Fréttablaðið - 19.05.2015, Side 6
19. maí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6
KJARAMÁL Hækki laun allra hópa
um meira en fjögur prósent í yfir-
standandi kjarasamningum, um
leið og kynntar yrðu til sögunnar
skattkerfisbreytingar með hækk-
uðum persónuafslætti sem færi
stiglækkandi með auknum tekjum,
þá myndu ráðstöfunartekjur allra
hópa aukast. Þetta kemur fram í
umfjöllun efnahagsritsins Vís-
bendingar um eina mögulega
útfærslu slíkra skattkerfisbreyt-
inga.
Í dæminu er gert ráð fyrir að
skattleysismörk verði færð upp
í 160 þúsund krónur á mánuði,
skattprósentur yrðu óbreyttar frá
því sem nú er, en persónuafsláttur-
inn yrði breytilegur eftir tekjum.
„Hækkun persónuafsláttar
er mjög dýr aðgerð. Þess vegna
hefur sú hugmynd verið sett fram
að breyta afslættinum þannig
að hann fari stiglækkandi með
tekjum,“ segir í Vísbendingu.
Lágtekjufólk myndi njóta hans að
fullu, en hátekjufólk fengi engan
persónuafslátt. „Með þessu móti
fer breyting á afslættinum ekki
til þeirra sem hæst hafa launin.“
Gert er ráð fyrir að fyrir tekjur
undir 309.140 krónum verði per-
sónuafslátturinn 59.680 krónur,
sem samsvari 160 þúsund króna
skattleysismörkum. „Afslátturinn
fari svo jafnt lækkandi niður í núll
við 1.200 þúsund krónur.“
Áhrifin eru sögð þau að skatt-
ar þeirra sem lægst hafi launin
lækki, en þegar komið sé í tekjur
aðeins yfir millitekjum, sem nú
séu á bilinu 350 til 400 þúsund
krónur á mánuði, þá hækki skatt-
byrðin.
„Ráðstöfunartekjur þeirra sem
eru með um 200 þúsund krónur á
mánuði myndu hækka um fjögur
prósent við þessa breytingu, en
ráðstöfunartekjur þeirra sem eru
með tekjur um 700 þúsund myndu
lækka um nálægt þrjú prósent,“
segir í Vísbendingu. „Breytingin
er fyrst og fremst tilfærsla á skatt-
byrðinni frá þeim sem minnst hafa
launin til hinna sem hafa meiri
tekjur.“
Í Vísbendingu er tekið fram að
tímaritið felli ekki um það nokk-
urn dóm hvort leiðin sé snjöll eða
heppileg. „Mat manna á því fer
eflaust eftir því hvar menn lenda
á tekjuskalanum, en persónuaf-
sláttur af þessu tagi myndi jafna
ráðstöfunartekjur í samfélaginu.“
olikr@frettabladid.is
Skattbyrði millitekju-
hópa gæti orðið meiri
Hagstæð áhrif af hækkuðum persónuafslætti sem síðan færi stiglækkandi með
auknum tekjum yrðu eðlilega mest hjá tekjulægstu hópunum. Í dæmi sem sett er
upp í nýjasta hefti Vísbendingar má hins vegar sjá aukna skattbyrði millitekjuhópa.
HJÁ SKATTINUM Miðað við breytingar á tekjuskattkerfinu sem teiknaðar eru upp í Vís-
bendingu yrðu engar breytingar hjá fólki með um 400 þúsund krónur í mánaðarlaun,
en þeir sem hefðu hærri tekjur greiddu meiri skatta eftir breytingu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Tekjur Skatthlutfall
0 - 142.153 kr. 0,00%
142.154 - 309.140 kr. 37,30%
309.141 - 836.404 kr. 39,74%
836.404 kr. og þar yfir 46,24%
Persónuafsláttur er 50.902
krónur á mánuði, sem jafngildir
skattfrelsi upp í 142.153 krónur.
Heimild: Vísbending
Tekjuskattkerfið
BANDALAG HÁSKÓLAMANNA (BHM)
Ótímabundið verkfall hjá hluta aðildarfélaga | Stendur enn yfir
Í DAG ER 43. DAGUR Í VERKFALLI FIMM ÞEIRRA:
1 Félag geislafræðinga Hefur meðal annars áhrif á starfsemi Landspítal-
ans. Ekki er hægt að framkvæma margvíslegar rannsóknir sem krefjast
röntgenmyndatöku.
2 Félag lífeindafræðinga Áhrif á framkvæmd rannsókna á Landspítal-
anum. Lífeindafræðingar starfa á rannsóknastofum sjúkrahúsa og
fyrirtækja í erfðagreiningu og lyfjaiðnaði, auk stofnana sem þjóna land-
búnaði.
