Fréttablaðið - 19.05.2015, Síða 16

Fréttablaðið - 19.05.2015, Síða 16
19. maí 2015 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞRÓUNARSTJÓRI: Tinni Sveinsson tinni@365.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Andri Ólafsson andri@365.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is Það er fátt rætt meira á Íslandi þessi miss- erin en erfiðleikar yngra og efnaminna fólks við að eignast eða leigja húsnæði við hæfi. Samtök iðnaðarins hafa lagt í umtals- verða vinnu við að greina byggingar- kostnað með það fyrir augum að leggja til haldbærar tillögur til að lækka bygg- ingarkostnað og auka framboð á smærri íbúðum. Tillögur SI eru tvíþættar. Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir lækkun opinberra gjalda og skilvirkari stjórnsýslu gagnvart byggingar- aðilum. Í öðru lagi eru lagðar til breyting- ar á byggingarreglugerð til einföldunar og aukinnar skilvirkni. Þessi atriði vega sam- anlagt meira en 30% af byggingarkostnaði. Lóðagjöld samsvara nú um 20% af bygg- ingarkostnaði. Lækkun þeirra er því mikil- vægur liður í heildarmyndinni. Aðrir liðir eru smærri en hafa engu að síður mikil áhrif. Um er að ræða kostnað sem SI telja ýmist of háan eða óþarfan enda hafa ein- staka kostnaðarliðir hækkað umtalsvert síðastliðin ár, langt umfram það sem telja má eðlilegar verðlagsbreytingar. Að auki vilja SI benda á að gjaldskrár sveitarfélaga, kröfur í deiliskipulagi af ýmsum toga og fleiri atriði mynda ranga hvata þannig að byggingaraðilar byggja frekar stærri einingar en minni. Tillögur SI til breytinga á byggingar- reglugerð eru margþættar og miða að því að einfalda byggingu fasteigna og auka skilvirkni. Byggingarreglugerðin ætti að grunni til að vera markmiðasett, þ.e. gefa hönnuðum og framkvæmdaaðilum aukið svigrúm til lausna, en ekki vera forskrifuð, eins og hún er í dag. Umtalsverða breyt- ingu þarf á bæði tilgangi reglugerðarinnar og inntaki. Í því liggja mikil tækifæri til lækkunar byggingarkostnaðar. Miðað við útreikninga SI má ætla að framangreindar breytingar geti leitt til lækkunar byggingarkostnaðar að meðal- tali um 4-6 milljónir króna á hverja íbúð af stærðinni 80-120m². Samtökin trúa því stað- fastlega að í þessu felist besta leiðin fyrir stjórnvöld til að hafa marktæk almenn áhrif á að stórir hópar í samfélaginu hafi ráð á að eignast eigin íbúð eða leigja. Það er fagnaðarefni að umhverfis- og auðlindaráðherra og ýmsir aðrir aðilar í stjórnmálum og stjórnsýslu hafa sýnt til- lögum okkar mikinn áhuga. Verkefnið er mikilvægt og varðar stóra hópa samfélags- ins. Það eru kjarabætur í húfi. Því er brýnt að hefjast handa strax. Lækkum byggingarkostnað og bætum kjör BYGGINGAR Almar Guðmundsson framkvæmdastjóri SI H E I L S U R Ú M ROYAL MAÍ TILBOÐ ALEXA (153x200 cm) 212.980 kr. MAÍTILBOÐ 170.040 kr. ROYAL ALEXA 153x200 cm 212.980 kr. - nú 170.040 kr. 180x200 cm 269.050 kr. - nú 215.240 kr. Royal Alexa sameinar aðlögun þ rýstijöfnunarefnis og tvöföldu pokagormakerfis 7. cm þr ýstijöfnunarefni í toppnum, smápokagormakerfi í efra laginu sem aðlagast fullkomlega að líkamanum. Yfirdýnan er einnig með steyptum hliðarköntum sem ge rir það að verkum að svefn-flöturinn nýtist mun betur en ella. Neðri gormarnir eru 17cm á hæð og alls 840 talsins. Efri eru hinsvegar 7,5cm. og 609 að tölu. Þetta gerir það að verkum að lítil hreyfing er á milli svæða. Þ au sem fylgst hafa með stjórnmálum í einhvern tíma þekkja orðið umræðu um þingsköp og breytingu á þeim nokkuð vel. Svo virðist sem þingmenn séu allir sem einn sammála um að betur megi fara þegar kemur að þeim reglum sem þingið starfar eftir. Reyndar er það þannig að það skiptir máli hvort þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu varðandi það hve mikla áherslu þeir leggja á málið, eða hvaða breytingar þeir vilja sjá verða að veruleika. En allir virðast þó vera sammála um að einhverju verði að breyta. Einn af vorboðunum sem alltaf má treysta á er að allt fer í hnút í þinginu, ásakanir um málþóf koma fram frá meiri- hlutanum og minnihlutinn kvartar yfir valdníðslu og slæ- legum undirbúningi. Það skiptir engu hvaða flokkar skipa stjórn eða stjórnarandstöðu; það er jafn tryggt og að sólin rís að morgni að þessi tími kemur í hvert sinn sem fer að styttast í þinglok. Og nú er hann