Morgunblaðið - 14.05.2015, Page 27

Morgunblaðið - 14.05.2015, Page 27
ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2015 inga 1962-79, var einn stofnenda og formaður stjórnar undirbúnings- nefndar Mjólkursamlags Vestur- Barðstrendinga og sat í stjórn þess um árabil, var formaður bygging- arnefndar Félagsheimilisins Birki- mels og fyrsti formaður húsnefndar, var í framboði fyrir Alþýðuflokkinn á Vestfjörðum, sat í sýslunefnd Vest- ur-Barðastrandarsýslu 1966-70, í hreppsnefnd Barðastrandarhrepps 1970-82 og jafnframt oddviti, var fulltrúi á þingi Sambands íslenskra sveitarfélaga 1970-82, fulltrúi á Fjórðungsþingi Vestfjarða og á aðal- fundum Orkubús Vestfjarða, sat í stjórn Eyrasparisjóðs á Patreksfirði í nokkur ár frá 1996, var einn stofn- enda Kaupfélags Barðastrandar og formaður þess, einn af stofnendum Saumastofunnar Strandar ehf., og var umsjónarmaður hennar 1977- 2005 og var varamaður í stjórn Landnáms ríkisins og í Sauðfjár- sjúkdómanefnd 1981-90. Kristján hefur sent frá sér tvær bækur: Sú kemur tíð, endurminn- ingar, útg. 2005, og Vegir og vegleys- ur, útg. 2006. Fjölskylda Kristján kvæntist 23.10. 1954 Val- gerði Kristjánsdóttur, f. 5.11. 1932, húsfreyju. Hún er dóttir Kristjáns Finnbogasonar, sem var bóndi á Litlabæ í Ögurhreppi við Djúp, og Guðbjargar Jensdóttur húsfreyju. Börn Kristjáns og Valgerðar eru Snæbjörn, f. 29.8 1954, rafiðnfræð- ingur í Reykjavík, kvæntur Sig- urlaugu Sigurðardóttur skrifstofu- manni en þau eiga tvö börn og fjögur barnabörn; Finnbogi Sævar, f. 21.6. 1956, bóndi og búfræðingur á Breiðalæk, kvæntur Ólöfu Páls- dóttur bónda, frá Hamri á Barða- strönd, en þau eiga fjögur börn og sex barnabörn; Gísli, f. 16.9. 1957, cand. mag. í sagnfræði og blaðamað- ur í Osló, kvæntur Anne Ånstad fréttastjóra og eiga þau tvö börn; Þórhildur Guðbjörg, f. 27.4. 1964, rá- gjafarþroskaþjálfi á Höfn í Horna- firði, gift Sigurði Mar Halldórssyni, ljósmyndara og framhaldsskóla- kennara, en þau eiga tvær dætur; dr. Steinunn Jóna, f. 13.10. 1965, pró- fessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands og Þjóðminjasafn en hún á tvö börn; Erla Bryndís, f. 16.4. 1968, landslagsarkitekt á Ísafirði og eig- andi teiknistofunnar Eikar, gift Jóni Gíslasyni trésmíðameistara en þau eiga tvö börn. Systkini Kristjáns: Björg Þórðar- dóttir, f. 10.10. 1916, d. 15.6. 1998, bóndi í Tungumúla á Barðaströnd; Ólafur Kristinn Þórðarson, f. 21.8. 1918, d. 14.6. 2010, kennari í Reykja- vík; Jóhanna Þórðardóttir, f. 4.1. 1920, d. 9.9. 2011, húsfreyja á Pat- reksfirði; Júlíus Óskar Þórðarson, f. 29.4. 1921, d. 11.4. 2010, bóndi á Skorrastað í Norðfirði; Björgvin Þórðarson, f. 9.9. 1922, d. 17.4. 1997, leigubílstjóri og sjómaður í Hafn- arfirði; Karl Þórðarson, f. 16.10. 1923, d. 17.12. 1991, verkamaður og sjómaður í Reykjavík; Steinþór Þórðarson, f. 13.7. 1924, d. 7.4. 1995, bóndi í Skuggahlíð í Norðfirði; Sveinn Jóhann Þórðarson, f. 13.12. 