3 Félag íslenskra náttúrufræðinga á Landspítala Koma að frumu- og
sameindalíffræði, eðlis- og efnafræði, lífeðlis- og lífefnafræði, erfðafræði og
líftækni, örveru- og veirufræði, ónæmisfræði, blóðbankafræði, vefjafræði,
meinafræði, faralds fræði, tölfræði og kerfislíffræði.
4 Ljósmæðrafélag Íslands á Landspítala | ÞRI., MIÐ. OG FIM.
Raskar starfi kvennadeildar, en undanþágur hafa verið veittar, svo sem
vegna keisaraskurðaðgerða.
5 Stéttarfélag lögfræðinga hjá Sýslumanninum á höfuðborgar-
svæðinu Ekki er hægt að ganga frá alls kyns opinberum skiptum, gjald-
þrota- eða skiptum dánarbúa, skilnuðum, hjónavígslum og fleiri hlutum.
● Ljósmæðrafélag Íslands á Sjúkrahúsinu á Akureyri Ótímabundið
verkfall hófst 9. apríl. Verkfall á mánudögum og fimmtudögum. Aðgerðir
eru því á 41. degi.
HAFA VERIÐ Í VERKFALLI FRÁ 20. APRÍL - 30. DAGUR
1 Félag íslenskra náttúrufræðinga á Matvælastofnun Meðal annars
áhrif á eftirlit með plöntu heilbrigði, matvælaöryggi og neytendavernd.
2 Stéttarfélag háskólamanna á matvæla- og næringarsviði á Mat-
vælastofnun Raskar margvíslegu eftirliti og rannsóknum.
3 Dýralæknafélag Íslands Stórfelld áhrif á matvælaframleiðslu. Uppáskrift
dýralækna og eftirlit þarf við slátrun og einnig vegna innflutnings.
Í PÍPUNUM: SGS: Verkfalli sem átti að vera í dag og á morgun hefur verið
frestað til 28.-29. maí og ótímabundinni vinnustöðvun til 6. júní. Hjúkrunar-
fræðingar: Ótímabundið verkfall hefst 27. maí. VR, LÍV og Flóabandalag:
28.-29. maí er verkfall hjá hópbifreiðafyrirtækjum, 30.-31. maí er verkfall á
hótelum, gisti- og baðstöðum, 31. maí-1. júní er verkfall í flugafgreiðslu, 2.-3.
júní er verkfall hjá skipafélögum og í matvöruverslunum, 4.-5. júní er verkfall
hjá olíufélögum, 6. júní hefst ótímabundið verkfall félagsmanna.
VERKFALLSAÐGERÐIR Í GANGI
SAMN-
INGA-
FUNDUR
Björn Snæ-
björnsson,
formaður
Einingar-
Iðju og
Starfs-
greinasam-
bandsins,
ásamt
Magnúsi
Péturssyni
ríkissátta-
semjara í
Karphúsinu
í gær. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/VILHELM
„Þetta eru svakalegar aðgerðir. Venju-
legt fólk áttar sig ekki á þessu. Það er
tekin af okkur eina innkoman. Þetta er
eins og hjá manni sem missir vinnuna
og tekjurnar, en verður samt að vinna.
Ef við förum ekki að selja blasir við
gjaldþrot.“
Þetta segir Jón Magnús Jónsson,
eigandi Ísfugls, sem var eini kjúklinga-
framleiðandinn sem setti ekki ferskan
kjúkling á markað um helgina. „Ég
ákvað að bíða og rjúfa ekki samkomu-
lagið við dýralækna í þeirri von að enn
væri til friðsamleg lausn. Við höfum
alltaf fengið undanþágu til að slátra
þangað til síðastliðinn föstudag. Ég tek
ekki afstöðu í verkfallsdeilunni en þetta
er grafalvarlegt mál.“
Jón hefur slátrað um fimm til sjö
þúsundum fugla á dag sem hafa verið
frystir samkvæmt samkomulagi við
dýralækna. „Ég hef verið að selja örlítið
af eldri lager sem var til. Við erum hins
vegar að vonast til að fá að selja það
sem við höfum verið að frysta undan-
farnar vikur. Við þurfum rekstrarfé. Það
þarf að kaupa fóður og gera upp við
bændur.“
Beiðni Ísfugls um slátrun var frestað
í gærmorgun. - ibs
REYNSLUSÖGUR ÁHRIF YFIRSTANDANDI AÐGERÐA
Þetta eru svakalegar aðgerðir
KJÚKLINGABÓNDI Jón Magnús Jóns-
son, eigandi Ísfugls. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fréttablaðið leitar að sögum sem tengjast verkfallsaðgerðum. Láttu okkur endilega vita af skemmtilegum, eða miður skemmtilegum, sögum með því að
senda okkur póst á ritstjorn@frettabladid.is.
