Morgunblaðið - 14.05.2015, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2015
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Fyrstu skemmtiferðaskip sumars-
ins fara að streyma til landsins.
Amadea kemur fyrst að landi á Ak-
ureyri á morgun og siglir síðan til
Reykjavíkur þar sem áætluð koma
er við Skarfabakka á sunnudag.
Þetta eru þó ekki fyrstu skip
ársins en sem kunnugt er komu
fjögur hingað í mars sl. í tengslum
við sólmyrkvasiglingar með ferða-
menn. Að þeim frátöldum eru 100
skipakomur áætlaðar til Reykjavík-
ur í sumar og haust, borið saman
við 91 heimsókn í fyrra. Þar verða á
ferðinni um 105 þúsund farþegar í
56 skipum, sem er aðeins meira en á
síðustu vertíð.
Að sögn Ágústs Ágústssonar,
markaðastjóra Faxaflóahafna, er
meira um smærri skip en áður, sem
sigla jafnvel nokkrar ferðir í kring-
um landið og hafa skipti á farþeg-
um í Reykjavík, sem flogið er með
til og frá landinu. Ágúst segir hafn-
ir á landsbyggðinni njóta þess að
smærri skipunum fjölgi, staðir eins
og Grundarfjörður, Stykkishólmur,
Ísafjörður, Siglufjörður, Akureyri,
Grímsey, Djúpivogur og Vest-
mannaeyjar.
„Um borð í þessum skipum eru
öðruvísi farþegar en í þeim stóru,
sem sækjast eftir annars konar af-
þreyingu og upplifun. Þetta er
mjög ánægjuleg þróun,“ segir
Ágúst, en einnig er þeim skipum að
fjölga sem stoppa hér yfir nótt, eða
jafnvel tvær nætur.
Stærsta skip sumarsins verður
MSC Splendida, sem er um 138 þús-
und brúttótonn að stærð og kemur
tvisvar til Reykjavíkur; 25. júní og
21. júlí. Af sögufrægum og stórum
skipum má nefna Queen Elizabeth,
sem kemur 19. júlí, og Disney Ma-
gic, sem kemur hingað 25. maí frá
Flórída og er í eigu Disney-risans.
Ágúst segir tímabilið einnig
vera að lengjast en síðasta skip árs-
ins er áætlað í lok október. Vöxt-
urinn í þessari ferðaþjónustu er
mikill en könnun fyrir samtökin
Cruise Iceland sýndi að skipin voru
á síðasta ári að skapa um 6 millj-
arða króna, í beinar og óbeinar
tekjur. Þá er greinin farin að skapa
hátt í 240 heilsárstörf hér á landi.
Ágúst segir þetta ánægjulega
þróun, og sér í lagi að Ísland haldi
sjó á þessum markaði milli ára, sem
annars sé að dragast saman í Evr-
ópu vegna aukinnar eftirspurnar í
Asíu. Eru evrópsk skipafélög í
meira mæli að fara með skipin til
Kína.
Rómantík í bæjunum
Pétur Ólafsson, markaðsstjóri
Hafnasamlags Norðurlands, hefur
svipaða sögu að segja og Ágúst. Þar
fjölgar skipakomum í sumar, sér-
staklega með smærri skipum. Von
er á 100 heimsóknum, þar af 82 til
Akureyrar og 18 til Grímseyjar.
„Það er búbót fyrir minni hafn-
irnar að fá þessi smærri skip. Þau
stoppa lengur og skapa meiri tekjur
í landi. Landsbyggðin hefur orðið
dálítið útundan í ferðaþjónustunni
og þetta er orðin mikil rómantík á
litlu stöðunum. Við finnum mikla
tilhlökkun hjá bæjarbúum sem
finnst sumarið koma með skemmti-
ferðaskipunum,“ segir Pétur.
Sigla allt að
tíu sinnum í
kringum landið
Von á ríflega 105 þúsund farþegum í
sumar Fyrsta skipið kemur á morgun
Komud. Skip Lega Komud. SkipStærð brt. Lega Stærð brt.
