Fréttablaðið - 19.05.2015, Side 4
19. maí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
Ásthildur, hætta krakkarnir þá
að tala vestfirsku?
„Það munu börnin
okkar aldrei gera!“
Börnum og unglingum í Vesturbyggð býðst
nú talþjálfun með beinu sambandi í gegnum
netið við sérfræðing í Reykjavík.
Icesave-málinu er hvergi nærri
lokið og EFTA-dómstóllinn mun
taka afstöðu til þriggja fyrir-
spurna frá Bretum og Hollend-
ingum er lúta að því hvernig
gengið var frá málum varðandi
Tryggingarsjóð innstæðueig-
enda og fjárfesta (TIF). Sjóð-
urinn hefur fengið breska lög-
fræðinginn Tim Ward til að
reka málið og gæta hagsmuna
Íslands.
Ljóst er að ítrustu kröfur eru
gríðarlega háar. Gunnar Viðar,
lögmaður hjá Lex, er lögmað-
ur TIF. Í svari við fyrirspurn
Fréttablaðsins segir hann óljóst
hver nákvæm upphæð kröfunn-
ar er, vextir séu áfallandi og
talan breytist því með hverjum
degi. Það eigi þó ekki við um
kröfu Hollendinga, sem hafa nú
bara uppi kröfu um vexti til til-
tekins dags.
Í tilkynningu sem TIF sendi
frá sér á síðasta ári nam krafa
Breta og Hollendinga um 556
milljörðum króna, auk vaxta og
kostnaðar. Hollendingar áttu
103,6 milljarða króna af þeirri
kröfu. Vextir og kostnaður voru
talin taka kröfuna upp í um
1.000 milljarða króna.
Hæstiréttur Íslands stað-
festi í mars úrskurð Héraðs-
dóms Reykjavíkur sem heimil-
aði Bretum og Hollendingum að
fara með þrjár spurningar fyrir
EFTA-dómstólinn.
Guðrún Þorleifsdóttir, formað-
ur stjórnar TIF, segir að nokkuð
lengi hafi legið í loftinu að svo
gæti farið. Hún segir sjóðinn
vera að undirbúa vörnina í þess-
um þætti málsins. Nokkuð geti
verið í endanleg svör.
„Þegar svör EFTA-dómstóls-
ins liggja fyrir á eftir að fá aðal-
meðferð hér heima og síðan nið-
urstöðu Hæstaréttar. Það getur
því liðið nokkur tími þar til end-
anleg niðurstaða kemur í málið.“
Hún segist þó tiltölulega bjart-
sýn á niðurstöðuna.
„Það er þó alltaf ákveðin
óvissa þegar búið er að höfða
mál og gildandi réttur er
kannski hvergi skráður hvað
þessi atriði varðar nákvæm-
lega.“
Hundruð milljarða í húfi
EFTA-dómstóllinn mun taka afstöðu til spurninga Breta og Hollendinga varðandi Icesave. Gætu sótt mál fyrir
íslenskum dómstólum. Ýtrustu kröfur gætu numið allt að 1.000 milljörðum. Tim Ward fer með mál Íslands.
MIKILL MEIRIHLUTI Alþingi samþykkti síðari Icesave-samninginn 16. febrúar árið
2011 með miklum meirihluta, en aðeins 16 þingmenn voru á móti honum. Munaði
þar mestu um að Sjálfstæðisflokkurinn studdi stjórnina í málinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
■ Samrýmdist það EES-samningnum að miða við stöðu tryggingarsjóðsins
við ákveðinn tímapunkt, þegar bankakerfið fór á hausinn, og miða við
stöðu hans eins og hún var þá en ekki skuldbindingar?
■ Er það í samræmi við Evrópureglur að stofna nýja deild utan um trygg-
ingarsjóð sem er óháð eldri skuldbindingum hans?
