Morgunblaðið - 14.05.2015, Síða 19

Morgunblaðið - 14.05.2015, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2015 Litadýrð Ævintýri líkast er að koma inn í listagalleríið Skúmaskot í bak- húsi við Laugaveg, sem 10 konur reka saman, hönnuðir og listakonur. Eggert Borgarstjórn Reykjavíkur sam- þykkti ársreikning borgarinnar fyrir árið 2014 við síðari umræðu á fundi sínum 12. maí. Reikningur- inn sýnir mikið tap á A-hluta Reykjavíkurborgar þrátt fyrir að rekstrartekjur A-hluta vaxi um 2,3 milljarða króna milli 2013 og 2014. Útgjaldaaukning er 9,3 milljarðar á milli sömu ára þannig að tap að- alsjóðs er 7,1 milljarður króna og er bætt upp með jákvæðri afkomu Eignasjóðs og Bílastæðasjóðs þannig að niðurstaðan verður 2,8 milljarðar króna í tap. Borgin tap- aði því tæpum átta milljónum króna hvern dag ársins 2014 eða sem nemur andvirði tveggja góðra fólksbíla daglega. Fjármálaskrifstofan varar við Í skýrslu Fjármálaskrifstofu borgarinnar segir um þennan tap- rekstur að mikilvægt sé að bregð- ast við þessum aðstæðum. Þar segir einnig um veltufé frá rekstri sem er einungis 5% að lágmarkið vegna skuldastöðu A-hluta borgar- innar sé 9%. Í ljósi þess hversu mikils hlutleysis er almennt gætt í orðavali Fjármálaskrifstofu verður að líta svo á að þarna sé um þung viðvörunarorð til meirihlutans að ræða. Á mælaborði vinstrimeiri- hlutans í Reykjavík loga því öll viðvörunarljós en áhyggjurnar af því eru ekki meiri en svo að þessi meirihluti afgreiddi fjárhags- áætlun ársins 2015 með 5 milljarða kr. halla á aðalsjóði borgarinnar. Vinstri taprekstur en hægri jákvæð afkoma Þegar rekstur A-hluta er skoð- aður frá 2002 til 2014 á meðfylgj- andi mynd má sjá að í tíð vinstri meirihluta 2002-2006 er taprekstur öll árin. Árin 2007-2010 er Sjálf- stæðisflokkurinn í meirihluta og þá er jákvæð afkoma öll árin. Vinstri meirihluti tekur svo við vorið 2010 og eftir það er aftur taprekstur á A-hluta að frátöldu árinu 2013 sem verður að segjast að sé undantekningin sem sannar þá reglu að í tíð vinstri meirihluta við stjórn Reykjavíkurborgar er taprekstur á A-hluta. Skýringin á jákvæðri afkomu 2013 er reyndar einföld. Gjaldfærsla lífeyr- isskuldbindinga er allt í einu 159 milljónir kr. það ár þrátt fyrir að yfirleitt sé gjaldfærslan 2-3 millj- arðar á ári. Útsvarið í hæstu hæðum Þannig er rekstur Reykjavík- urborgar þrátt fyrir að útsvari sé haldið í hæstu löglegu hæðum sem þýðir ein auka vika fyrir borg- arbúa í vinnu miðað við sveitarfé- lag sem er með lágmarksútsvar. Borgarstjórn samþykkti að vísa tillögu okkar borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins til borgarráðs. Til- lagan gengur út á að nú þegar verði hafin rekstrarhagræðing A- hluta borgarinnar með það að markmiði að rekstur verði í jafn- vægi þannig að skatttekjur dugi fyrir rekstrarútgjöldum. Í fram- haldi af hagræðingaraðgerðum verði hafist handa við að lækka út- svar í áföngum. Fyrsti áfangi verði 0,25% lækkun útsvars. Lang- stærsta sveitarfélag landsins á ekki að þurfa að vera með útsvarið í hæsta leyfilega hámarki en þann- ig verður það ef rekstrarhagræð- ing næst ekki. Eftir Halldór Halldórsson » Borgin tapaði því tæpum átta millj- ónum króna hvern dag ársins 2014 eða sem nemur andvirði tveggja góðra fólksbíla daglega. Halldór Halldórsson Höfundur er oddviti Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Viðvörunarljósin loga hjá vinstri meirihlutanum í borginni Rekstrarafkoma A-hluta 2500 1500 500 0 -500 -1.500 -2.500 -3.500 20 02 20 06 20 10 20 04 20 08 20 12 20 03 20 07 20 11 20 05 20 09 20 13 20 14 Það á ekki af Evr- ópusambandinu að ganga. Á sama tíma og haldinn er hver neyðarfundurinn af öðrum um stöðu Grikklands er allt í uppnámi vegna að- streymis fólks sem smyglað er á yfirfull- um bátkænum norður yfir Miðjarðarhaf og margir farast á leið- inni. Til aprílloka í ár komust þannig um 40 þúsund manns yfir hafið, meirihluti þeirra til Ítalíu, en þúsundir týndust á leiðinni, stærsti hópurinn þegar yfirfullur bátur með allt að 900 manns fórst hinn 19. apríl sl. Í kjölfarið var kallaður saman neyðarfundur for- ystumanna ESB sem sendi frá sér áætlun um viðbrögð í 10 liðum. Fela þeir meðal annars í sér aukn- ar fjárveitingar til landamæraeft- irlits ESB, aðgerðir gegn smygl- urum og fleytum þeirra, jafnvel með því að beita hervaldi, mót- tökubúðir Afríkumegin fyrir flóttafólk og síðast en ekki síst að aðildarríkjum ESB verði gert að taka við flóttamönnum eftir nánar útfærðu kerfi. Hugmyndir þessar hafa fengið misjafnar