Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.05.2015, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 19.05.2015, Qupperneq 10
19. maí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10 - með þér alla leið - 569 7000 Lágmúla 4 www.miklaborg.is Nánari upplýsingar veitir Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali sími: 822 2307 olafur@miklaborg.is 26,9 millj.Verð: Sérlega vel skiplögð 3-4ra her. risíbúð Frábær staðsetning Hús er vel viðhaldið Glæsilegt útsýni til norðurs og svalir í suður Háagerði 53 risísbúð OPIÐ HÚS miðvikudag 20.maí frá 17:00-17:45 LIFÐU í NÚLLINU! 365.isSími 1817 Til hvers að flækja hlutina? STARFSÞRÓUNARÁR HJÚKRUNARFRÆÐINGA Landspítali 2015-2016 Nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar sem ráða sig í 80-100% starf geta tekið þátt Markmið Hæfnikröfur Helstu verkefni og ábyrgð Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2015 með um 5.100 starfsmenn. Hann er aðalsjúkrahús SAMGÖNGUR „Við höfum ekki orðið vör við það að bókanir hafi dregist saman í kringum þetta tímabil,“ segir Svanhvít Friðriksdóttir, upp- lýsingafulltrúi WOW air, aðspurð um áhrif yfirvofandi allsherjar- verkfalls 6. júní næstkomandi. Búast má við því að truflanir verði á flugi strax dagana 31. maí og 1. júní þegar áætlað er að flug- afgreiðslufólk verði í verkfalli. Hversu mikil áhrif þessi vinnu- stöðvun hefur á flugumferð er enn óljóst. Líklegt er að flugfélög- in myndu meðal annars bregðast við með því að flýta og seinka flugi sem áætlað er þessa daga til að koma farþegum á áfangastað. Allsherjarverkfallið sem boðað hefur verið laugardaginn 6. júní gæti hins vegar haft meira afger- andi áhrif en fyrrnefnd vinnu- stöðvun um mánaðamótin. Líkt og Svanhvít hjá WOW air hér að framan segir Guðjón Arngríms- son, upplýsingafulltrúi Icelandair, að engin breyting sjáist á bókun- um. „Hins vegar höfum við orðið vör við að fólk hringir inn með fyrir- spurnir. Við höfum ekki gert nein- ar breytingar á okkar áætlunum og bindum, eins og allir, vonir við það að samningar náist og ekki komi til truflana á flugi,“ segir Guðjón. Aðspurð um rétt farþega falli flug niður vegna verkfalla vísar Svanhvít í reglugerð sem innleidd var á Íslandi árið 2012. „WOW air mun aðstoða alla far- þega eins og kostur er ef af verk- falli verður. Farþegar sem hafa haft samband við þjónustuver WOW air hafa spurt um réttindi sín og höfum við þá bent á heima- síðu Samgöngu- stofu sem skýrir réttindi farþega mjög vel,“ segir Svanhvít. Þar kemur meðal annars fram að farþegar eiga alltaf rétt á end- urgreiðslu á fullu miðaverði við af lýsingu flugs. „Aðalmark- miðið er að koma fa r þ e g u m á áfangastað eins fljótt og hægt er,“ segir Guð- jón. Helga Árna- dóttir, framkvæmdastjóri Sam- taka ferðaþjónustunnar, segist nú þegar hafa heyrt af hópum sem hafi afbókað. Erlendir ferðaheild- salar fylgist áhyggjufullir með, minnugir óvissunnar í kringum verkföll fyrra. „Eftir því sem óvissan magn- ast, þeim mun verra, og hlutirnir eru allir í biðstöðu. Nú telur hver einasti dagur,“ segir Helga Árna- dóttir. gar@frettabladid.is Flug truflast um næstu mánaðamót Verkfall flugafgreiðslufólks truflar flugumferð hér 31. maí og 1. júní. Allsherjarverkfall frá 6. júní stöðvar svo flug ótímabundið. Fulltrúar flugfélaganna segja farþega spyrjast fyrir um rétt sinn en að ekki dragi úr bókunum. VERKFALL Í LEIFSSTÖÐ Vinnustöðvun í fyrravor setti strik í reikning flugfarþega. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SVANHVÍT FRIÐ- RIKSDÓTTIR GUÐJÓN ARN- GRÍMSSON Eftir því sem óvissan magnast, þeim mun verra. Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar. SVEITARSTJÓRNARMÁL Borgar- fulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja gefa eigendum kaffihúsa, veitinga- staða og annarra samkomustaða svigrúm til að leyfa dýrahald ef þeir óska. Hildur Sverrisdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins, fer fyrir tillögunni. „Allt gæludýrahald hefur breyst,“ segir Hildur og bendir á rannsóknir sem sýni að betra sé að hafa gæludýr en ekki. „Það lífgar upp á og gerir borgarum- hverfið betra að hafa þau sem víð- ast. Þótt auðvitað þurfi að huga vel að hreinlæti, ofnæmisvöldum og öðrum álitamálum.“ Tillagan gengur út á að borgar- stjórn sammælist um að beina því til ríkisvaldsins að sveitarfélögun- um verði í sjálfsvald sett hvernig þau vilja haga reglum um hollustu- hætti og matvæli. - nej Veitingamenn fái svigrúm: Setji eigin regl- ur um gæludýr KJARADEILUR Frystiskápar Land- spítalans eru að fyllast af blóðsýn- um. Ríflega sex þúsund sýni hafa verið fryst vegna verkfalls BHM. Þau elstu eru meira en mánaðargöm- ul og tugir sýna eru orðnir ónýtir. Ríflega helmingur allra starfs- manna á rannsóknarsviði Landspít- alans hefur nú verið í verkfalli í um sex vikur. Um er að ræða 250 líf- einda-, náttúru- og geislafræðinga. Áður en verkfallið skall á tók oft- ast tvo til þrjá daga að fá niðurstöð- ur úr blóðprufum. Núna þurfa sjúk- lingar jafnvel að bíða vikum saman. Ísleifur Ólafsson, yfirlæknir rannsóknarkjarna Landspítalans, segir rannsóknir sem bíða skipta orðið tugum þúsunda. Nokkur hundruð sýni eru talin vera orðin léleg og ekki koma til með að skila fullnægjandi niðurstöðum. Elstu sýnin í frystiskápunum eru frá 13. apríl. Þá bíða 350 vefjasýni eftir því að verða skoðuð. „Þetta er erfið staða og ég met það svo að hún sé hættuleg sjúk- lingum,“ segir Ísleifur. - lvp Á RANNSÓKNARSTOFU Blóðsýni eru sögð best þegar þau eru ný. Þegar frá líður verða sýni lélegri og erfiðara að túlka niðurstöður. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Sýni sem bíða rannsóknar á Landspítala eru sum hver ónýt vegna aldurs: Frystiskápar fullir af blóðsýnum 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K _ N Y .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 6 0 -2 3 9 C 1 7 6 0 -2 2 6 0 1 7 6 0 -2 1 2 4 1 7 6 0 -1 F E 8 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 0 5 6 s _ 1 8 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.