1927, fyrrv. kaupmaður og bóndi á Innri-Múla á Barðaströnd. Foreldrar Kristjáns voru Þórður Ólafsson, f. 24.8. 1887, d. 10.4. 1984, bóndi á Innri-Múla, og k.h., Steinunn Björg Júlíusardóttir, f. 20.3. 1895, d. 13.2. 1984, húsfreyja á Innri-Múla. Úr frændgarði Kristjáns Þórðarsonar Kristján Þórðarson Valgerður Jónsdóttir húsfr. á Efra-Vaðli Jón Einarsson b. á Efra-Vaðli á Barðastönd Jóna Jóhanna Jónsdóttir húsfr. á Hlíðarfæti Júlíus Ólafsson b. á Hlíðarfæti á Barðastönd Steinunn Björg Júlíusardóttir húsfr. á Innri-Múla Guðrún Bjarnadóttir húsfr. í Haga Ólafur Bjarnason b. á Ytri-Múla og Skriðnafelli á Barðastönd Guðrún Einarsdóttir húsfr. í Hrísnesi Ólafur Helgason b. í Hrísnesi á Barðastönd Kristín Ólafsdóttir húsfr. í Miðhlíð Ólafur Sveinsson b. í Miðhlíð á Barðaströnd Þórður Ólafsson b. á Innri-Múla á Barðaströnd Jóhanna Oddgeirsdóttir húsfr. á Innri-Múla og Neðra-Vaðli Sveinn Ólafsson b. á Innri-Múla og Neðra-Vaðli á Barðastönd Afmælisbarnið Nýleg mynd af Kristjáni, tilbúnum á mannamót. Bjarki fæddist á Dalvík 15.5.1923 og ólst þar upp. For-eldrar hans voru Elías Hall- dórsson, vélsmiður, trésmíðameist- ari og úr- og gullsmiður á Dalvík, og k.h., Friðrika Jónsdóttir húsfreyja. Bróðir Elíasar var Jón Lyngstað Halldórsson, skipstjóri á Dalvík, fað- ir Ottós menntaskólakennara. Hálf- bróðir Elíasar var Ingimar Óskars- son náttúrufræðingur, faðir Óskars þýðanda og Magnúsar hljómlistar- manns. Móðursystkini Bjarka voru Zóph- anías, bóndi á Hóli í Svarfaðardal, Kristín, húsfreyja á Akureyri, og Björn, bóndi á Ölduhrygg í Svarf- aðardal. Eftirlifandi eiginkona Bjarka er Þórunn Ásthildur Sigurjónsdóttir kennari og eignuðust þau eina dótt- ur en með fyrri konu sinni eignaðist hann þrjú börn. Bjarki lauk unglingaprófi frá Unglingaskóla Svarfdæla 1940, vél- skólaprófi frá Akureyri 1943, stýri- mannsprófi frá Stýrimannaskól- anum í Reykjavík 1949, prófi frá Lögregluskólanum 1954 og stundaði lögreglufræðinám við Michigan State University 1959, við Univers- ity of Louisville 1960 og var við lög- reglustarfsþjálfun hjá Scotland Yard í London 1961 og 1962. Bjarki var sjómaður á fiskiskipum til 1953 og stýrimaður og skipstjóri á síldarskipum til 1976 í sumarleyfum. Bjarki hóf störf hjá lögreglunni í Reykjavík 1953 og starfaði þar til 1988. Hann var aðalvarðstjóri 1962- 66, yfirlögregluþjónn almennrar lög- gæslu 1966-88 og skólastjóri Lög- regluskóla ríkisins 1988-93. Bjarki var formaður Bygginga- samvinnufélags lögreglumanna í Reykjavík, ritstjóri Lögreglublaðs- ins, formaður Lögreglukórsins, sat í stjórn SÁÁ, sat í framkvæmdastjórn og var varaformaður Verndar í ald- arfjórðung. Bjarki hafði einstakt lag á æstum mótmælendum og fólki á skemmti- samkomum, oft í annarlegu ástandi, enda stilltur maður og yfirvegaður og einstakt ljúfmenni. Bjarki lést 21.1. 