undirtektir og mikil óvissa ríkir um afdrif þeirra. Rætur vandans margþættar Flóttamanna- straumur frá Afríku og Austurlöndum nær til ESB-ríkja er ekki nýr af nálinni, en leið- irnar hafa verið breytilegar í tímans rás. Styrjaldir og vax- andi pólitísk óöld í þessum heimshlutum frá síðustu aldamót- um á þar drjúgan þátt og Bandaríkin og stuðningsríki þeirra innan Evr- ópusambandsins og NATO bera þar ríka ábyrgð. Þáttur Írakstr- íðsins og átakanna í Afganistan er ósmár og síðan hafa bæst við borgarastyrjöldin í Sýrlandi og herförin gegn Gaddafi í Líbíu þar sem síðan ríkir stjórnleysi. Ein- ræðisstjórn Sádi-Arabíu sem Bandaríkin styðja staðfastlega hefur lengi neitað að veita viðtöku flóttamönnum frá grannríkjunum og lætur nú sprengjum rigna yfir Jemen. Drjúgur hluti flóttafólks- ins sem leitar til Evrópu er þol- endur grimmilegra stríðsátaka, en aðrir eru fátæklingar í leit að skárra lífi og lífsbjörg fyrir sig og sína. Misréttið og mismunurinn á lífskjörum blasir nú við fólki óháð búsetu langtum skýrar en áður, og þeim fjölgar stöðugt sem láta ekki lífsháska aftra sér frá að freista gæfunnar. Fólksfjölgun er nú hvergi meiri en í Afríku sunnan Sahara, þar sem íbúafjöldi mun tvöfaldast á næstu 30 árum. Reglukerfi ESB í uppnámi Fjórfrelsið svonefnda er kjarn- inn í regluverki Evrópusambands- ins, þar á meðal um frjálsa för fólks á sambandssvæðinu. Um þann þátt gildir svonefnt Schen- gen-samstarf sem síðan 1999 hef- ur lotið stofnanavaldi ESB. Utan við það standa þrjú ESB-ríki, Bretland, Írland og Króatía. Ís- land og Noregur gerðust 2001 að- ilar að Schengen-fyrirkomulaginu, en sem valdalausir fylgihnettir. Var látið svo heita að með því væru menn að bjarga norræna vegabréfasambandinu frá 1954. Innan Schengen-svæðisins er ekki vegabréfaeftirlit á landamærum ríkja, en það skal vera þeim mun strangara á ytri landamærum ESB. Hefur ytra landamæraeft- irlitinu verið líkt við múr eða virk- isvegg, á þýsku kallað „Festung Europa“. Vegabréfaeftirlit fer fram við fyrstu innkomu á svæðið og ber viðkomandi ríki ábyrgð á að hleypa aðeins inn þeim sem hafa gild skilríki. Sé um að ræða flóttamenn sem sætt hafa ofsókn- um fer um mál þeirra samkvæmt ákvæðum svonefnds Dyflinnar- samnings. Ber m.a. við innkomu að taka fingraför af viðkomandi (Eurodac-kerfið) og sé dvalar- heimild veitt gildir hún aðeins fyr- ir viðkomandi land sem ber ábyrgð á henni, en felur ekki í sér frjálsa för innan Schengen- svæðisins. Um stöðu flóttamanna og hælisleitenda gilda annars al- þjóðasamningar, en kvartað er undan breytilegri málsmeðferð milli ESB-landa. Mismunandi álag á aðildarríkin Augljóst er að álag vegna flóttamanna inn á ESB-svæðið er afar misjafnt og þar skera Mið- jarðarhafsríkin sig úr með þung- um straumi aðkomufólks og til- heyrandi skriffinnsku, en einnig vegna björgunar flóttamanna. Síð- ustu árin hefur þetta mætt mest á Grikkjum og Ítölum, t.d. báru þeir síðarnefndu einir mikinn kostnað af björgun „bátafólksins“ í nafni Mare Nostrum, áður en ESB hljóp í skarðið á síðasta ári, en skar um leið rækilega niður fjárveitingar í þessu skyni. Var það rökstutt með því að eftir því sem spyrðist um vaxandi fjölda þeirra sem færist á leið yfir hafið myndi ásóknin minnka! – Álagið á ítölsk stjórnvöld er hins vegar tal- ið hafa leitt til undanbragða af þeirra hálfu við eftirlit og úr- vinnslu dvalarleyfa, m.a. verið horft fram hjá kröfunni um fingraför, og viðkomandi þannig átt greiðari leið norður á bóginn. Ljóst er að sá stóri hópur fólks úr suðri, sem er fyrst og fremst að leita skárri lífskjara, fellur ekki undir skilgreininguna flóttamenn og á samkvæmt reglunum að vísa þeim til baka. Ísland endurmeti Schengen-aðild Ekki voru nein sannfærandi rök á sínum tíma fyrir aðild Íslands að Schengen-kerfinu. Þeirri blekkingu var beitt að með slíkri aðild þyrftu menn ekki að hafa meðferðis vegabréf í ferðum til meginlands Evrópu. Aðstæður Norðmanna voru aðrar, m.a. vegna langra landamæra að Sví- þjóð, en nú eru uppi kröfur í Nor- egi um að segja sig frá Schengen. Komi til breytinga á Schengen- samstarfinu og Dyflinnarregl- unum, eins og rætt er um, er eðli- legt að Ísland meti stöðu sína upp á nýtt. Eftir Hjörleif Guttormsson » Ljóst er að sá stóri hópur fólks úr suðri, sem er fyrst og fremst að leita skárri lífskjara, fellur ekki undir skil- greininguna flótta- menn. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Innflytjendastefna ESB og Schengen-kerfið í uppnámi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.