Fréttablaðið - 30.11.2015, Blaðsíða 14
Hvað gerði Gylfi?
Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunar
liði Swansea gegn Liverpool þar
sem velska liðið tapaði. Gylfi hafði
frekar hægt um sig en tók að vanda
öll föst leikatriði Swansea.
Stærstu úrslitin Sam Allardyce
heldur áfram að sanna gildi sitt í
ensku úrvalsdeildinni. Sunderland
vann annan leikinn í röð er það
lagði Stoke og er nú komið upp úr
fallsæti.
Hetjan Jamie Vardy
tryggði Leicester
eitt stig með
marki gegn Man.
Utd. Þótt það séu
kannski ekki beint
hetjutilburðir þá
bætti Vardy met Ruud van Nistel
rooy um helgina og er nú búinn
að skora í ellefu leikjum í röð í
deildinni.
Kom á óvart Arsenal var vissulega án
sigurs í tveimur síðustu leikjum en
það bjuggust fæstir við að Kanarí
fuglarnir myndu ná stigi af Arsenal.
Í dag
Coca Cola-bikar karla í handbolta
18.00 Stjarnan - Akureyri TM-höllin
19.30 Grótta - FH Hertz-höllin
19.30 Afturelding - Víkingur Varmá
17.55 Sassuolo - Fiorentina Sport
19.55 Napoli - Inter Sport
21.00 Messan Sport 2
Fékk gæsahúð þegar
Hendo kom inná. Gerði
eitthvað fyrir mig. Welcome
back son. #YNWA
Heiðar Austmann
@Haustmann
Nýjast
Aston Villa 2 –3 Watford
Bournemouth 3 – 3 Everton
C. Palace 5 – 1 Newcastle
Man. City 3 – 1 Southampton
Sunderland 1 – 1 Swansea
Leicester 1 – 1 Man. Utd
Tottenham 0 – 0 Chelsea
Norwich 1 – 1 Arsenal
Liverpool 1 – 0 Swansea
Efst
Man. City 29
Leicester 29
Man. Utd. 28
Arsenal 27
Tottenham 25
Neðst
Norwich 13
Sunderland 12
Bournem. 10
Newcastle 10
Aston Villa 5
Enska úrvalsdeildin
Domino’s-deild kvenna
Grindavík - Hamar 102-48
Grindavík: Whitney Frazier 24/, Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir 22, Ingunn Kristínardóttir 13,
Björg Guðrún Einarsdóttir 11, Halla Garðars-
dóttir 10/8 fráköst, Íris Sverrisdóttir 9.
Hamar: Jenný Harðardóttir 11, Salbjörg
Ragna Sævarsdóttir 10, Suriya McGuire 6/4
fráköst, Nína Kristjánsdóttir 6, Margrét
Hrund Arnarsdóttir 4.
Keflavík - Stjarnan 75-52
Keflavík: Melissa Zorning 17, Sandra Þrastar-
dóttir 13, Bríet Hinriksdóttir 11, Thelma
Dís Ágústsdóttir 8, Guðlaug Júlíusdóttir 7,
Þóranna Kika6, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 6.
Stjarnan: Margrét Kara Sturludóttir 20/8
fráköst, Ragna Margrét Brynjarsdóttir 15/8
fráköst, Bryndís Hanna Hreinsdóttir 13.
Snæfell - Haukar 75-65
Snæfell: Haiden Denise Palmer 43/14 frá-
köst/5 stoðsendingar, Bryndís Guðmunds-
dóttir 16/6 fráköst, María Björnsdóttir 5,
Hugrún Eva Valdimarsdóttir 5.
Haukar: Pálína Gunnlaugsdóttir 20 Helena
Sverrisdóttir 19, Sylvía Hálfdanardóttir 9
Staðan: Haukar 16, Snæfell 14, Grindavík 10,
Keflavík 8, Valur 6, Stjarnan 4, Hamar 2.
Fótbolti Saga enska úrvalsdeildar
liðsins Bournemouth er stútfull af
rómantík. Fyrir fimm árum var liðið á
botni Ddeildarinnar en Eddie Howe,
einn yngsti stjórinn í úrvalsdeildinni,
er búinn að koma liðinu upp í efstu
deild. Í stóru sögunni eru svo margar
smásögur og ein tengist Íslandi.
