Morgunblaðið - 14.05.2015, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2015
Ámundi Ámundason rekur útgáfufélagið Fótspor ásamt syni sín-um Ámunda Steinari. Þeir eru með tólf blöð á sínum snærum,m.a. Reykjavík vikublað og Akureyri vikublað. „Ég hafði ver-
ið á Fréttablaðinu í sex og hálft ár þegar ég stofnaði Fótspor 2008 en
hélt ekki að Ísland myndi hrynja þótt ég hætti á 365. Ég sit einnig
heima við og skrifa ævisögu mína sem á að heita Í námunda við
Ámunda. Svo hefur lengi verið draumur minn að vinna á auglýs-
ingadeild Morgunblaðsins og ætla að sækja um starf þar í janúar
2016.“
Ámundi hefur komið víða við, byrjaði níu ára að gamall að vinna hjá
Pétri Péturssyni útvarpsþul en hann rak fjórar sjoppur á sínum tíma.
Ámundi var síðan fyrsti umboðsmaðurinn hér á landi sem hafði ein-
göngu starfa af því. „Ég var að halda böll fyrir Hljóma þegar ég var á
sjónum en þegar ég sá að ég græddi meira á landlegunni en sjó-
mennskunni þá sneri ég mér alfarið að umboðsmennskunni. Ég fór
með Hljóma í fræga hringferð um landið þar sem þeir spiluðu á
hverju einasta kvöldi 105 daga í röð og héldum ball í KEA þar sem var
uppselt þrettán daga í röð.“ Síðar var Ámundi framkvæmda- og kosn-
ingastjóri Alþýðuflokksins og framkvæmdastjóri Alþýðublaðsins.
„Ég ætla að hafa það huggulegt í dag með börnum og barnabörnum
og fara út að borða á einhverjum rándýrum veitingastað. Vinir mínir
buðust til að sjá um að halda upp á afmælið en ég vildi það ekki. Þeir
sem vilja halda upp á það geta farið í Blóðbankann og gefið blóð. Ég
er samt mjög stoltur af að hafa náð þessum aldri og lít á þetta sem
„stórustu“ stundina í mínu lífi og fæ núna góðan afslátt í strætó og
sundlaugarnar.“
Ámundi Ámundason er sjötugur í dag
Fyrir fáeinum árum „Þarna er ég bráðmyndarlegur og langstærsti
umboðsmaður landsins. Þetta voru gullaldartímar.“
Markað spor
í mannlífinu
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Akranes Áróra Líf Guðmunds-
dóttir fæddist 14. maí 2014 kl.
13.40. Hún vó 2.905 g og var
48 cm löng. Foreldrar hennar
eru Guðmundur Antonsson og
Ástrós S. Jóhannesdóttir.
Nýr borgari
K
Kristján Pétur Þórðar-
son fæddist á Innri-
Múla á Barðaströnd
14.5. 1925 og ólst þar
upp við öll almenn
sveitastörf þess tíma. Hann stundaði
nám við Héraðsskólann í Reykjanesi
við Djúp 1948-49.
Eftir að Kristján kvæntist konu
sinni reistu þau hjónin nýbýlið
Breiðalæk á Barðaströnd 1955 þar
sem þau hafa stundað búskap síðan.
Auk þess stundaði Kristján útgerð á
trillu, ásamt sonum sínum og son-
arbörnum, allt fram til 2009.
Kristján stofnaði, ásamt fleirum,
fyrsta unglingaskólann í Barða-
strandarhreppi og sá um rekstur
hans, var formaður Ungmennafélags
Barðstrendinga 1948-68, formaður
skólanefndar Barðastrandarskóla-
hverfis 1962-78, sat í stjórn Rækt-
unarsambands Vestur-Barðstrend-
Kristján Þórðarson, fyrrv. bóndi og oddviti á Breiðalæk – 90 ára
Heima á Breiðalæk Kristján og Valgerður með börnunum, f.v. Snæbirni, Finnboga, Gísla, Þórhildi, Steinunni og Erlu.
Aldinn eldhugi í sínum
innansveitarmálefnum
Bæjarhúsin Á Breiðalæk eru einstaklega formfögur og vel hönnuð hús,
teiknuð af Teiknistofu landbúnaðarins á sínum tíma. Hagakirkja í baksýn.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
frá TORMEK
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is
▲ Tormek T-4 er uppfærsla á T-3 og
er nú kominn með málmhaus sem
eykur nákvæmni um 300%
Fylgihlutir sjást á mynd.
Verð: 63.950
▼ Tormek T-7 er hannaður fyrir
látlausa notkun og mikil afköst.
Fylgihlutir sjást á mynd.
Verð: 113.500
Nýtt
Opið virka daga
frá 9-18
lau frá 10-16
Allar stýringar fyrirliggjandi