runninn upp enn á ný. Að þessu sinni er staðan þó um margt nokkuð sérstök. Það á ekki bara við það mál sem nú fangar athygli þingmanna, rammaáætlun. Nógu sérstakt er það mál þó, ráðherra leggur til að einn virkjanakostur verði færður úr bið- í nýtingarflokk og þingnefnd bætir fjórum við. Forsætisráðherra dregur síðan einn til baka í miðri umræðunni, meðan fagráðherrann hlustar hlýðinn á. Nei, þetta er ekki það eina sérstaka. Mun athyglis- verðara er sú staðreynd að nú situr ríkisstjórn með svo ríflegan þingmeirihluta að það þarf að leita aftur til þess tíma þegar Davíð Oddsson var forsætisráðherra til að finna annað eins. Og hvernig hefur stjórnin nýtt sér þennan meirihluta? Jú, með því að koma fáum málum til þingsins, þau eru seint á ferð og taka umtalsverðum breytingum eftir að í þingið er komið án þess að ráðherrar tali sérstaklega fyrir þeirri leið sem þeir þó hljóta að hafa talið þá réttustu þegar frumvörpin þeirra voru samin. Hvað er eiginlega í gangi? Í þættinum Umræðunni á Stöð 2 í gærkvöldi mátti heyra Einar K. Guðfinnsson, forseta Alþingis, nefna það að mál mættu koma fyrr fram. Það er ekki í fyrsta skiptið, hann hefur höggvið í þann knérunn í þingsetningar og -frestunarræðum í allan vetur. En ráðherrar í ríkisstjórn Íslands, sem sitja í umboði Alþingis, virðast ekki hlusta á þingforsetann. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðis- flokksins, var líka í Umræðunni í gær. Hún nefndi líka að mál mættu koma fyrr fram frá ráðherrum. Hún benti þó réttilega á að þetta væri ekki einungis gagnrýni á sitjandi ráðherra, sem sumir hverjir eru samflokksmenn hennar, heldur á ráðherra margra fyrri ríkisstjórna einnig. Svona hefur þetta alltaf verið, því miður. Það gengur hins vegar ekki lengur að velta sér upp úr því hvort eitthvað sé reglulegt, aðrir hafi sýnt af sér sömu hegðun áður og svona hafi þetta nú bara alltaf verið. Ef stjórnmála- mönnum þessa lands er einhver alvara í því að bæta starfshætti þingsins þá er nóg komið af djúpvitrum orðum sem í raun engu skipta. Gerið þetta bara. Ríflegur þingmeirihluti virðist ekki neinu skipta: Hvað er í gangi? Forgangur, ef tími vinnst til „Húsnæðismálin fjögur eru hluti af mínum forgangsmálum á þessu þingi,“ sagði Eygló Harðardóttir í Fréttablaðinu í gær. Tilefnið var sú sérkennilega staða sem upp er komin varðandi síðari tvö húsnæðisfrum- vörpin, sem ekki hafa enn komið fram á þingi. Það er nokkuð sérkennilegur málskilningur hér á ferð. Forgangs- mál eru þau mál sem viðkomandi ætlar að leggja mesta áherslu á, ætlar raunar að vinna þau svo þau gangi framar öðrum málum, fái forgang. Enn skringilegri verður málskiln- ingurinn þegar næstu orð ráðherra eru skoðuð: „… og vona ég því að þau muni fá umfjöllun á þinginu fyrir þinglok þótt þing- fundadögum fækki stöðugt.“ Forgangsmál er ekki eitthvað sem maður vonast til að hægt sé að komast í, ef tími vinnst til. Það er eitthvað sem frekar á við um ungling, ef tími vinnst til frá tölvunni mun ég taka til í herberginu mínu. Eftirgangsmálin Mun fremur ætti Eygló að segja að þetta væri eftirgangsmál; hún ætlaði þeim að koma fram á eftir öðrum málum, raunar eftir að frestur til að leggja fram ný þingmál er löngu liðinn. Og hún ætlaði einnig að ganga á eftir samráðherrum sínum í ríkisstjórninni um hvort hún fengi ekki örugg- lega að leggja þessi stærstu mál sín fram á yfir- standandi þingi. Tæknilegu atriðin Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra virðist nefnilega ekki mjög áfram um að frumvörpin komi fram, hann leggur allavega ekkert sér- staklega mikið á sig til að svo verði. Ráðuneyti hans vísaði öðru frum- varpinu heim til föðurhúsanna og lýsti því yfir að það kæmi trauðla aft- ur fram. Bjarni talar reyndar eins og það sé tæknilegt atriði, að ráðherra fái frumvarp aftur í hausinn. Eftir stendur þó það sem hann segir að málið hefur ekki verið rætt í ríkis- stjórn. Það bendir ekki til þess að mikill vilji sé til þess að svokölluð forgangsmál fái nokkurn forgang yfir höfuð. Raunar þvert á móti. kolbeinn@frettabladid.is 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 E -8 9 C C 1 7 5 E -8 8 9 0 1 7 5 E -8 7 5 4 1 7 5 E -8 6 1 8 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 5 6 s _ 1 8 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.