■ Var löglegt að setja Bretum og Hollendingum það skilyrði fyrir því að
þeir fengju það fé sem tiltækt var í sjóðnum að þeir afsöluðu sér heildar-
kröfunni í búið?
Spurningarnar á mannamáli
Tim Ward er
virtur breskur lög-
fræðingur. Hann
var málflutnings-
maður Íslands í
Icesave-málinu
fyrir EFTA-dóm-
stólnum og fyrir
það valdi breska
tímaritið The Lawyer hann mál-
flutningsmann ársins árið 2013.
➜ VerðlaunaðurKolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
DÝRAVERND „Dýraverndunarsjónar-
mið eru fyrir borð borin með þessu
atferli. Það er líka í þágu íslenskra
hagsmuna að snúa baki við slíkum
óvissuferðum Hvals hf. og virða
vilja alþjóðasamfélagsins,“ segir
Sigursteinn Másson, talsmaður
Alþjóðadýraverndunarsjóðsins.
Samtökin furða sig á því að Hval-
ur hf. ætli að ögra alþjóðasamfé-
laginu með hnattreisu með langreyð-
arkjöt til Japans. Þetta kom fram í
tilkynningu frá samtökunum í gær
í kjölfar frétta af 1.700 tonnum af
langreyðarkjöti til útflutnings um
borð í skipinu Winter Bay sem ligg-
ur nú við festar í Hafnarfjarðarhöfn.
Samtökin segja að víðast hvar
sé litið á milliríkjaverslun með
hvalkjöt sem ólöglega verslun með
smyglvarning, sem fá ríki vilja
nokkuð koma nálægt. „Það er litið á
slíka verslun sömu augum og versl-
un með fílabein,“ segir Sigursteinn.
Hvalveiðar eru bannaðar sam-
kvæmt ákvörðun Alþjóðahvalveiði-
ráðsins frá 1982 og telur Alþjóða-
dýravelferðarsjóðurinn ólíklegt að
CITES-samningurinn sem Ísland
hefur fullgilt, um alþjóðaversl-
un með plöntur og dýr í útrýming-
arhættu, muni samþykkja milli-
ríkjaverslun með langreyðarkjöt.
„Langreyðurin er á lista yfir dýr í
útrýmingarhættu samkvæmt þeim
samningi,“ segir Sigursteinn.
„Skipið Alma sigldi síðasta vor
með hvalkjöt í einn og hálfan mánuð
mjög óhefðbundna leið og lagðist
hvergi að bryggju fyrr en á áfanga-
stað. Það sýnir skoðanir alþjóðasam-
félagsins.“ - ngy
Alþjóðadýraverndunarsjóðurinn segir að víðast hvar sé litið á milliríkjaverslun með hvalkjöt sem ólöglega verslun:
Segja Hval hf. ögra alþjóðasamfélaginu
WINTER BAY 1.700 tonn af langreyðar-
kjöti eru um borð í Winter Bay.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
KJARAMÁL Vonarglæta sem vaknaði fyrir um viku um
að samningaviðræður væru loksins hafnar eftir nokk-
urra mánaða setu BHM með samninganefnd ríkisins
hjá ríkissáttasemjara varð að engu á samningafundi
gærdagsins, segir Páll Halldórsson, formaður samn-
inganefndar BHM. „Það er deginum ljósara að enginn
samningsvilji er hjá ríkinu.“
Fyrir helgi sendi BHM frá sér fréttatilkynningu þar
sem því var lýst yfir að verkfallsaðgerðir yrðu ekki
hertar að svo stöddu. Í tilkynningu frá BHM í gær segir
að sú ákvörðun hafi verið tekin í trausti þess að á næsta
fundi með ríkinu yrðu tekin sýnileg skref í átt að lausn
deilunnar. Það hafi ekki gengi eftir.
