Fréttablaðið - 30.11.2015, Qupperneq 8
Atvinnubílar
Fyrir erfiðustu verkin
Volkswagen Crafter
Extreme Edition
Crafter Extreme Edition kostar aðeins frá
4.596.774 kr. án vsk
Volkswagen Crafter er hannaður til að takast á við krefjandi verkefni
þar sem styrkur og notagildi eru í forgangi. Crafter er einstaklega
hagkvæmur og er með mjög öflugum en jafnframt sparneytnum
díeselvélum. Volkswagen Crafter er með 3 ára ábyrgð og allt að
250.000 km akstur.
Líttu við og í sýningarsal VW Atvinnubíla og kynntu þér einstaklega vel
útbúinn Volkswagen Crafter Extreme Edition.
Aukalega í Volkswagen Crafter
Extreme Edition
• Hraðastillir (Cruise control)
• Bluetooth símkerfi
• Hiti í bílstjórasæti
• Fjaðrandi hæðastillanlegt ökumannssæti
með armpúða
• Vélarhitari með fjarstýringu og tímastilli
• Rafmagns-miðstöðvarhitari
• Aðgerðastýri
• Fjarlægðaskynjarar með bakkmyndavél
• Díóðulýsing í flutningsrými
• Klæðning og rennur í flutningsrými
Staðalbúnaður
• Rennihurðir á báðum hliðum
• 16“ stálfelgur
• Lokað skilrúm með glugga
• ABS / EBV
• ESP stöðugleikastýring og spólvörn
• Bekkur fyrir 2 farþega með
geymslukassa
• Loftpúðar fyrir ökumann og farþega
• Útvarp með SD kortarauf
• Klukka
• Fullkomin aksturstölva
• Glasahaldari
• Fjarðstýrðar samlæsingar
• Rafstýrðir upphitaðir hliðarspeglar
• Hæðarstillanlegt öryggisbelti
• 270° opnun á afturhurðum
Mögulegur valbúnaður
• Dráttarbeisli 180.000. kr m/vsk
Til afhendingar str
ax!
„Þegar ég byrjaði í gagnfræðiskóla
byrjaði ég í ungmennasamtökum
Tamíla af því að ég vildi vinna gegn
þeirri þjóðernishyggju sem yfirvöld
í Srí Lanka beittu gegn Tamílum og
vinna gegn öllu því óréttlæti sem
átti sér stað þar,“ segir Khams-
hajiny Gunaratnam, gjarnan þekkt
sem Kamzy, 27 ára varaborgarstjóri
Óslóar, um það hvernig hún byrj-
aði í stjórnmálum. Hún var stödd á
Íslandi um helgina til að kveikja á
Óslóartrénu ásamt Degi B. Eggerts-
syni, borgarstjóra Reykjavíkur.
Hún kom til Noregs þegar hún
var þriggja ára með mömmu sinni
og bróður. Pabbi hennar bjó þegar
í Norður-Noregi.
„Við bjuggum fyrir norðan í um
tvö ár og svo fluttum við til Óslóar
af því að mamma vildi að ég lærði
tamílsku, sem er móðurtunga mín. “
Nítján ára í borgarstjórn
Hún var í fyrsta sinn sett á fram-
boðslista árið 2006 þegar hún var
átján ára og var svo kosin í borgar-
stjórn þegar hún var nítján ára og
varð varaborgarstjóri nú í október.
„48 klukkustundum áður en nýja
borgarstjórnin var mynduð var mér
sagt að ég ætti að verða varaborgar-
stjóri,“ segir hún.
„Ég sagði bara nei, spyrjið ein-
hvern annan! En þau sögðu mér að
við þyrftum að endurspegla nýja
kynslóð og nýja hluta Óslóar og alla
þá sem finnst þeir ekki hafa rödd í
borgarstjórninni. Þess vegna spurðu
þau mig.“
Í upphafi fannst henni þetta yfir-
þyrmandi af því að hún var svo ung.
En hún telur að af því hún sé svo ung
er mun fleira ungt fólk sem lætur sig
málefni borgarinnar varða.
