Morgunblaðið - 14.05.2015, Page 1
F I M M T U D A G U R 1 4. M A Í 2 0 1 5
Stofnað 1913 112. tölublað 103. árgangur
FÓRU TIL
KÍNA TIL
AÐ KENNA
TIL ATLÖGU
VIÐ GAMLA
RISA
FJÖLDI
MYNDLISTAR-
SÝNINGA
VIÐSKIPTAMOGGINN LISTAHÁTÍÐ 2015 30NANNA OG ELFA 10
Samsett mynd/Eggert
Bankar Afkoma stóru viðskiptabankanna
þriggja var góð á fyrsta ársfjórðungi.
Samanlagður hagnaður Arion
banka, Íslandsbanka og Lands-
bankans á fyrsta fjórðungi ársins
jókst um 72% á milli ára. Alls nam
hann 26,7 milljörðum króna borið
saman við 15,5 milljarða króna á
sama tíma í fyrra.
Þó ber að halda því til haga að
hagnaður Arion banka, sem nam
14,9 milljörðum króna, einkenndist
mjög af einskiptisliðum.
Hagnaður bankans af reglulegri
starfsemi nam fjórum milljörðum
króna á þessum fyrstu þremur
mánuðum ársins samanborið við 1,7
milljarða á sama tímabili í fyrra.
Hagnaður Íslandsbanka af reglu-
legri starfsemi var sá sami nú og
fyrir ári, 4,4 milljarðar. Heildar-
hagnaður bankans dróst saman um
tæpa þrjá milljarða. »Viðskipti
Hagnaður stóru
bankanna þriggja
jókst um 72%
Verkföll í maí
» Tæplega 3.000 eru í verkfalli.
» Yfir 10.000 fara í verkfall 19.
og 20. maí.
» 60.000 taka þátt í aðgerðum
sem hefjast 28. maí.
Félag geislafræðinga hefur hafnað
fimm undanþágubeiðnum og sam-
þykkt 146 slíkar beiðnir í yfirstand-
andi verkfalli félagsins. Af þessum
fimm var fjórum hafnað á grundvelli
þess að þegar sótt var um undanþágu
voru á sama tíma starfandi á und-
anþágulistum geislafræðingar með
sérfræðiþekkingu til að vinna viðkom-
andi rannsóknir.
Páll Matthíasson, forstjóri Land-
spítalans, LSH, gagnrýndi geisla-
fræðinga í pistli sínum á föstudag en
ekki náðist í Pál í gærkvöldi til að
bera undir hann tölur geislafræðinga.
Vakt geislafræðinga á LSH er full-
mönnuð eftir klukkan 16 á virkum
dögum og um helgar. Katrín Sigurð-
ardóttir, formaður Félags geislafræð-
inga, segir að félagið hafi ítrekað bent
á að nýta megi tímann betur þegar
deildin er á fullum afköstum.
Í umfjöllun Morgunblaðsins um
verkföllin kemur fram að Seðlabank-
inn vari við áhrifum hækkana og
bendir Már Guðmundsson seðla-
bankastjóri á að sumir myndu njóta
raunlaunahækkunar en aðrir missa
vinnuna ef gengið yrði að nýjustu
kröfum vinnumarkaðarins.
benedikt@mbl.is
MDeilur á vinnumarkaði »4
Vilja nýta fullmannaða deild
Aðeins fimm undanþágubeiðnum geislafræðinga hefur verið hafnað
Seðlabankinn varar við áhrifum mikilla hækkana Stutt í næstu verkfallshrinu
Sigling Skemmtiferðaskipið Disney
Magic kemur hingað 25. maí nk.
„Þetta er allt að bresta á og hérna
eru allir gríðarlega spenntir,“ segir
Pétur Ólafsson, markaðsstjóri
Hafnasamlags Norðurlands, en
fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins
kemur til hafnar á Akureyri á
morgun. Sama skip, Amadea, kem-
ur svo til Reykjavíkur á sunnudag.
Eftir það kemur hvert skipið á
fætur á öðru fram á haust, það síð-
asta 25. október. Von er á 100 heim-
sóknum til Reykjavíkur það sem af
er ári, en í mars sl. komu fjögur
skip vegna sólmyrkvaferða. Þetta
eru mun fleiri skipakomur en á síð-
asta ári en búist er við ríflega 105
þúsund farþegum. Ágúst Ágústs-
son, markaðsstjóri Faxaflóahafna,
segir að mun meira sé um smærri
skip en áður og þau sigli jafnvel
nokkrar ferðir í kringum landið.
Eitt slíkra skipa er Ocean Dia-
mond sem hefur tíu sinnum við-
komu í Reykjavík í siglingum sínum
kringum landið. Íslenskt fyrirtæki,
Iceland ProCruises, hefur leigt
skipið til þriggja ára en selur ferð-
irnar nær eingöngu til erlendra
ferðamanna. Ocean Diamond kem-
ur fyrst til Reykjavíkur 3. júní. »6
Von á 105 þúsund farþegum
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kemur um helgina
Mikil gleði ríkti á Akureyri í gær en þar fór fram
hið árlega vorhlaup heilsuleikskólans Krógabóls
á Þórsvellinum við Hamar og tóku allar deildir
leikskólans þátt í því. Byrjað var á upphitun,
teygjum og dansi áður en skankarnir voru teygð-
ir í hlaupi, fyrst elstu krakkarnir og svo þeir
yngstu. Krakkarnir á Krógabóli, þar sem mikið
er lagt upp úr hreyfingu og sköpun, hafa stefnt á
hlaupið í allan vetur og æft sig úti sem inni.
Krakkarnir á Krógabóli fögnuðu vorinu á hlaupum
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Hið árlega vorhlaup heilsuleikskólans Krógabóls á Akureyri fór fram í gær
Starfsmenn Fiskistofu munu
hafa val um að starfa áfram á
höfuðborgarsvæðinu eða á Ak-
ureyri. Aðeins fiskistofustjóri
sjálfur mun þurfa að flytja með
stofnuninni til Akureyrar. Sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra
segir þó að flutningsáform standi
enn en ljóst sé að endanleg
ákvörðun um flutning verði ekki
tekin fyrr en Alþingi hefur lokið
umfjöllun um stjórnarráðs-
frumvarpið. »9
Starfsmenn Fiski-
stofu fá að velja
„Það er áhyggjuefni að ofmennt-
aðir starfsmenn skuli finna fyrir
meiri óánægju í starfi og að þeir
skuli vera ólíklegri til að sækja
starfstengd námskeið.“ Þetta kem-
ur m.a. fram í meistararitgerð Jas-
onar Más Bergsteinssonar í mann-
auðsstjórnun við Háskóla Íslands
þar sem ofmenntun á íslenskum
vinnumarkaði er könnuð. Sam-
kvæmt könnun Jasonar kom fram
að ofmenntun á íslenskum vinnu-
markaði mældist 19,3%. Ofmenntun
er þó ekki alslæm heldur hefur hún
einnig þá kosti í för með sér að
meiri þekking getur stuðlað að
sveigjanlegra vinnuafli. »12
Ofmenntun á vinnu-
markaði er 19,3%