„BHM hefur ítrekað verið tilbúið að ræða ýmsar leið-
ir til lausnar en þrátt fyrir það hefur ríkið ekki fengist
í þá vinnu af alvöru og það sýnt sig að þeir eru að bíða
eftir að samið verði á almennum vinnumarkaði.“ Í til-
kynningu BHM segir að með þessu sýni ríkið starfs-
mönnum sínum vanvirðingu þar sem samningsréttur
þeirra sé ekki virtur.
„Stjórnvöld hafa að engu þau víðtæku áhrif sem verk-
fallsaðgerðir starfsmanna þeirra hafa og virða að vett-
ugi þá grafalvarlegu stöðu sem löngu er komin upp í
samfélaginu. Þessi staða er algerlega á ábyrgð ríkis-
ins,“ segir Páll.
Ekki hefur verið boðað til nýs fundar í deilunni, sem
fer harðnandi því Félag háskólamenntaðra starfsmanna
stjórnarráðsins samþykkti í gær boðun ótímabundins
verkfalls hjá Fjársýslu ríkisins frá miðnætti 2. júní
næstkomandi. - sáp, aí
FUNDUR Páll
Halldórsson,
formaður
samninga-
nefndar BHM,
á samstöðu-
fundi sam-
takanna á
Lækjartorgi
9. apríl síðast-
liðinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
PJETUR
Enn einn árangurslaus fundur í kjaradeilu BHM og ríkisins í gær:
Segja vonarglætu að engu orðna
SÁDI-ARABÍA Yfirvöld í Sádi-
Arabíu auglýsa nú eftir átta
starfsmönnum í aftökur sam-
kvæmt frétt The Guardian.
Þetta er gert til þess að svara
aukningu í dauðarefsingum þar
í landi. Engar hæfniskröfur eru
settar sem skilyrði í auglýsingu
um starfið.
Síðastliðinn sunnudag var
maður hálshöggvinn í Sádi-
Arabíu og var það aftaka númer
áttatíu og fimm á árinu.
Sádi-Arabía er í hópi landa
þar sem flestar dauðarefsingar
eru framkvæmdar. - ngy
Flestir aflífaðir fyrir morð:
Sádar auglýsa
eftir böðlum
SVEITARSTJÓRNIR Fulltrúar meiri-
hlutans í sveitarstjórn Mýrdals-
hrepps segjast hafa fellt niður
umdeilt ákvæði í ráðningarsamn-
ingi nýs sveitarstjóra vegna and-
stöðu minnihlutans.
„Sveitarstjóri heldur reglulega
fundi með meirihluta sveitar-
stjórnar þar sem farið er yfir
stöðu helstu mála sem eru á döf-
inni hverju sinni,“ sagði í ákvæð-
inu sem minnihlutinn gagnrýndi
og hefur nú verið tekið út. Minni-
hlutinn segir það til bóta en að
öðru leyti sé afstaða þeirra til
ráðningarsamningsins óbreytt. - gar
Tóku tillit til minnihlutans:
Sveitarstjórinn
ekki á sérfundi
KLAUSTUR Nýr sveitarstjóri hefur tekið
til starfa. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SPURNING DAGSINS
Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is
21.–28. júlí.
Fjórbýli með öllu inniföldu
116.500 KR.
MALLORCA
FERGUS TOBAGO
Hótel á besta stað á Palmanova
þar sem Magaluf og Palmanova
mætast. Hægt er að ganga úr
hótelgarðinum beint á ströndina.
Fín sundlaug og lítil barnalaug.
m.v. 2 fullorðna og 2 börn. 126.500 m.v. 2 fullorðna.
Þeir sem b
óka ferð til
Mallorca í
maí fá frítt
fyrir
alla fjölsky
lduna í
Aqualand,
á meðan
birgðir end
ast.
ALLTINNIFALIÐ
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
E
-E
C
8
C
1
7
5
E
-E
B
5
0
1
7
5
E
-E
A
1
4
1
7
5
E
-E
8
D
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
8
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K