2013. Merkir Íslendingar Bjarki Elíasson 95 ára Auður Sólmundsdóttir 90 ára Garðar Sveinbjörnsson 85 ára Anna Pálína Magnúsdóttir Jóhanna Guðjónsdóttir Ármann Kristín Guðjónsdóttir Sigríður Árnadóttir Sólveig Pálsdóttir 80 ára Fjóla Gunnarsdóttir Jón Guðmundsson Kristín Jónsdóttir Sólveig Sigfúsdóttir Steinar Jónasson 75 ára Baldur Ólafsson Guðbjörg R. Jónsdóttir Snjólaug Benediktsdóttir Steingerður Halldórsdóttir 70 ára Benedikt Þórðarson Borgar Ólafsson Dóra S. Juliussen Guðmundur Benediktsson Kristín H. Pálsdóttir Magnús B. Ásgeirsson 60 ára Edda Sjöfn Smáradóttir Erla Skarphéðinsdóttir Eyjólfur Rósmundsson Guðmundur Eiríksson Guðmundur Gísli Egilsson Helga Björk Magnúsd. Grétudóttir Hjörtur Bergþór Hjartarson Ingibjörg Jóna Baldursdóttir Óskar Fannberg Jóhannsson Regína Eiríksdóttir Reynaldo Cabana Rosario Svala Gunnarsdóttir Tómas Björn Ólafsson Unnur Snorradóttir Þórir Baldursson 50 ára Ágústa Haraldsdóttir Björn Drengsson Jolanta Krawczyk Lovísa Þórðardóttir Sigurbjörg Erna Jónsdóttir 40 ára Auður Daníelsdóttir Einar Örn Einarsson Emsale Morina Júlíus Þór Gunnarsson Kiril Nikolov Chakarov Leiknir Fannar Thoroddsen Linda Guðríður Sigurjónsdóttir Lísa Hue Nguyen Ninja Ómarsdóttir Sigríður Halldóra Gunnarsdóttir Sindri Svavarsson Skúli Örn Sigurðsson Svavar Þór Einarsson Unnar Þór Reynisson 30 ára Andri Þorláksson Birna Margrét Halldórsdóttir Björgvin Guðmundsson Björk Guðmundsdóttir Einar Hreinsson Elín Heiða Ólafsdóttir Járnbrá Ólafsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Ösp ólst upp á Tjörn í Svarfaðardal, lauk BA-prófi í tónsköpum í London, sinnir þar tónlist og verður með sína fyrstu sólótónleika á Rósenberg á afmælisdaginn kl. 21. Systkini: Örn Eldjárn, f. 1983, tónskáld, og Björk, f. 1990, textílhönnuður og þjóðfræðinemi. Foreldrar: Kristján Eld- járn Hjartarson, f. 1956, og Kristjana Arngríms- dóttir, f. 1961. Ösp Eldjárn Kristjánsdóttir 30 ára Daði ólst upp á Selfossi, býr þar, lauk prófum í kerfisfræði frá HR og er kerfisfræðingur hjá TRS á Selfossi. Maki: Margrét Anna Guð- mundsdóttir, f. 1987, í MA-námi í félagsráðgjöf við HÍ. Börn: Mikael Þór Daða- son, f. 2009, og Eva Katr- ín Daðadóttir, f. 2013. Foreldrar: Sigurður Jóns- son, f. 1948, og Esther Óskarsdóttir, f. 1949. Daði Már Sigurðsson 30 ára Óðinn Daniel ólst upp í Kaupmannahöfn, býr í Reykjavík, stundaði nám í dönsku og íslensku við FB og hefur starfað við tölvur hjá Kísildölum. Dóttir: Helena Marý, f. 2012. Bróðir: Oliver Skov, f. 1998, grunnskólanemi. Foreldrar: Sussi Skov, f. 1964, húsfreyja, og Kim Ravn, f. 1959, starfs- maður við Kastrupflugvöll í Kaupmannahöfn. Óðinn Daniel Skov Holm Fæst hjá Jóni & Óskari. Laugavegi 61 // Kringlunni // Smáralind. Tel.+354 552 4910 // www.jonogoskar.is. Norðurljós Nýjasta hönnun úr Icecold silfurlínunni er innblásin af hinum töfrandi Norðurljósum. Tilvalin gjöf til vina og vandamanna erlendis. Northern lights PI PA R \ TB W A • SÍ A • 14 39 8 9 Men frá 16.900 Lokkar 15.900 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.