Morgunblaðið - 14.05.2015, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2015
Háaleitisbraut 68
Nýtt frá
Miss Juliette Bot
Nýr litur: Bambou/Souris
Miss Juliette Duo
Litur:Marino/Noir
Náttúrulegt gúmmí
Stærðir
36–41
Hólmaslóð 2
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Rúm fjögur ár eru liðin frá því að
PIP-brjóstafyllingamálið komst í
hámæli þegar í ljós kom að franska
fyrirtækið Poly
Implant Prothése
hafði notað svo-
kallað iðnaðarsíli-
kon í brjóstafyll-
ingar sem það
framleiddi. Um
440 íslenskar
konur fengu
ígræddar PIP-
brjóstafyllingar.
Af þeim hafa 204
höfðað mál á hendur TÜV Rhein-
land sem sá um eftirlit með fram-
leiðslunni í Frakklandi. Hópmál Ís-
lendinganna er annað í röðinni á
hendur eftirlitsaðilanum og verður
tekið fyrir í undirrétti í Frakklandi
hinn 24. júlí nk. Dómur áfrýjunar-
réttar í fyrri hópmálsókninni í
Frakklandi mun liggja fyrir hinn 2.
júlí nk. Áður en mál íslensku
kvennanna verður tekið fyrir mun
liggja fyrir dómur áfrýjunarréttar
Frakklands (Court of appeal of Aix-
en-Provence) í fyrstu hópmálsókn-
inni.
Saga Ýrr Jónsdóttir, lögmaður ís-
lensku kvennanna, segir dóm sem
kveðinn verður upp 2. júlí nk. gefa
góðar vísbendingar um það hvernig
mál íslensku kvennanna muni fara.
„Hafa verður þó þann fyrirvara á að
málin eru ekki öll eins þar sem ís-
lenski hópurinn mun láta reyna á
þætti sem ekki var reynt á í fyrri
málsókn, t.d. ná mál íslensku
kvennanna lengra aftur í tímann,“
segir Saga.
Hún bendir á að allt ferlið í þessu
máli í Frakklandi sé frekar einfalt. Í
því felst m.a. minni kostnaður við að
sækja málið, ekki eru gerðar jafn-
strangar kröfur til framlagðra
gagna og mörg dæmi eru um að kon-
ur leggi einungis fram svokallað
PIP-brjóstafyllingakort og aðgerð-
arskýrslu þegar PIP-brjóstafylling-
arnar voru græddar í og síðan fjar-
lægðar.
Ef litið er til fyrri hópmálsóknar
þá var TÜV Rheinland gert að
greiða hverri konu innborgun upp á
þrjú þúsund evrur. Auk þess leggur
hópur sérfræðinga mat á mál hverr-
ar konu til þess að ákvarða endan-
legar bætur í hverju tilviki.
„Ég vona að þetta fari vel og að ís-
lenskar konur fái fullar bætur,“ seg-
ir Saga. Eins og staðan er núna er
Saga ekki að skoða hvort höfðuð
verði mál á Íslandi en hún vonast til
þess að dómur undirréttar í máli ís-
lenskra kvenna í Frakklandi verði
kveðinn upp í september á þessu ári.
Dómur í PIP-málinu í haust
Hópmálsókn 204 íslenskra kvenna, sem fengu PIP-brjóstapúða sem láku, á
hendur eftirlitsaðila verður tekin fyrir í Frakklandi 24. júlí næstkomandi
Morgunblaðið/Golli
Fegrunaraðgerð Um 440 íslenskar
konur fengu PIP-brjóstapúða.
Saga Ýrr
Jónsdóttir
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
barst um hádegi í gær neyðarkall frá
bátnum Gottlieb 2622 sem varð vél-
arvana við Hópsnes á Reykjanesi.
Rak bátinn hratt að landi með fjóra
skipverja um borð. Þegar í stað var
þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð
út sem og björgunarsveitir á Suður-
nesjum og björgunarskip Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar.
Strekkingsvindur var á svæðinu
og aðstæður á staðnum erfiðar. Skip-
verjar á bátnum Gulltoppi brugðust
fljótt við neyðarkallinu og komu taug
í bátinn. Taugin slitnaði og rak bát-
inn hratt að landi, segir Björgvin
Arnarson, skipverji á Gulltoppi.
Báturinn lagðist á hliðina
„Hann var kominn of nálægt landi
og rak hratt að. Við komumst ekki
nógu nálægt til að setja í almennilegt
tog,“ segir Björgvin. Skömmu eftir
að útkallið barst var báturinn kom-
inn upp í kletta og lagðist þar á hlið-
ina. Nærstaddir bátar á svæðinu
komust ekki að til aðstoðar.
Skipverjarnir óðu sjálfir í land og
um hálftíma eftir að útkallið barst
lenti þyrla Landhelgisgæslunnar í
fjörukambinum og flutti þá til
Grindavíkur til skýrslutöku. Sam-
kvæmt upplýsingum var áhöfnin
nokkuð vel á sig komin miðað við að-
stæður. Ekki var búið að ná bátnum
á flot þegar blaðið fór í prent.