Þegar Adam Federici, markvörður
Bournemouth, þurfti að fara af velli í
mögnuðu 33 jafntefli gegn Everton
á heimavelli á laugardaginn kom inn
á 23 ára gamall strákur að nafni Ryan
Allsop. Allsop hefur líkt og Bournemo
uth náð langt á skömmum tíma, en
fyrir aðeins þremur árum var hann að
spila með Hetti í 1. deildinni á Íslandi.
„Ég kom til Íslands til að halda mér í
leikformi 2012 og spila alvöru fótbolta
í meistaraflokki. Mig skorti reynslu
og ég taldi að það að koma til Íslands
myndi koma ferlinum af stað á Eng
landi,“ segir Ryan Allsop í viðtali við
Fréttablaðið. Hann hafði svo sannar
lega rétt fyrir sér þar.
Allsop var hinn kátasti þegar
blaðamaður spjallaði við hann í
gær enda nýbúinn að ná einu helsta
markmiði enskra fótboltamanna: Að
spila í ensku úrvalsdeildinni. Hann
kom inn á í hálfleik í stöðunni 20
fyrir Everton en eftir svakalega rússí
banareið endaði leikurinn 33. Ever
ton skoraði, 32, á fimmtu mínútu í
uppbótartíma en nýliðarnir jöfnuðu
metin með síðustu spyrnu leiksins.
„Ég reyndi bara að líta á þetta
sem hvern annan leik,“ segir All
sop, aðspurður hvernig tilfinningin
var þegar þjálfarinn sagði honum
að hann þyrfti að spila seinni hálf
leikinn vegna meiðsla aðalmark
varðarins.
„Þetta var ótrúlegur leikur og svona
er fótboltinn. Það eru hæðir og lægðir
í þessu. Það var svo auðvitað ótrúleg
tilfinning að ná jöfnunarmarki svona
seint,“ segir hann.
Fullorðnaðist á Íslandi
En aftur að Íslandi. Allsop kom upp
í gegnum unglingastarf West Brom
wich Albion en var á mála hjá Mill
wall þar sem hann fékk ekkert að
spila. Honum bauðst þá að fara til
Hattar á Egilsstöðum og spila með
nýliðunum í 1. deild karla sumarið
2012.
„Þetta kom upp á rosalega mikil
vægum tímapunkti á mínum ferli,“
segir Allsop. „ Ef ég á að vera heiðar
legur vissi ég ekki mikið um hvert ég
væri að fara þegar ég lagði af stað til
Íslands. Ég vildi bara prófa eitthvað
öðruvísi og spila fótbolta. Þegar upp
var staðið get ég ekki ímyndað mér að
þetta gæti heppnast betur.“
Allsop var alveg magnaður í marki
Hattarmanna og tóku margir fótbolta
áhugamenn hér heima eftir frammi
stöðu hans þrátt fyrir að Allsop spilaði
aðeins átta leiki. Hann var langbesti
markvörður 1. deildarinnar þann tíma
sem hann spilaði hér heima.
Með Englendinginn í markinu
safnaði Höttur 10 af 21 stigi sínu og
fékk aðeins á sig að meðaltali 0,75
mörk í leik (6 í 8 leikjum). Eftir að
Allsop fór spiluðu þrír aðrir í marki
Hattar í leikjunum fjórtán sem eftir
voru og fékk liðið þá 2,35 mörk á sig
að meðaltali í leik. Höttur féll á end
anum úr deildinni.
„Ég fullorðnaðist á Íslandi mjög
fljótt. Ég var líka svo langt að heiman
að það var eitthvað sem ég þurfti að
gera,“ segir Allsop sem heldur enn
sambandi við fólk sem hann kynntist
fyrir austan. Þjálfari hans á þeim tíma,
Eysteinn Húni Hauksson Kjerúlf, fær
sérstakar þakkir frá nýjasta úrvals
deildarleikmanninum.
„Það skemmtilega við samfélags
miðla er að ég get fylgst með vinum
mínum á Íslandi. Ég verð ævinlega
þakklátur öllum á Egilsstöðum fyrir
gestrisnina. Ég get ekki talað nógu vel
um fólkið þarna. Eysteinn Hauksson,
þjálfarinn minn, var maður sem hjálp
aði mér mikið. Ég á honum mikið að
þakka fyrir að treysta mér og gefa mér
þetta tækifæri,“ segir Allsop.