VEISTU SVARIÐ?
1. Hvaða bær á Íslandi stefnir að því
að verða kolefnishlutlaus?
2. Hvaða þjálfun hafa börn í Vestur-
byggð fengið á netinu?
3. Hvað heitir listakonan sem málar
myndir á gamlar skófl ur?
SVÖR:
1. Akureyri. 2. Talþjálfun. 3. Sigurbjörg
Eyjólfsdóttir
VERKALÝÐSBARÁTTAN
Nicotinell, lyfjatyggigúmmí. Inniheldur nikótín. Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja, að hætta og auðveldar þeim sem ekki geta hætt, eða eru tregir til þess, að draga úr reykingum. Hætta skal alfarið reykingum meðan á meðferð með Nicotinell stendur. Upphafsskammtur skal
ákvarðaður út frá því hversu háður nikótíni einstaklingurinn er. Verði vart við aukaverkanir þegar hærri styrkleiki er notaður skal íhuga að skipta yfir í lægri styrkleika. Meðferðarlengd er einstaklingsbundinn. Samtímis neysla á súrum drykkjum, eins og t.d. kaffi og sódavatni, getur minnkað frásog nikótíns í munni. Forðast skal þessa drykki í 15 mínútur fyrir notkun lyfjatyggigúmmís.
Tyggja skal eitt stykki Nicotinell lyfjatyggigúmmí við reykingaþörf. Venjuleg notkun er 8-12 stykki á sólarhring, þó ekki fleiri en 15 stykki af 4 mg lyfjatyggigúmmíi og 25 stykki af 2 mg lyfjatyggigúmmíi á sólarhring. Vegna eiginleika lyfjatyggigúmmís sem lyfjaforms getur nikótínþéttni í blóði verið mismunandi á milli einstaklinga. Því skal miða tíðni skammta við einstaklingsþörf, innan
uppgefinna hámarksskammta. Tyggja skal eitt lyfjatyggigúmmí þar til finnst sterkt bragð. Lyfjatyggigúmmíið skal því næst hvíla á milli kinnar og tannholds. Þegar sterka bragðið minnkar skal byrja að tyggja aftur. Þetta skal endurtaka í 30 mínútur. Í flestum tilfellum skal meðferðin standa í a.m.k. 3 mánuði. Eftir 3 mánuði skal draga smám saman úr notkun. Venjulega er ekki mælt
með notkun Nicotinell lyfjatyggigúmmís lengur en í eitt ár. Ef ekki hefur dregið úr fjölda sígaretta á sólarhring eftir 6 vikur skal leita faglegrar ráðgjafar. Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er reiðubúin til þess, þó ekki síðar en eftir 6 mánaða meðferð. Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að hætta reykingum eftir 9 mánaða meðferð. Þeir sem reykja ekki og
þeir sem hafa ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna eiga ekki að nota Nicotinell. Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing því ekki er víst að þú megir nota Nicotinell ef þú: ert þunguð, með barn á brjósti, hefur nýlega fengið hjartabilun eða hjartastopp, ert með hjarta- eða æðasjúkdóm, of háan blóðþrýsting, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil/nýrnahettur, magasár eða verulega skerta
nýrna- og/eða lifrarstarfsemi. Einstaklingar undir 18 ára aldri mega ekki nota Nicotinell nema að læknisráði. Nikótín sem er gleypt getur valdið versnun einkenna hjá sjúklingum sem eru með bólgu í vélinda, munni eða koki, magabólgu eða magasár. Einstaklingum með gervitennur, eiga við vandamál í liðamótum kjálka og þeim sem eiga í erfiðleikum með að tyggja tyggigúmmí er
ráðlagt að nota önnur lyfjaform en lyfjatyggigúmmí. Sjúklingar með arfgengt frúktósaóþol skulu ekki nota lyfjatyggigúmmíið. Athuga ber að lyfjatyggigúmmíið og munnsogstöflurnar innihalda natríum og bútýlhýdroxýtólúen (E321) sem getur valdið staðbundinni ertingu slímhúðar en sumar bragðtegundir innihalda að auki sorbitól (E420), maltitól (E965) eða aspartam (E 951) sem ekki
allir mega taka. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Jafnvel lítið magn af nikótíni er hættulegt börnum og getur valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ
Ertu að hætta að reykja?
Veistu hvaða bragðtegund hentar þér?
Fæst í 6 bragðtegundum!
NICOTINELL
LYFJATYGGIGÚMMÍ
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
F
-A
D
1
C
1
7
5
F
-A
B
E
0
1
7
5
F
-A
A
A
4
1
7
5
F
-A
9
6
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
5
6
s
_
1
8
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K