Þurfum ævilanga baráttu
„Foreldrar mínir koma frá landi
þar sem staðan er þannig að ef þú
ert Tamíli og þátttakandi í stjórn-
málum þá verður þú vafalaust
drepinn. Þegar ég sagði mömmu
minni að ég hefði áhuga á stjórn-
málum varð hún áhyggjufull. Það er
nokkuð kaldhæðið í ljósi þess að ég
eyddi miklum tíma í að segja henni
að í Noregi er það öruggt að vera í
stjórnmálum.“
Kamzy er ein þeirra sem lifðu af
hryðjuverkaárás Anders Behring
Breivik á sumarbúðir ungliða-
hreyfingar Verkamannaflokksins
í Útey þann 22. júlí 2011. Hún
synti til lands í stað þess að vera
eftir á eyjunni. Móðir hennar
var í Danmörku þennan dag en
Kamzy hringdi í hana til að segja
henni að hún væri örugg.
„Þá sagði hún við mig að hún
hefði ekki flúið frá skothríðinni í
Srí Lanka til að hægt væri að skjóta
á mig í Noregi.“
Eftir árásina í Ósló og Útey var
norskt samfélag upptekið af því
hvernig ætti að bregðast við eftir
árásirnar. Fjölmargir dást að nálgun
Norðmanna sem gjarnan endur-
speglast í orðum Jens Stoltenbergs
fyrrverandi forsætisráðherra Nor-
egs: „Svarið við árásunum er meira
lýðræði og opnara samfélag.“
„Ábyrgð okkar er að tryggja það
að enginn alist upp til að verða
hryðjuverkamaður eins og Breivik,“
segir Kamzy.
„Það þýðir að öllum manneskjum
finnist þau vera hluti af samfélaginu.
Til dæmis erum við með 3.000 börn
sem eru að bíða eftir leikskólaplássi
í Ósló, við erum með mismunandi
tómstundir sem eru bara aðgengi-
legar efnuðu fólki og foreldrum, við
erum með fullt af fólki sem dettur
út úr skólakerfinu. Við verðum að
tryggja að fólk sé þátttakendur í
öllum stigum samfélagsins. Þetta er
umræðan sem við eigum að halda á
lofti eftir 22. júlí.“
Hennar skilaboð eftir hryðju-
verkaárásirnar í París eru þau sömu
og fyrir fjórum árum. Hún segir að
það sé ábyrgð allra í samfélaginu að
berjast gegn öfgum.
„Ég hef ávallt sagt fyrir hönd
minna föllnu félaga að við þurfum
ekki mínútu þögn heldur ævilanga
baráttu fyrir betra samfélagi. Mín
skilaboð eru þau sömu og eftir 22.
júlí. Stöndum saman. Að sundra
samfélaginu er sigur fyrir hryðju-
verkamennina. Það eru engin „þau“
í samfélaginu, bara „við“.
Engin „þau“ í samfélaginu, bara „við“
Khamshajiny Gunaratnam kom til Noregs frá Srí Lanka þegar hún var þriggja ára og er nú orðin varaborgarstjóri Óslóar 27 ára gömul.
Hún er ein þeirra sem lifðu af hryðjuverkaárásina í Útey árið 2011. Skilaboð hennar eftir árásirnar í París eru þau sömu og eftir Útey.
Móðir Kamzy hafði áhyggjur af stjórnmálaþátttöku hennar. „Ég flúði ekki frá skot-
hríðinni í Srí Lanka til að hægt væri að skjóta á þig í Noregi.“ FrÉttabLaðið/ErNir
Ábyrgð okkar
er að tryggja
það að enginn
alist upp til að
verða hryðju-
verkamaður
eins og Breivik.
Stefán Rafn
Sigurbjörnsson
stefanrafn@frettabladid.is
3 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m Á n U D A G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
2
D
-B
2
D
0
1
7
2
D
-B
1
9
4
1
7
2
D
-B
0
5
8
1
7
2
D
-A
F
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K