2015Komur skemmtiferðaskipatil Reykjavíkur í sumar
Queen ElizabethMSC Splendida
Komur alls: 100
Heimild: Faxaflóahafnir
17. maí AMADEA Skarfabakki 29.008
23.maí FRAM Miðbakki 11.647
25.maí SAGAPEARL II Miðbakki 18.627
25.maí DISNEYMAGIC Skarfabakki 83.338
31.maí MARCO POLO Skarfabakki 22.080
2. júní SEASPIRIT Faxagarður 4.200
2. júní AZORES Skarfabakki 16.144
2. júní FRAM Miðbakki 11.647
3. júní SEAEXPLORER Faxagarður 4.200
3. júní OCEANDIAMOND Miðbakki 8.282
9. júní AIDAcara Skarfabakki 38.557
10. júní OCEANDREAM Skarfabakki 35.265
11. júní AMADEA Skarfabakki 29.008
12. júní OCEANDIAMOND Miðbakki 8.282
12. júní SEASPIRIT Faxagarður 4.200
13. júní SEAEXPLORER Miðbakki 4.200
15. júní AIDAluna Skarfabakki 69.203
17. júní BREMEN Skarfabakki 6.752
17. júní ALBATROS Skarfabakki 28.518
21. júní CRYSTALSYMPHONY Skarfabakki 51.044
21. júní OCEANDIAMOND Faxagarður 8.282
21. júní AZORES Miðbakki 16.144
23. júní SEAEXPLORER Miðbakki 4.200
23. júní AIDAcara Skarfabakki 38.557
25. júní MSCSPLENDIDA Skarfabakki 137.936
26. júní RYNDAM Skarfabakki 55.819
26. júní COSTAFORTUNA Skarfabakki 102.587
27. júní HAMBURG Miðbakki 15.067
29. júní ORIANA Skarfabakki 69.153
29. júní NAUTICA Skarfabakki 30.277
30. júní HANSEATIC Faxagarður 8.378
30. júní OCEANDIAMOND Miðbakki 8.282
30. júní MARCO POLO Sundabakki 22.080
30. júní CELEBRITYECLIPSE Skarfabakki 121.878
2. júlí AIDAluna Skarfabakki 69.203
3. júlí ASTOR Skarfabakki 20.606
5. júlí ALBATROS Skarfabakki 28.518
5. júlí DISNEYMAGIC Skarfabakki 83.338
7. júlí CRYSTALSYMPHONY Skarfabakki 51.044
7. júlí BERLIN Miðbakki 9.570
7. júlí AIDAcara Skarfabakki 38.557
8. júlí NG EXPLORER Faxagarður 6.471
9. júlí OCEANDIAMOND Faxagarður 8.282
9. júlí ARTANIA Skarfabakki 44.588
12. júlí OCEAN PRINCESS Skarfabakki 30.277
12. júlí Mein Schiff 1 Skarfabakki 76.998
14. júlí FRAM Miðbakki 11.647
15. júlí BLACKWATCH Skarfabakki 28.613
17. júlí NG EXPLORER Miðbakki 6.471
17. júlí HORIZON Skarfabakki 47.427
18. júlí OCEANDIAMOND Miðbakki 8.282
18. júlí SEAPRINCESS Skarfabakki 77.499
19. júlí QUEEN ELIZABETH Skarfabakki 90.901
19. júlí AIDAluna Skarfabakki 69.203
20. júlí NG EXPLORER Miðbakki 6.471
21. júlí AIDAcara Skarfabakki 38.557
21. júlí MSCSPLENDIDA Skarfabakki 137.936
23. júlí BRAEMAR Skarfabakki 24.344
23. júlí HAMBURG Miðbakki 15.067
24. júlí ADONIA Skarfabakki 30.277
24. júlí SAGAPEARL II Miðbakki 18.627
26. júlí OCEAN PRINCESS Skarfabakki 30.277
27. júlí OCEANDIAMOND Miðbakki 8.282
29. júlí MARCO POLO Skarfabakki 22.080
30. júlí COSTAFORTUNA Skarfabakki 102.587
31. júlí EUROPA Skarfabakki 28.890
1. ágúst MAGELLAN Skarfabakki 46.052
3. ágúst VEENDAM Skarfabakki 57.092
3. ágúst OCEANMAJESTY Miðbakki 10.417
4. ágúst AIDAcara Skarfabakki 38.557
5. ágúst INSIGNIA Skarfabakki 30.277
6. ágúst BRILLIANCE OFTHE SEAS Skarfabakki 90.090
6. ágúst OCEANDIAMOND Faxagarður 8.282
6. ágúst AZORES Miðbakki 16.144
7. ágúst RYNDAM Skarfabakki 55.819
12. ágúst PRINSENDAM Skarfabakki 38.848
13. ágúst BREMEN Skarfabakki 6.752
13. ágúst STAR LEGEND Miðbakki 9.961
14. ágúst ROTTERDAM Skarfabakki 61.849
15. ágúst SILVER EXPLORER Miðbakki 6.072
16. ágúst OCEANDIAMOND Miðbakki 8.282
16. ágúst SEABOURNQUEST Skarfabakki 32.346
17. ágúst BOUDICCA Skarfabakki 28.372
20. ágúst ARCADIA Skarfabakki 84.342
21. ágúst THEWORLD Skarfabakki 43.188
24. ágúst HAMBURG Miðbakki 15.067
1. sept. AIDAluna Skarfabakki 69.203
5. sept. CRYSTALSYMPHONY Skarfabakki 51.044
5. sept. SERENADE OFTHE SEAS Skarfabakki 90.090
6. sept. ARTANIA Korngarður 44.588
6. sept. AMADEA Sundabakki 29.008
7. sept. OCEANDIAMOND Miðbakki 8.282
10. sept. FRAM Miðbakki 11.647
10. sept. BRILLIANCE OFTHE SEAS Skarfabakki 90.090
11. sept. AIDAdiva Skarfabakki 69.203
12. sept. CARIBBEAN PRINCESS Skarfabakki 112.894
14. sept. EURODAM Skarfabakki 86.273
15. sept. SILVERWHISPER Skarfabakki 28.258
27. sept. SEASPIRIT Miðbakki 4.200
25. okt. AIDAmar Skarfabakki 71.304
100 heimsóknir skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur og Hafnasamlags Norðurlands í sumar – fleiri minni skip sem koma oftar
Ágúst
Ágústsson
Pétur
Ólafsson
„Þurrkurinn getum við sagt að hafi
byrjað frá og með sumardeginum
fyrsta og hefur verið mjög lítil úr-
koma síðan,“ sagði Trausti Jónsson,
veðurfræðingur, í gær um þriggja
vikna þurrkatímabil á höfuðborg-
arsvæðinu. Þurrkinum átti að ljúka í
nótt, samkvæmt veðurspá.
