfsmann- anna hefur verið sú að fá sömu launahækkanir og hafa orðið á almennum vinnumarkaði. Svo virðist sem samninganefnd- irnar hafi að mestu leyti náð saman um launamál og sérkröfur. Gerð nýrra kjarasamninga strandar hins vegar á kröfu stjórnenda fyrirtækis- ins um að fá heimild til að bjóða út fleiri störf til verktöku. - lvp Enn útlit fyrir verkfall S K i p u l ag S m á l G a r ð b æ i n g a r eru ósáttir við þann skilning hjá Reykjavíkurborg að samkvæmt nýsamþykktu svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins sé fallið frá gerð mislægra gatnamóta á mótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar. Skipulagsnefnd Garðabæjar vill að svæðisskipulagsnefnd svari því hvort hún sé sammála þessari túlkun Reykjavíkurborgar. „Það er skilningur skipulagsnefndar Garða- bæjar að sátt sé um það að útfærsla Reykjanesbrautar, að  minnsta kosti frá Miklubraut og til suðurs, sé með mislægum gatnamótun til að tryggja stöðu brautarinnar sem meginstofnbraut bílaumferðar á höfuðborgarsvæðinu,“ segir skipu- lagsnefnd Garðabæjar. - gar Vilja mislæg gatnamót öryggiSmál Bæjaryfirvöldum í Mos- fellsbæ hafa borist erindi frá íbúum á tveimur stöðum sem óska eftir því að bærinn geri úrbætur til að hindra vatnsflóð í húsum þeirra. Í báðum til- vikum er vitnað til flóða sem urðu í miklu vatnsveðri 14. mars á þessu ári. Íbúar í Álafosskvos segjast hafa fundað með bæjarverkfræðingi um leiðir til að koma í veg fyrir að alvarlegt vatnstjón endurtaki sig. Meðal þess sem þurfi að gera sé að hækka varnargarð meðfram Varmá, hreinsa reglulega framburð jarðefna úr ánni og hækka göngubrú svo hún valdi ekki stíflu. Mikið tjón mun einnig hafa orðið í fjölbýlishúsinu Klapparhlíð 1 þennan dag þegar flæddi inn í bílakjallara og geymslur í gegnum útblástursrör sem fór á kaf. „Það er krafa húsfélags Klapparhlíðar 1 að Mosfellsbær tryggi að frárennsli frá þessari lægð við húsið verði bætt verulega svo sambærileg vatnssöfnun verði ekki möguleg í framtíðinni,“ segir í bréfi húsfélagsins sem ella vill að bærinn borgi hækkun á áðurnefndu útblástursröri. - gar Íbúar vilja að bærinn hindri flóð Húsavík er í umdæmi lögreglunnar á Norðausturlandi. Umdæmið er gríðarlega víðfeðmt. Að mati lögreglustjórans er mönnun í algjöru lágmarki. FréttAblAðið/GVA Svæðið sem þessi lögregla sinnir er gríðarlega stórt og fjölfarið af ferðamönnum einnig. Kristján Þór Magnússon, sveita- stjóri Norðurþings Mikið vatnsveður varð á höfuðborgarsvæðinu um miðjan mars á þessu ári. FréttAblAðið/SteFáN paríS Lögregla í París þurfti að grípa til táragass gegn mótmæl- endum á Lýðræðistorginu þar í gær. Þeir sem söfnuðust þar saman mót- mæltu því að skipulögð loftslags- ganga í borginni var bönnuð vegna óvissu í öryggismálum. Ganga átti um götur Parísar, líkt og annars staðar í heiminum, til að skora á þjóðarleiðtoga heimsins að sam- þykkja tillögur gegn losun gróður- húsalofttegunda. Yfirlýst neyðarástand er enn í gildi í borginni eftir ódæðin þann 13. nóvember síðastliðinn. Þar létu 130 lífið og tugir særðust. Það var af þeim sökum að borgaryfirvöld í París ákváðu að banna loftslagsgönguna. Áður en gangan var bönnuð hópuðust þúsundir manna á Lýð- ræðistorgið en þar átti gangan að hefjast. Skildu margir þátttakendur eftir skópar á torginu til þess að sýna málstaðnum stuðning og sem tákn um ófarna kröfugöngu. Þó nokkur fjöldi einstaklinga lét sér það ekki nægja heldur ákvað að ganga og sló þá í brýnu milli lög- reglunnar í borginni og mótmæl- enda. Um 2.000 skipulagðar göngur voru haldnar um allan heim í gær. Krafa var sett fram í göngunni um að íslensk stjórnvöld myndu skuldbinda sig til að draga úr losun gróður húsa lofttegunda um 40 prósent á næstu árum. 21. loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna hefst í borginni í dag og stendur til 11. desember. Miklar væntingar eru gerðar til ráð- stefnunnar og vonir bundnar við að hún festi í sessi baráttu gegn hlýnun jarðar. Þúsundir eru mættar til Parísar í þeim erinda- gjörðum að þrýsta á alþjóða- samfélagið að berjast gegn lofts- lagsbreytingum í heiminum. - sa Þúsundir mótmæltu á götum Parísar Hundruðum skópara var raðað á lýðræðistorgið í París í gær. loftslagsganga í borginni var bönnuð vegna ótryggs ástands. Tuttugasta og fyrsta loftslagsráðstefna Samein- uðu þjóðanna hefst í dag. 3 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m á n u D a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 3 0 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :1 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 2 D -7 7 9 0 1 7 2 D -7 6 5 4 1 7 2 D -7 5 1 8 1 7 2 D -7 3 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 2 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.