Húnavaka - 01.05.1986, Page 154
SIGVALDI HJÁLMARSSON:
Mystísk reynsla
Úr ritgerðinni „Sólskin í sálinni“
í bók Sigvalda Hjálmarssonar:
„Eins og opinn gluggi“.
Dalurinn sveipaðist kynlegum blæ þessar þögulu stundir. Mildur
roði lék um skörðótt fjöllin i norðri. Dalurinn varð eiginlega sjálflýs-
andi, fullur daufu skini sem kom hvergi að. Óraunveruleikablær
lagðist yfir allt. Græn slikja hlíðanna og blámi fjallanna var að vísu
hvort tveggja eins og vant var, en sjálft form umhverfisins og yfirborð
allra hluta var eins og gagnsæ hula, svo allt líktist það fremur mynd en
landslagi.
Utan úr fjarskanum barst mér að eyrum niðurinn frá ánni. Ég gat
lagt við hlustirnar uns kliðurinn frá bæjarlæknum greindist frá niði
árinnar. Og ég gat haldið áfram að leggja við hlustirnar uns ég heyrði
þögnina, sem var á bak við allt. Þessa djúpu þögn sem allir hlutir,
hljóð, orð og athafnir eru mörkuð eins og skrift i sandi. Og ég gat meira
að segja haldið áfram að leggja við hlustirnar uns mér fannst þögnin
vera farin að draga andann í mér og allt í kringum mig.
Þegar þú sérð landslag eða sjó eða loft á þennan hátt, og gleymir að
fara að hátta, gleymir yfirleitt öllu sem þú átt að muna og færð skömm
í hattinn, hygg ég að dul hinnar mystísku upplifunar hafi komið við í
huga þér.
Þú getur sennilega horft á alla hluti, sem þú þekkir svona vel í
kringum þig, fjöllin, túnið, ána, eins og það hafi síendurnýjað innihald
hversu lengi sem þú horfir. Þú getur horft á hendurnar á þér eins og þú
sért að sjá þær í fyrsta sinn. Steinvala í lófa þér er undur þrungið
dularfullum veruleika. Nafn þitt fær síendurnýjaðan hljóm hversu oft
sem þú nefnir það í huganum, og niður vatna og goluþytur í grasi er
sífelldlega ný reynsla hversu lengi sem þú hlustar, af því að öll til-
finning fyrir tíma og líðandi hefur einhvern veginn gufað upp.