Talsvert rigndi í síðustu viku vetr-
ar á höfuðborgarsvæðinu, samtals
um 8 mm, sem dreifðist á dagana.
Aldrei var þó mikil rigning. Síðasta
„alvöru rigningin“ var 13. og 14. apr-
íl sl. eða fyrir mánuði.
Úrkoman í höfuðborginni frá sum-
arbyrjun var orðin einungis 2,6 mm í
gær. Sú úrkoma féll í maí. Þrátt fyr-
ir þessa litlu úrkomu var ekki slegið
þurrkamet.
Trausti sagði það stundum gerast
að það kæmu svona þurrir kaflar að
vori. Hann sagði að þurrt hefði verið
eiginlega um allt land það sem af er
maí, að undanskildum bletti á Aust-
urlandi þar sem snjóaði. Einnig var
dálítil úrkoma í Vestur-Skaftafells-
sýslu. Þá var úrkoma upp á fáeina
millimetra sums staðar fyrir norðan.
Heita má að það hafi verið þurrt
fyrstu tvær vikur maí á Vesturlandi.
Engin úrkoma mældist t.d. í Stykk-
ishólmi þótt þar hefði orðið vart úr-
komu það sem af var mánuðinum. Á
Akureyri var úrkoman ekki orðin
nema 2,8 mm það sem af var maí.
Töluverð úrkoma var þar hins vegar
í síðustu viku apríl og snjóaði tals-
vert á Akureyri í fyrstu viku sumars.
gudni@mbl.is
Þriggja vikna þurrkatíma-
bili í sumarbyrjun lokið
Lítil úrkoma var
í höfuðborginni og
á Vesturlandi
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Skraufþurr sumarbyrjun Samkvæmt spánni átti að fara að rigna í nótt.
Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð
Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis
að heimilt hefði verið að taka fjár-
nám í eignarhluta Gunnars Engil-
bertssonar í fasteign við Lækjargötu
í Reykjavík vegna verðtryggðs láns í
Glitni banka sem tekið var árið 2007.
Lánið var síðar tekið yfir af Íslands-
banka.
Verðtryggð lán ekki bönnuð
Málið snerist einkum um lögmæti
þess að miða greiðsluáætlun við 0%
verðbólgu þegar lánið var tekið og
lántökukostnað lántaka. Héraðs-
dómur komst að þeirri niðurstöðu,
eftir að fengið hafði verið ráðgefandi
álit frá EFTA-dómstólnum, að ekki
hefði komið fram að vanræksla
bankans á að veita lántaka fullnægj-
andi greiðsluáætlun hefði haft slíkar
afleiðingar fyrir hagsmuni hans að
það gæti leitt til ógildis verðbóta-
ákvæðis lánssamningsins. Þá hefði
lántakanda ekki dulist að lánið hefði
verið verðtryggt og bundið við vísi-
tölu neysluverðs.
EFTA-dómstóllinn komst að
þeirri niðurstöðu að verðtryggð lán
væru ekki bönnuð samkvæmt lög-
gjöf Evrópusambandsins en það
væri dómstóla í hverju landi fyrir sig
að meta hvort skilmálar lána væru
sanngjarnir og samrýmdust lögum.
davidmar@mbl.is
Verðtryggingin
var ekki ólögleg
Hæstiréttur sagði fjárnám heimilt
Lögleg Hæstiréttur staðfesti úr-
skurð Héraðsdóms Reykjavíkur.