Morgunblaðið - 14.05.2015, Side 11
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Allt þetta fína frá Kína Nanna Hlíf og Elfa Lilja nota meðal annars kínverska prjóna til að slá taktinn í kennslunni.
flugvellinum í Peking var tekið á móti
okkur eins og við værum þjóðhöfð-
ingjar og allt gert til að greiða götu
okkar.“
Sviðsskjálfti í fyrstu
Þau hjónin voru í góðu yfirlæti í
Peking í þrjá daga áður en þau flugu
til Kunming og síðan Shanghai þar
sem námskeiðin voru haldin. „Ég
varð fyrir hálfgerðu áfalli þegar ég
kom inn í risastóran sal þar sem rúm-
lega þrjú hundruð leikskóla- og
grunnskólakennarar biðu eftir mér.
Svo komu barnahópar til að ég gæti
sýnt kennurunum hvernig hægt væri
að virkja þá í tónlist og hreyfingu –
gegnum túlk auðvitað, öðruvísi hefði
þetta ekki verið hægt, þó svo ég
byggði námskeiðin ekki á fyrir-
lestrum,“ segir Nanna Hlíf, sem gekk
ljómandi vel á námskeiðinu þrátt fyr-
ir sviðsskjálfta í byrjun.
Hjá Elfu Lilju var tilhögun nám-
skeiðanna áþekk, nema þau voru
haldin í Peking og Jinan sem er 200
km suður af Peking þar sem hún og
eiginmaður hennar, Einar Sigurðs-
son, dvöldu. Móttökunefndin var líka
mætt á flugvöllinn. Eftir sex þétta
námskeiðsdaga gátu þau hjónin farið
í „topp tíu túristaprógrömmin“ eins
og hún segir. „Námskeiðin voru í
senn hörkupúl og mikil áskorun. Ég
þurfti að nýta mér alla mína reynslu,
sem er orðin þó nokkur eftir 20 ára
kennslu,“ segir hún. Aðstæður voru
enda ekki alveg eins og þær áttu að
venjast á námskeiðunum hér heima,
mikill hiti og óhentug teppi á gólfum
þar sem 200 manna hópur klappaði
og stappaði. „Svitinn bókstaflega
bogaði af manni allan tímann og við
höfðum ekki einu sinni tíma til að
skipta um föt allan daginn,“segir
Nanna Hlíf.
Þrátt fyrir ytri aðstæður af þeim
toga, einstaka óþekkan barnahóp og
til að mynda tæknimann sem sífellt
var að lækka í græjunum vegna ráð-
stefnu í næsta sal við salinn þar sem
Elfa Lilja hélt uppi fjörinu voru nám-
skeiðin afar skemmtileg og lærdóms-
rík að mati beggja.
Elfa Lilja viðurkennir að hún
hafi að sumu leyti upplifað sig eins og
frumkvöðul að kynna nýstárlegan og
spennandi möguleika fyrir skólafólk-
inu. Þótt þeim hafi í fyrstu brugðið í
brún að vera miðpunktur athygli alls
þessa fólks bráði feimnin af þeim um
leið og þær skrúfuðu upp í tónlistinni
og fengu börn og kennara til að dansa
og syngja.
Tónlistin alltumlykjandi
Þær hrifust af landi og þjóð og
ekki síst iðandi borgarlífinu þar sem
þeim kom á óvart hve tónlistin var
alltumlykjandi og friðsældin víða
mikil þrátt fyrir mannmergðina.
„Fólk var alls staðar að syngja, leika
á hljóðfæri, dansa, skokka, hjóla og
jafnvel syngja saman í kór í görðum
og úti á götum,“ segja þær.
Hvorug kippti sér upp við þótt
fólk vildi stilla sér upp með þeim og
taka „selfies“ eða skellti litlum börn-
um í fang þeirra í sama tilgangi.
„Fólkið kom fram á svo kurteisan og
alúðlegan hátt að okkur fannst
ástæðulaust að malda í móinn,“ út-
skýra þær.
Aðspurðar segja þær að samtök
sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni,
standi fyrir Orff-námskeiðunum, en
markmiðið sé að auðga tónlistarlíf í
skólastarfinu. „Þrátt fyrir mikla
gróska virðist sú leið ekki hafa verið
farin í skólunum að tengja tónlist og
hreyfingu með sama hætti og gert er
samkvæmt Orff-nálguninni. Við fund-
um fyrir gríðarlegum áhuga á að inn-
leiða í auknum mæli samspil tónlistar
og hreyfingar í kennsluna. Eiginlega
gætum við bara lagt Kína að fótum
okkar,“ segja þær bæði í gamni og al-
vöru. „Miðað við fyrirspurnirnar sem
við fengum,“ bæta þær við.
Að „Orff-væða“ skólana í Kína er
tæpast tveggja kvenna verk, en þær
Elfa Lilja og Nanna Hlíf eru reiðu-
búnar að leggja sitt af mörkum – aft-
ur. Þeim fannst svo gaman í Kína.Þriðjungur hópsins Elfa Lilja ásamt þriðjungi hópsins á fyrra þriggja daga námskeiðinu í Peking.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2015
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
Enn er bætt um betur með nýju ReSound
heyrnartækjunum sem gefa eðlilega og
áreynslulausa heyrn.
Taktu þátt í framþróuninni og prófaðu
þessa hágæða tækni.
Aldrei hefur
verið
auðveldara
að heyra
GOLDEN
LOBE
AWARDS
2014
ASSOCIATION OF
INDEPENDENT
HEARING HEALTHCARE
PROFESSIONALS
Most Innovative
Concept 2014
presented to:
Resound - LiNX
made for iPhone