Morgunblaðið - 14.05.2015, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2015
Skipholt 50c • 105 Reykjavík • 582 6000 • www.computer.is
Síðan 1986
Flott í ferðalagið
König spjaldtölvufesting
USB hleðslutækiGenius HS-970BT Bluetooth heyrnartól
Sweex gæðatöskur fyrir spjaldtölvur
Hægt að festa aftan á
höfuðpúða eða með
sogskál á rúðu
Styður m.a.
snjallsíma og
spjaldtölvur
Þráðlaust yfir í
snjalltæki með
Bluetooth eða
með snúru
Þrjár stærðir:
7, 8 og 10 tommu
Virkar einnig sem
standur
Verð 3.990 kr.
Verð 2.190 kr.Verð 9.990 kr.
Verð frá 1.490 kr.
Sumir þingmenn virðast telja þaðsitt helsta verkefni að draga úr
trú almennings á störfum Alþingis
og hafa til þess hin ýmsu ráð. Eitt
helsta vopnið í þessari baráttu hefur
verið misnotkun á
því sem kallað er
fundarstjórn forseta
en hefur í seinni tíð
orðið málþófi og vit-
leysisgangi að bráð.
Vigdís Hauks-dóttir lét taka
saman upplýsingar
um þann tíma sem
þingmenn hefðu só-
að í þennan dag-
skrárlið og hún upp-
lýsti í gær að meira
en heill vinnudagur
hefði farið í tilgangs-
laust tal undir þessum lið á árinu.
Guðmundur Steingrímsson, for-maður Bjartrar framtíðar, sem
hefur á stefnuskrá sinni að gera
„störf Alþingis uppbyggilegri“ og
vill „breyta stjórnmálunum“ auk
þess að „vinna að friði“, gekkst við
glæpnum og sagði þingmenn „nota
þennan lið til að koma mótmælum á
framfæri“.
Og hann bætti við: „Það þarf aðgera það þannig að eftir því sé
tekið.“
Þingmenn stjórnarandstöðunnarfundu að því að Vigdís hefði
upplýst um vaðalinn undir liðnum
fundarstjórn forseta, en það var
óheppilegt fyrir þá að formaður
Bjartrar framtíðar skyldi upplýsa að
þær tölur eiga fullan rétt á sér.
Stjórnarandstaðan hefur ákveðiðað tala þar til eftir er tekið og
hún getur glaðst yfir því að nú eru
líkur á að almenningur hafi tekið
eftir þessari misnotkun þingskap-
anna.
Vigdís
Hauksdóttir
„Þannig að eftir
því er tekið“
STAKSTEINAR
Guðmundur
Steingrímsson
Veður víða um heim 13.5., kl. 18.00
Reykjavík 9 alskýjað
Bolungarvík 7 skýjað
Akureyri 9 léttskýjað
Nuuk 0 snjóél
Þórshöfn 6 heiðskírt
Ósló 13 skýjað
Kaupmannahöfn 11 skýjað
Stokkhólmur 8 skúrir
Helsinki 7 skúrir
Lúxemborg 17 heiðskírt
Brussel 18 heiðskírt
Dublin 12 léttskýjað
Glasgow 12 skýjað
London 18 heiðskírt
París 21 skýjað
Amsterdam 15 heiðskírt
Hamborg 13 léttskýjað
Berlín 17 heiðskírt
Vín 22 léttskýjað
Moskva 21 heiðskírt
Algarve 32 heiðskírt
Madríd 36 heiðskírt
Barcelona 22 léttskýjað
Mallorca 25 heiðskírt
Róm 23 heiðskírt
Aþena 22 léttskýjað
Winnipeg 7 skúrir
Montreal 12 léttskýjað
New York 18 alskýjað
Chicago 10 léttskýjað
Orlando 27 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
14. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:17 22:33
ÍSAFJÖRÐUR 3:57 23:02
SIGLUFJÖRÐUR 3:39 22:45
DJÚPIVOGUR 3:40 22:08
Á síðastliðnum árum og áratugum
hafa orðið miklar breytingar á út-
breiðslu ferskvatnslífvera á norður-
hveli jarðar. Er áætlað að í náinni
framtíð verði breytingarnar jafnvel
mun hraðari og víðtækari en til
þessa. Hér á landi hafa tegundir
hörfað norðar og aðrar látið undan
fyrir nýjum landnemum.
Í þessu samhengi má nefna bleikju
sem hefur hnignað, nýr landnemi í
ferskvatni er flundra sem hefur tek-
ið sér bólfestu í ám víða um land. Þá
hefur borið á nýjum tegundum þör-
unga og háplantna í ám og vötnum
sem hafa breiðst út með miklum
hraða.
Vísindavika norðursins
Þetta kemur fram á heimasíðu
Veiðimálastofnunar þar sem greint
er frá ráðstefnu um stöðu og framtíð
vísindarannsókna á norðurslóðum.
Ráðstefnan var haldin í tengslum við
árlega Vísindaviku norðursins sem
að þessu sinni var haldin í Toyama í
Japan 23.–30. apríl sl. Hluti vísinda-
vikunnar fór í að ræða áherslur og
framtíðarskipulag norðurslóða-
rannsókna. Veiðimálastofnun tók
virkan þátt í að skipuleggja þessa
ráðstefnu, m.a. með skipulagningu á
sérstakri málstofu þar sem athygl-
inni var beint að rannsóknum á
ferskvatni á norðurslóðum.
„Ef til vill höfum við ekki gefið því
nægjanlegan gaum fram til þessa
hve breytingar á lífríki áa og vatna,
tjarna og lækja eru hraðar samfara
hlýnun og hvaða áhrif þessar breyt-
ingar munu hafa til framtíðar,“ seg-
ir á veidi.is aij@mbl.is
Tegundir víkja fyrir landnemum
Morgunblaðið/Golli
Við Fljótaá Bleikja hefur víða gefið
eftir í ám og vötnum hér á landi.
Undirritað hefur verið samkomu-
lag milli Byggðastofnunar, Íslensks
sjávarfangs ehf. SE ehf, Bergs ehf.
og heimaútgerða á Þingeyri um
nýtingu á 400
þorskígildis-
tonnum af afla-
marki Byggða-
stofnunar auk
mótframlags
samningsaðila.
Samningurinn er
til þriggja ára
með möguleika á
framlengingu til eins árs.
Íslenskt sjávarfang skuldbindur
sig til að vinna úr að minnsta kosti
tvö þúsund þorskígildistonnum á
ári í fiskvinnslu félagsins á Þing-
eyri og veita a.m.k. 30 manns heils-
ársvinnu. Fyrirtækið festi í vetur
kaup á eignum Vísis hf. á Þingeyri
og hefur þegar hafið vinnslu á
staðnum.
Vonir standa til að með þessu
samkomulagi sé lagður grunnur að
aukinni byggðafestu á Þingeyri og
að stöðugleiki komist á eftir brott-
hvarf Vísis hf. af staðnum, segir á
vef Byggðastofnunar.
Samkomulag um aflamark
Byggðastofnunar er nú í gildi á
eftirtöldum Níu stöðum: Bakka-
firði, Breiðdalsvík, Djúpavogi,
Drangsnesi, Hrísey, Raufarhöfn,
Suðureyri, Tálknafirði og Þingeyri.
aij@mbl.is
Tryggja þrjátíu
manns heilsárs-
vinnu á Þingeyri