Gafst ekki upp
Leyton Orient, sem spilaði í Cdeild
inni á Englandi tímabilið 2012/2013,
fékk veður af hinum þá tvítuga All
sop og hvernig hann var að standa sig
á Íslandi. Allsop hvarf af landi brott
eftir stutta dvöl og spilaði 20 leiki með
Leyton fyrir jól áður en Bournemouth
fékk hann á frjálsri sölu í janúar 2013.
Þar hélt hann áfram að spila og kláraði
tímabilið með liðinu sem hann er
samningsbundinn nú.
Allsop hjálpaði Bournemouth að
komast úr Cdeildinni og upp í B
deildina en eftir að spila 12 af fyrstu 13
leikjum liðsins tímabilið 2013/2014
missti hann sæti sitt og var lánaður til
Coventry.
„Við byrjuðum illa sem lið það
tímabilið. Það var stórt skref fyrir
liðið að fara upp um deild og það tók
okkur tíma að aðlagast. Það voru tvær
ástæður fyrir að ég missti sætið mitt; ég
var ekki að spila nógu vel og svo fékk
ég virkilega háan hita sem hélt mér frá
æfingum og leikjum í átta vikur. Bour
nemouth fékk annan markvörð inn
þannig að ég gat ekki fengið sætið mitt
aftur,“ segir Allsop sem gafst ekki upp
og stóð sig vel með Coventry.
„Ég var bara ánægður með fara á
láni. Ég var ekki að spila hjá Bourne
mouth þannig ég þurfti að komast
eitthvað annað. Það besta fyrir minn
feril á þessum tíma var að spila reglu
lega,“ segir Allsop.
Landsliðið draumurinn
Allsop var ekki sendur á láni þetta
tímabilið þrátt fyrir að hefja leik
tíðina sem þriðji markvörður. „Ég
skrifaði undir nýjan samning við
Bournemouth og vildi berjast um að
koma mér ofar í goggunarröðunina.
Í fótbolta getur allt gerst þannig að
maður getur alltaf fengið tækifæri,“
segir Allsop en það sannaðist á laug
ardaginn.
En hver er framtíðin, býst hann
við að standa á milli stanga Bourne
mouth um næstu helgi og og jafnvel
lengur? „Hver veit? Hlutirnir breytast
svo fljótt í fótboltanum þannig að
maður verður bara að takast á við
það sem kemur upp. Auðvitað vil ég
spila í úrvalsdeildinni eins lengi og ég
get. Við sjáum til hvað gerist í þessari
viku,“ segir Allsop.
Markvörðurinn ungi á mikið eftir
á sínum ferli. Hann er fullur sjálfs
trausts og segir stóra drauminn vera
að spila fyrir enska landsliðið.
„Ég hef alltaf haft mikla trú á
mínum hæfileikum. Þetta snýst um að
nýta tækifærið. Það væri draumur að
fá að spila fyrir sína þjóð. Það er eitt
hvað sem alla dreymir um að gera,“
segir Ryan Allsop.
Þakklátur öllum á Egilsstöðum
Enski markvörðurinn Ryan Allsop spilaði sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni um helgina fyrir Bourne
mouth í mögnuðu 33 jafntefli gegn Everton. Allsop spilaði fyrir þremur árum með Hetti á Egilsstöðum og
hefur náð langt á skömmum tíma. Í viðtali við Fréttablaðið segir hann að sig dreymi um landsliðssæti.
Ryan Allsop fór úr íslensku 1. deildinni í ensku úrvalsdeildina á þremur árum. Hér ver hann af stuttu færi gegn Romelu Lukaku í leiknum á laugardaginn. FRéttAbLAðIð/GEtty
Tómas Þór
Þórðarson
tomas@365.is
Það skemmtilega
við samfélagsmiðla
er að ég get fylgst með vinum
mínum á Íslandi.
Ryan Allsop, markvörður Bournemouth
3 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 5 m Á n U D A G U r14 S p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
sport
8 Allsop spil-aði átta leiki með Hetti áður en hann fór aftur til Englands.
3Allsop hóf tíma-bilið sem þriðji markvörður Bournemouth en fékk tækifæri í 14. umferð.
3
0
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:1
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
2
D
-5
0
1
0
1
7
2
D
-4
E
D
4
1
7
2
D
-4
D
9
8
1
7
2
D
-4
C
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K