Morgunblaðið - 14.05.2015, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.05.2015, Blaðsíða 31
31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2015 Furðuveröld Lísu: Ævintýraheimur óperunn- ar nefnist sýning sem opnuð verður í dag kl. 13 í Listasafni Einars Jónssonar. Furðuver- öldin er verkefni í vinnslu, unnið í samstarfi við Myndlistaskólann í Reykjavík og Landa- kotsskóla og innblásið af nýrri óperu eftir John A. Speight, tónskáld og Böðvar Guð- mundsson, rithöfund sem nefnist Furðuver- öld Lísu: Ævintýraópera. Markmið verkefn- isins er að skapa eins konar verkefnasmiðju þar sem ungir nemendur vinna með eigið ímyndunarafl og sköpunarkraft í tengslum við persónur sögunnar og texta Böðvars. Nemendur þróa gjörningasýningu og lista- smiðju í höggmyndagarði og Listasafni Ein- ars Jónssonar. Ljósmynd/Rafael Pinho Furðuveröld Lísu Kristín Helga Káradóttir opnar í dag kl. 18 sýninguna Vorverk / Spring Task í sýningar- sal Nýlistasafnsins við Völvufell í Breiðholti og er hún sú síðasta í sýningaröðinni Hring- himinn. „Með draumkenndum raunsæistón fagnar listakonan komu vorsins með tilheyr- andi togstreitu við hið innra og hið ytra. Veturinn hefur losað tök sín og umbreyting árstíðanna birtist í hráum sýningarsal í manngerðu umhverfi fjarri náttúrunni. Jarð- veg sýningarinnar skapaði listakonan út frá samfélaginu í kringum Nýlistasafnið í Fella- hverfi en jafnframt út frá veruleika lista- mannsins, einyrkjans í sýningarsalnum,“ seg- ir m.a. um sýninguna á vef Listhátíðar í Reykjavík. Ljósmynd/Kristín Káradóttir Vorverk í Nýlistasafninu Sýningin Frenjur og fórnarlömb verður opn- uð í dag kl. 12 í Listasafni ASÍ. Á henni fjalla konur um konur í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi. Verk eiga Anna Hallin, Eirún Sigurðardóttir, Elín Pjet. Bjarnason, Eva Ísleifsdóttir, Kristín Jóns- dóttir frá Munkaþverá, Lóa Hjálmtýsdóttir, Magdalena Margrét Kjartansdóttir, Rakel McMahon, Róska, Sigrid Valtingojer og Val- gerður Guðlaugsdóttir. „Aldur, efnistök og efniviður listamannanna eru mismunandi en umfjöllunarefnið er það sama; frenjan og fórnarlambið sem umhverfið heldur áfram að slípa í erfðaefni hverrar konum,“ segir um sýninguna. Sýningarstjórar eru Kristín G. Guðnadóttir og Steinunn G. Helgadóttir. Konur fjalla um konur Ljósmynd/Rakel McMahon Sýning á innsetningu svissnesku myndlistar- konunnar Alexöndru Navratil verður opnuð í Mengi í dag kl. 14. Navratil vinnur með kvik- myndir og ljósmyndir og kannar jöfnum höndum miðlana sem slíka og séreiginleika og kosti efniviðar þeirra, eins og segir á vef Listahátíðar. Verk hennar byggi á sjón- rænum heimildum og meðferð þeirra í sögu- legu- samfélagslegu samhengi. Sýnd verða verkin „Resurrections“ og „Views (This Formless Thing)“ og er sýningin hluti af sýn- ingunni Formið endurheimt í Galleríi i8 þar sem teflt er saman verkum Navratil, Erin Shirreff og Löru Viana en verk þeirra eiga það sameiginlegt að byggjast á uppbroti og endurbyggingu arkíva og minninga. Navratil í Mengi Billy Elliot (Stóra sviðið) Fim 14/5 kl. 19:00 Mið 27/5 kl. 19:00 Lau 6/6 kl. 19:00 Fös 15/5 kl. 19:00 Fös 29/5 kl. 19:00 Sun 7/6 kl. 19:00 Sun 17/5 kl. 19:00 Lau 30/5 kl. 19:00 Mið 10/6 kl. 19:00 Mið 20/5 kl. 19:00 Sun 31/5 kl. 19:00 Fim 11/6 kl. 19:00 Fim 21/5 kl. 19:00 Mið 3/6 kl. 19:00 Fös 12/6 kl. 19:00 Fös 22/5 kl. 19:00 Fim 4/6 kl. 19:00 Lau 13/6 kl. 19:00 Mán 25/5 kl. 13:00 Ath kl 13 Fös 5/6 kl. 19:00 Sun 14/6 kl. 19:00 Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega Lína langsokkur (Stóra sviðið) Sun 17/5 kl. 13:00 Síðustu sýningar leikársins Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið) Fim 14/5 kl. 20:00 23.k. Fim 21/5 kl. 20:00 Fim 28/5 kl. 20:00 Fös 15/5 kl. 20:00 aukas. Fös 22/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00 Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar Kenneth Máni (Litla sviðið) Lau 16/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00 Lau 6/6 kl. 20:00 Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni Beint í æð (Stóra sviðið) Lau 16/5 kl. 20:00 Síðasta sýning! Peggy Pickit sér andlit guðs (Litla sviðið) Sun 17/5 kl. 20:00 Fös 22/5 kl. 20:00 Fim 21/5 kl. 20:00 Lau 30/5 kl. 20:00 Urrandi fersk háðsádeila frá einu umtalaðasta leikskáldi Evrópu Hystory (Litla sviðið) Fim 14/5 kl. 20:00 Mið 20/5 kl. 20:00 auka. Fös 15/5 kl. 20:00 Sun 31/5 kl. 20:00 auka. Nýtt íslenskt verk eftir Kristínu Eiríksdóttur Blæði: obsidian pieces (Stóra sviðið) Þri 19/5 kl. 20:00 Mán 25/5 kl. 20:00 Fim 28/5 kl. 20:00 Íslenski dansflokkurinn - Aðeins þessar þrjár sýningar Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl. Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is Eldhúsið (Salurinn) Lau 23/5 kl. 14:00 Síðbúin rannsókn (Aðalsalur) Fös 15/5 kl. 20:00 Both Sitting Duet og Body Not Fit For Purpose (Salurinn) Lau 30/5 kl. 20:00 The Border (Salurinn) Mán 18/5 kl. 20:00 Þri 19/5 kl. 20:00 Endatafl (Salurinn) Fim 14/5 kl. 20:00 Sun 17/5 kl. 20:00 Fim 28/5 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00 Sun 24/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00 Hávamál (Salurinn) Mið 27/5 kl. 20:00 Sun 31/5 kl. 16:00 Sun 31/5 kl. 20:00 Á annarri hæð í Þingholtsstræti 27 verður í dag klukkan 15 opnuð sýn- ingin Í tíma og ótíma, með verkum fimm listamanna sem tengjast hver öðrum óljósum böndum. Það eru þau Svava Björnsdóttir, Ívar Valgarðs- son, Ragnar Axelsson (Rax), Kristin Hrafnsson og Þór Vigfússon. Þau koma saman á heimili sameig- inlegrar vinkonu og leitast á sýning- unni við að afhjúpa möguleg merk- ingartengsl verka sinna, og um leið samband áhorfandans við listaverk- in innan veggja heimilisins. Vinkona listamannanna er Klara Stephensen sem jafnframt býr í íbúðinni og er sýningarstjórinn. „Jú, þetta er mikið rask en af- skaplega gaman,“ segir Klara þegar hún er spurð að því hvernig sé að fá þennan hóp listamanna inn í íbúðina, að setja upp verk sín. „Ég hef unnið með öllum þessum listamönnum gegnum árin og met þau mikils. Þau fengu frjálsar hend- ur, vinna öll hér saman á skapandi hátt, og hafa alltaf komist að sam- komulagi. Ég fékk fyrirfram lítið að vita hvað þau hygðust gera hér en treysti þeim fullkomlega, og útkom- an er mjög ánægjuleg.“ Klara segir að Hanna Styrmis- dóttir, listrænn stjórnandi Lista- hátíðar, hafi boðið henni að taka þátt í hátíðinni með þessum hætti eftir að hafa séð í haust sem leið sýningu á verkum Kees Visser í íbúðinni. „Ég sagði já takk og sá strax fyrir mér að þessi hópur hefði frjálsar hendur við að vinna hér inn verk, sem þau hafa gert,“segir Klara. Og listamennirnir vinna í ýmsa miðla. „Já, hér er járn, steinn, gifs, gler og pappír í verkum, skúlptúrar og veggverk. Sum verkin eru splunkuný og afar forvitnileg. Það er svo algengt að fólk og fyrirtæki fái listamennina ekki í lið með sér, á réttum tíma og á réttum stað, og vinna með þeim. Iðulega eru keypt listaverk þegar allt annað í húsnæðinu er tilbúið. Mér finnst áríðandi að það breytist, samstarfið er svo mikilvægt. Ég myndi ekki þrífast á mínu heimili án þess að hafa verk sem mér finnast falleg og áhugaverð og hafa einhverja sögu.“ Samsýning á heimili  Fimm lista- menn í íbúð við Þingholtsstræti Morgunblaðið/Eggert Hjá vinkonu Ragnar Axelsson, Ívar Valgarðsson, sýningarstjórinn og vin- konan Klara Stephensen, Svava Björnsdóttir og Kristinn E. Hrafnsson. Í listhúsinu Tveimur hröfnum að Baldursgötu 12 verður í dag klukkan 13 opnuð sýning á verkum Huldu Hákon. Björg, sólskin, hetjur, himinn, haf og fuglar kallar hún sýninguna. Hulda Hákon á nú um þriggja áratuga myndlistarferil að baki og er meðal vinsælustu myndlistarmanna þjóðar- innar. Hún hefur iðulega fjallað um hvunndagshetjur í verkum sínum, lágmyndum þar sem koma fyrir litlir sigrar, óhöpp og forvitnileg atvik, myndir og textar, og er verk hennar að finna í opinberum söfnum og einka- eigu víða um lönd. „Eitt hið ánægjulega við þessa sýningu er að á henni er meðal annars verk frá 1986, verk sem ég sýndi þá á einkasýningu í New York en verkin mín hafa líklega breyst það lítið að það smellpassar nú inn með nýju verk- unum,“ segir Hulda. Hún sýnir nokkur málverk og lág- myndir og eru flest frá síðustu tveimur árum. Hún segir þau tala skemmtilega saman í þessu rými í Tveimur hröfnum sem henti þeim mjög vel. „Mér er svo illa við það hvernig fór fyrir landinu í hruninu að ég var að reyna að tala ekkert um það. En einhvernveginn skín það samt alltaf í gegn í verkunum,“ segir hún og segir málverk af leitarhundasveit til dæmis kallast á við verk sem sýnir skipbrotsmannaskýlið á Faxaskeri við Vestmannaeyjar, og málverk af Hvamms- tanga upplýstum í næturhúmi kallast á við verk sem sýn- ir nýtískulegt fjölveiðiskip í svörtum sjó. efi@mbl.is Fjölbreytilegt samtal verka Morgunblaðið/Golli Listakonan Hulda Hákon á sýningunni með hundinum Heiðu. Hún sýnir bæði lágmyndir og málverk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.