Fréttablaðið - 30.11.2015, Síða 6
– fyrst og fremst ódýr!
Fylgstu með
Jóladagatali Krónunnar.
Ný tilboð alla mánudaga og
fimmtudaga til jóla.
Fylgstu með Jóladagatalinu á facebook síðu Krónunnar – Jólaleikur í hverri viku
*Gildir til
2. desember
399kr.pk.
Papco Jóla WC 6 rúllur
269kr.pk.
Papco Jóla Eldhús
rúllur, 3 rúllur
GILDIR
Á MEÐAN
BIRGÐIR
ENDAST*
Vestmannaeyjar Um 8.000 rúm-
metrar af sorpi eru árlega fluttir
í gámum með Herjólfi frá Vest-
mannaeyjum. Sorpbrennslunni í
Vestmannaeyjum var lokað árið
2012. Sorpinu er annaðhvort ekið
til Reykjaness eða alla leið norður
á Blönduós.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, segir þessa til-
högun ekki af hinu góða. Bæjar-
yfirvöld hafa verið að skoða málið
undanfarin misseri og leitað leiða
til að farga sorpi. Nýjar brennslur
séu orðnar mun fullkomnari en
þær voru hér áður fyrr. Þessi flutn-
ingur hefur í för með sér mikla olíu-
notkun stórra ökutækja sem menga
andrúmsloftið og slíta vegakerfinu.
Því er í skoðun bæjaryfirvalda í
Vestmannaeyjum að gera eitthvað
í málinu.
„Mín skoðun hefur alltaf verið
sú að þetta var óþarfa offors þegar
brennslunum var lokað á sínum
tíma. Það var til marks um skiln-
ingsleysi þáverandi stjórnvalda að
gefa okkur ekki einhvern umþótt-
unartíma til að vinna að lausn á
stöðunni. Það að flytja sorp með
ferju upp á land er ekki lausn á
stöðunni,“ segir Elliði.
Árið 2003 voru innleiddar hertar
reglur um sorpbrennslur í gegnum
EES-samninginn en undanþága
fengin af hálfu íslenskra stjórn-
valda fyrir eldri sorpbrennslur sem
þá voru starfandi, þar á meðal á
Kirkjubæjarklaustri, í Vestmanna-
eyjum og á Ísafirði. Mælingar árið
2007 sýndu að díoxín í útblæstri í
Eyjum var 85 sinnum meira en við-
miðunarmörk fyrir sorpbrennslur
sem starfa á grundvelli EES-reglna
frá 2003 gera ráð fyrir.
„Kostnaðurinn sem hefur lagst
á íbúa Vestmannaeyja sem og
annarra sveitarfélaga sem hafa
þurft að búa við þessa stöðu er
gríðarlegur. Við búum hér á eyju
og þurfum að flytja sorp með far-
þegaferjunni okkur upp á land. Það
verður ekki búið við þetta ástand
mikið lengur,“ segir Elliði. „Það er
eingöngu eitt í stöðunni og það er
að brenna sorp. Það er umhverfis-
vænast og sennilega hagkvæmast
fyrir þjóðfélagið. Við þurfum skiln-
ing stjórnvalda á að búseta okkar á
eyju skapi okkur sérstöðu.“
sveinn@frettabladid.is
8.000 rúmmetrar af
sorpi flutt með Herjólfi
Átta þúsund rúmmetrar fara árlega með Herjólfi frá Eyjum og upp á land. Sorp
flutt til Blönduóss og á Reykjanes. Gríðarlegur kostnaður fyrir samfélagið, segir
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum sem vill fara að brenna sorp á nýjan leik.
Sérstakir ruslagámar eru fluttir frá meginlandinu til Eyja, þaðan er þeim aftur siglt
upp á fastaland. Gríðarlegur kostnaður segir bæjarstjóri. Fréttablaðið/ÓSkar
Rústir í Jemen eftir árásir Sádi -Araba
Jemenar skoða rústir eftir árás Sádi-Araba á borgina Sanaa í Jemen í gær. Fréttir herma að Sádi-Arabar hafi gert
margar árásir á Húta í borginni. Sádi-Arabar eru sakaðir um að hafa drepið hundruð Jemena í ár. Fréttablaðið/EPa
Mín skoðun hefur
alltaf verið að þetta
var óþarfa offors þegar
brennslunni var lokað á
sínum tíma.
Elliði Vignisson
bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum
3 0 . n ó V e m b e r 2 0 1 5 m Á n U D a G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
2
D
-C
6
9
0
1
7
2
D
-C
5
5
4
1
7
2
D
-C
4
1
8
1
7
2
D
-C
2
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K