Gottlieb vélarvana við
Hópsnes á Reykjanesi
Ljósmynd/Haraldur Björn Björnsson
Brugðið Vitni segir mennina hafa gengið í land. Þeim hafi þó verið verulega brugðið, sérstaklega skipstjóranum.
Skipverjar Gottlieb 2622 óðu sjálfir í land eftir vélarbilun
Samiðn, Rafiðn-
aðarsamband Ís-
lands, Félag vél-
stjóra- og málm-
tæknimanna,
Matvís, Grafía –
stéttarfélag í
prent- og miðl-
unargreinum og
Félag hársnyrti-
sveina hafa
ákveðið að boða
til kosninga um verkfall meðal fé-
lagsmanna sinna. Verði verkfalls-
boðun samþykkt verður tímabundið
verkfall dagana 10.-16. júní og
ótímabundið verkfall mun svo hefj-
ast 24. ágúst.
Viðræður félaganna við Samtök
atvinnulífsins hafa engu skilað, segir
í fréttatilkynningu frá félögunum.
Iðnaðar-
menn kjósa
um verkfall
Iðnaður Kosið verð-
ur um verkföll.
„Ég vona það. Aðalhagsmunir íbú-
anna felast í því að geta búið þarna
áfram,“ segir Helgi Jóhannesson
lögmaður sem
aðstoðar stjórn
Búmanna við
fjárhagslega
endurskipulagn-
ingu húsnæðis-
samvinnufélags-
ins. Hugmyndir
eru uppi um að
setja innlausnar-
íbúðir tímabund-
ið í leigufélag.
Héraðsdómur
Reykjavíkur tekur á föstudag fyrir
beiðni Búmanna um greiðslustöðv-
un. Helgi segir lítið hægt að segja
um áætlanir félagsins fyrr en það
liggur fyrir hvort heimild fáist til
greiðslustöðvunar. Greiðslustöðv-
unartíminn verður notaður til að
reyna að ná samningum við Íbúða-
lánasjóð um lánasafn Búmanna og
hugsanlega nauðasamninga gagn-
vart öðrum kröfuhöfum.
Búmenn hafa átt í vandræðum
frá því eftir hrun. Þá hækkuðu
skuldir mjög. Vanskil búseturétt-
arhafa jukust og uppsögnum fjölg-
aði.
Félagið hefur kaupskyldu á hluta
íbúðanna og komið hefur fram að
það hefur meðal annars gengið á
viðhaldssjóði til að borga út hlut
íbúanna. Samþykkt var á fé-
lagsfundi í byrjun ársins heimild til
stjórnar til að fresta endurgreiðslu
búseturéttargjalds. Óheimilt verð-
ur að greiða út búseturéttargjaldið
á meðan greiðslustöðvun varir.
Sett í leigufélag
Fram kemur á heimasíðu Bú-
manna að í tillögum um fjárhags-
lega endurskipulagningu Búmanna
sem unnið hefur verið að með
Íbúðalánasjóði er gert ráð fyrir því
að þær íbúðir sem Búmenn hafa
þurft að innleysa verði færðar
tímabundið inn í leigufélag. Leigu-
félagið verður að fullu í eigu Bú-
manna og verða lán á íbúðunum
færð niður í matsverð. Áætlað er
að afskrift nemi samtals um 500
milljónum. Þegar markaðsaðstæð-
ur vænkast mun fólki bjóðast að
kaupa búseturétt í íbúðunum og þá
verða þær færðar aftur yfir í Bú-
menn. Við sölu á búseturétti þess-
ara íbúða endurgreiðast peningarn-
ir sem nýttir voru til uppkaupa á
búseturéttinum. helgi@mbl.is
Innlausn sett
inn í leigufélag
Búmenn endurskipuleggja sig
Eign Búmenn eiga
540 íbúðir.
Töluverður hiti var í þingmönnum í
gær þegar rammaáætlun og breyt-
ingartillögur meirihlutans á Alþingi
um fimm nýja virkjunarkosti í nýt-
ingarflokk voru ræddar á Alþingi.
Krafðist minnihlutinn þess meðal
annars að málið yrði tekið af dagskrá
þingsins.
Þá sögðu þingmenn stjórnarand-
stöðunnar að málið væri ekki þing-
tækt og stæðist ekki lög.
Um er að ræða virkjanir í neðri-
hluta Þjórsár, uppi á hálendinu, við
Skrokköldu á Sprengisandi og Haga-
vatn sunnan Langjökuls.
Samorka, samtök orku- og veitu-
fyrirtækja, segir að fimm virkjanir
séu ekki nóg og vill færa átta virkj-
unarkosti í nýtingarflokk.
Nokkur fjöldi mótmælti með Land-
vernd á Austurvelli í gær til að lýsa
andstöðu sinni á tillögu meirihluta at-
vinnuveganefndar um ramma-
áætlunina. Í yfirlýsingu Landverndar
segir að ekki hafi verið nægilega fag-
lega staðið að málum. benedikt@mbl.is
Mótmæli gegn virkjunarkostum
Morgunblaðið/Eggert
Mótmæli Nokkur fjöldi mótmælti
rammaáætlun á Austurvelli í gær.